Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Blaðsíða 44
Fjármál
heimilanna
Þværðu of oft?
*Sumum hættir til að nota þvottavélina of mikið ogvarla að búið sé að setja á sig brjóstahaldarann eðagallabuxurnar þegar þeim er fleygt í óhreinatau-skörfuna. En hversu oft þarf í raun að þvo flíkurnar?Samkvæmt Realsimple.com ætti að þvo brjósta-haldara eftir að hafa klæðst honum í 3-4 skipti, 4-5skipti fyrir gallabuxur, taubuxur og pils, jakka eftir
5-6 skipti og sundfatnað í hvert einasta skipti sem
hann er notaður.
Halldór Fannar Sigurgeirsson lifir draum-
inn. Hann býr í dag í Los Angeles og fæst
þar við leik, skrif, blaðamennsku og sitt-
hvað fleira.
Hvað eruð þið mörg í heimili?
Okkur var nú að fækka, þannig að við er-
um núna fimm. Við stofnuðum þetta
heimili saman, hópur af fólki sem var allt
í skóla eða að reyna að komast í betri
störf. Síðan hafa margir komið og farið
og við erum tveir eftir af upprunalega
hópnum og ekkert að stressast við að
búa eitthvað meira grand þótt við höfum
komist langt á þessum árum.
Hvað áttu alltaf til í ísskápnum?
Ég vildi óska þess að ég gæti sagt eitt-
hvað flott, eins og til dæmis að ég ætti
alltaf bjór, en því miður verður þetta
dapurt svar: Ísskápurinn er oftast sæmi-
lega fullur, það vantar ekki, en ég er al-
mennt gæinn sem á ekki stakan hlut í
honum … ekkert innan geymsludags að
minnsta kosti.
Hvar kaupirðu helst inn?
Ég er nú ekkert svaka mikið að hlaupa
eftir þessum „trendum“ öllum þannig að
ég versla bara þar sem mér finnst orkan
úr matnum góð og halda mér á þeytingi.
Ekki alveg ódýrustu stöðunum en heldur
ekkert allt lífrænt úr Whole Foods. Líf-
ræni stimpillinn er gjörsamlega ofmet-
inn. Fresh&Easy og Ralphs eru svona að-
gengilegastar frá mínu heimili.
Hvað freistar helst í matvöru-
búðinni?
Túnfiskur, hummus, hrein jógúrt, chili og
kjötvörur af betri sortinni.
Hvernig sparar þú í heimilis-
haldinu?
Borða vel þegar maður er í vinnunni, en
vinna þá líka af dugnaði þannig að maður
sé ekki bara að notfæra sér vellysting-
arnar.
Hvað vantar helst á heimilið?
Örugglega alveg helling, en það er bara
ekkert sérlega mikið pláss fyrir meira
þannig að maður kæmi sér í sjálfheldu
við að fá of miklar hugmyndir.
Eyðir þú í sparnað?
Ég reyni alltaf að eiga pening eftir af síð-
ustu launum þegar næstu koma inn. Eyddi
um daginn í að skipta um tryggingafélag.
Allt bröltið að færa mig yfir var sjálfsagt
varla þess virði en að minnsta kosti
kenndi ég gamla tryggingafélaginu að það
hækkar ekki bílinn minn um 30 dollara á
mánuði án þess að láta mig vita og búast
svo við að allt sé bara gott.
Skothelt sparnaðarráð?
Forðast kreditkort eins og heitan eldinn!
Kreditrönd á debetkort er skömminni
skárra og gefur manni öll sömu fríðindi
svo lengi sem maður passar bara að
vinna inn fyrir neyslumynstri sínu og lífs-
stíl.
HALLDÓR FANNAR SIGURGEIRSSON
„Lífræni stimpillinn er
gjörsamlega ofmetinn“
Halldór segist reyna að taka vel til matar síns
þegar matur er í boði vegna vinnunnar.
Aurapúkinn er þessa dagana að lesa
Walden eftir Henry David Tho-
reau. Eða réttara sagt er Púkinn að
hlusta á bókina, á ókeypis upptöku
sem hann fann á Librivox.
