Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.6. 2014
Græjur og tækni
Íslenski tölvuleikurinn Aaru’s Awakening kemur út í
hinum stóra heimi á Playstation 4 í sumar. Leikinn
framleiða sjö Íslendingar og tveir Danir og hefur
fyrirtæki þeirra, Lumenox Games, aðsetur í Hafn-
arfirði. Leikurinn er handgerður og er beðið með
mikilli eftirvæntingu í tölvuleikjaheiminum.
Aaru’s Awakening á PS4
Þ
egar HM var haldin 1970 var það í
fyrsta sinn sem keppnin var send út í
lit. Þegar mótið var í Þýskalandi 2006
voru leikir sendir út í HD-upplausn
og í Suður-Afríku var hægt að sjá leikina í
gegnum veraldarvefinn. Sumir leikjanna þar
voru sendir út í þrívídd.
Stærsta tæknibyltingin þetta árið verður
4K-upplausnin, sem er 3.840×2.160 pixla upp-
lausn, en venjulegt sjónvarp er yfirleitt „Full
HD“ þar sem upplausnin er 1.920×1.080.
Þetta þýðir að nánast er hægt að sjá grasið
spretta, svo skýr er myndin í 4K.
Til viðbótar við sjónvarpstæknina verður
einnig kynnt til sögunnar nýjasta mark-
línutæknin, sem kallast GmbH.
Englendingar hafa verið að nota svipaða
tækni í úrvalsdeildinni sinni. GmbH er hannað
og þróað af þýska fyrirtækinu GoalControl og
hefur tæknin ekki enn misst af marki í öllum
prófunum. Fari boltinn allur yfir marklínuna
fær dómarinn merki í úr sem hann ber og
getur tekið upplýsta ákvörðun.
Úði sem hverfur
Dómarar munu einnig bera lítið úðahylki á
sér sem vegur rúmlega 200 grömm, með sér-
hönnuðum tækniúða sem hverfur á 45 sek-
úndum. Þegar aukaspyrna er tekin á varnar-
veggur að vera níu metra frá. Merkja
Ný tækni kynnt til
leiks í Brasilíu
HEIMSMEISTARAKEPPNIN Í FÓTBOLTA OG TÆKNI HAFA HALDIST Í
HENDUR OG MYNDAÐ GOTT SAMBAND ALVEG SÍÐAN KEPPNIN
VAR HALDIN Í MEXÍKÓ ÁRIÐ 1970.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Keppnisboltinn á Heimsmeistaramótinu 2014
Þyngd 437 g
Ummmál 69 cm
Endurkast 141 cm
Rakadrægni 0,2%
Heimild: FIFA, Adidas
Brazuca
Gerður úr sex alveg eins bútum
sem tryggir að lögun boltans
haldist í mikilli rigningu.
Blaðran er gerð úr latexi og
tvö og hálft ár
10 löndum
30 liðum
yfir 600 leikmönnum,
meðal annars
Messi, Xavi,
Dani Alves,
Schweinsteiger
og Gerrard
Tók
í
með
og
Nefndur Brazuca
eftir könnun sem meira en ein
milljón Brasilíumanna tók þátt í.
Þróun:
boltinn er framleiddur í Pakistan.
Heimild: FIFA, about Brazil.com/Tourism-review
12
leik-
vangar
52.000
krónur er
meðalverð á
hótelherbergi í Rio
2.200
krónur kostar
pizza á Copacabana
ströndinni
kostaði að gera
upp leikvangana
milljarða króna
400
15.000
sjálfboðaliðar
350.000
aðdáendur
munu koma
til Brasilíu
8
síðustu
mót
hafa
19
lið
unnið
sinnum hefur
Brasilía orðið
heimsmeistari
5
68
milljarða
króna
kostaði viðgerð
á Maracana
leikvanginum
112 þúsund
krónur kostar ódýrasti
miðinn á úrslitaleikinn
113 þúsund
Allt að
krónur kostar að fljúga
innanlands í Brasilíu
meðan á keppninni
stendur
800 krónur
kostar ís í Rio
1950
gerðist það
síðast að lið frá
Suður-Ameríku léku
úrslitaleik þegar
Úrugvæ og Brasilía
mættust
4,8
milljarðar króna
eru árslaun besta
leikmanns heims,
Portúgalans Christiano
Ronaldo
32
lið
64
leikir
H
ei
m
sm
eistaramótið í tölum1.814
milljarðar króna
er áætlaður
kostnaður við
að halda
mótið.