Walden er ekki bara eitt af merk-
isritum bandarískra bókmennta,
heldur holl lesning fyrir sálina. Bók-
in segir frá því hvernig Thoreau bjó
um tveggja ára skeið í litlum kofa,
sem hann smíðaði sér sjálfur, og lifði
nær alfarið af mat sem hann sjálfur
ræktaði. Ein leið til að lýsa bókinni
er að kalla hana óð til nægjusem-
innar, og gagnrýni Thoreau á
neysluhyggju samtímamanna sinna á
síst minna erindi við nútíma-
manninn.
Púkinn mælir með því að les-
endur reyni að tileinka sér sumt af
lífsstíl Thoreau árin tvö við Wal-
den-tjörn. Það felst ekki bara sparn-
aður í því að lifa nægjusömu og ein-
földu lífi, heldur getur fylgt því meiri
frítími og lífsfylling að gleyma sér
ekki í lífsgæðakapphlaupinu.
Að lesa Walden er gott sparnað-
arráð.
púkinn
Aura-
Lexíur frá
Walden-tjörn
N
ú er tími sumarfríanna runninn upp
og eflaust margir sem gætu vel
hugsað sér að verja nokkrum frí-
dögum í útlöndum, enda fátt
skemmtilegra en að skjótast yfir hafið, rápa
kannski um evrópska menningarborg eða taka
snúninginn á austurströnd Bandaríkjanna,
máski með leikhúsferð og skreppitúr í H&M.
En ferðalög til útlanda kosta – og þá ekki síst
flugfargjaldið. Að finna ódýrt sæti getur verið
snúið og meiriháttar hausverkur að ætla að
finna allra lægstu tilboðsverðin.
En ef ferðalangarnir hafa einhvern sveigj-
anleika og kunna að nota réttu flugleitarvél-
arnar, þá fer að verða mögulegt að halda út í
heim fyrir minni pening. Ef ekki skiptir öllu
máli til hvaða borgar er farið eða á hvaða tíma,
er hægt að finna flug á marga áhugaverða staði
fyrir sáralítið.
Hvað með Bristol?
Íslenski flugleitarvefurinn Dohop er með lítið
undirsvæði, Dohop Go! (www.dohop.com/go) þar
sem leitarvélin tekur saman lista yfir ódýrustu
mögulegu flugferðir. Einfaldlega þarf að slá inn
brottfararstað (KEF eða Reykjavík) og sísvona
að leitarvélin hefur uppi á hræbillegu flugi hing-
að og þangað.
Þegar þetta er skrifað eru t.d. í boði flug til
Bristol á nokkrum dögum í desember á aðeins
9.492 kr. hringferðin og til Basel í nóvember
fyrir bara 12.125 kr. Ódýrasta flugið til London
virðist vera í september, 16.904 kr. fram og til
baka, og hægt að fara til Berlínar á 17.449 kr.
ef hægt er að tímasetja ferðalagið í nóvember.
Hægt er að þrengja leitarniðurstöðurnar við
ákveðin tímabil, áfangastaði eða vikudaga, fá að-
eins flug aðra leið eða báðar.
Hvert má komast fyrir upphæðina?
Leitarvélin Kayak býður upp á svipaðan fídus,
Kayak Explore (www.kayak.com/explore/), nema
þar er hægt að grisja niðurstöðurnar betur eftir
atriðum á borð við flugtíma, hámarksverð og til
hvaða heimsálfu hugurinn stefnir. Segjum t.d.
að fjárhagsáætlunin leyfi að flugmiðinn kosti að
hámarki 350 dali, u.þ.b. 40.000 kr. Koma þá í
ljós á Kayak fjórir mögulegir áfangastaðir frá
Keflavíkurflugvelli: London, Ósló, Stokkhólmur
og Kaupmannahöfn með laus hagstæð flug á
hinum ýmsu dögum, vikum og mánuðum.
Skjáskot af Explore-síðu Kayak, þar sem búið er að
stilla leitina þannig að sjá má ódýrustu mögulegu
flugleiðirnar frá Keflavík á ýmsa áfangastaði í Evrópu.
Dýrast virðist að fljúga til Glasgow en hægt að finna
billegt flug til Lundúna.
Að láta
ferðalagið
ráðast af
verðinu
HVERT ER ÓDÝRAST AÐ FLJÚGA?
SPARSAMIR FERÐALANGAR ÆTTU AÐ
LÆRA NOKKRAR BRELLUR Á VINSÆLUM
FLUGLEITARVÉLUM
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is