GOAL21:07
Mark
Myndavélar
Heimild: FIFA
14 myndavélum er komið fyrir
(sjö á hvert mark) sem reikna út
nákvæma staðsetningu boltans.
Fjórvíddar marktækni
Ef boltinn fer yfir marklínuna
fær dómarinn skilaboð
um það á sérstöku úri sem
þeir eru með. Allt þetta
gerist á millisekúndum.
Gögn eru send frá myndavélum til forrits
sem býr til stefnu boltans í þrívídd.
Marklínutæknin
Enginn tæknistjóri verður á vellinum en í stjórnherbergi
er hægt að kalla upp endursýningu ef það verður vafamál.
dómararnir þá staðinn þar sem varnar-
veggurinn á að vera, en leikmaður getur feng-
ið gult spjald fyrir að yfirgefa varnarvegginn
of snemma. Krikket, hafnabolti, NFL-deildin í
Bandaríkjunum og tennis hafa notað álíka úða
með góðum árangri.
Tæknin á bak við hvert spark er gríðarleg
á Heimsmeistaramótinu í Brasilíu en hvort
hún ræður úrslitum kemur í ljós þegar flautað
verður til leiks.
Ódýrt: Tristar-vöfflujárn
Fæst í: Rafha
Verð: 8.990 krónur
Aðeins um: Bakar tvær belgískar
vöfflur í einu. Viðloðunarfrítt yf-
irborð, tvö ljós gefa til kynna þegar
vafflan er tilbúin. Snúruvinda
með stæði fyrir kló. 1000 wött.
Miðlungs: Aviken-vöfflujárn
Fæst í: Heimilistækjum
Verð: 11.995 krónur
Aðeins um: Gerir
þrjár belgískar vöfflur
í einu. Hitastillir, tekur
rúmlega tvær mínútur að
baka vöfflurnar. Lætur vita þegar
vöfflur eru tilbúnar með ljósi. 1600
wött.
Dýrt: KitchenAid Pro Line Series
Fæst í: Einar Farestveit
Verð: 59.990
Aðeins um: Vöfflujárnið er mótað
úr ryðfríu stáli sem gerir það sterk-
legt, stöðugt og endingargott. Hand-
föngin eru í góðri fjarlægð frá
járninu sjálfu svo þau hitna ekki.
1000-1500 wött.
ÓDÝRT, MIÐLUNGS, DÝRT
Belgískt vöfflujárn
Ekki er nóg með að ógrynni plasts frjósi ár hvert fast
við suður- og norðurskaut jarðar heldur er það nú far-
ið að steingerast. Jarð- og haffræðingar frá Háskól-
anum í Vestur-Ontaríó í Kanada rákust nýlega á for-
vitnilegar steinamyndanir á strönd nokkurri á Havaí
en í ljós kom að um steingert plast var að ræða. Fyr-
irbærið, sem kallað hefur verið plastiglomerates á
ensku, myndast þegar plast bráðnar saman við sand,
skeljar og grjót sökum skógarelda, eldgosa eða ann-
arra jarðhræringa. Samkvæmt Patriciu Corcoran, for-
sprakka rannsóknarleiðangursins, má finna heillega
hluti inni á milli grjótsins þrátt fyrir að flest sé plastið
afmyndað og tekur hún þar tannbursta, gaffla og reipi
sem dæmi. Þrátt fyrir að plastgrjótið hafi fyrst nú
verið kannað telur Corcoran að slíkt megi finna víðs
vegar um strandlengjur jarðar.
Frá árinu 1950 hefur svo mikið plast verið framleitt
að hægt væri að þekja jörðina alla þykkri plastfilmu.
Ending plasts er auk þess gríðarleg og hefur það með-
al annars fundist í iðrum sjávardýra sem og á hafs-
botni. Vísindamenn hafa deilt um nákvæman líftíma
plasts en margir telja plastgrjótið geta varðveist í
milljónir ára og mun það því mögulega verða góður
vísir á upphaf mannaldarinnar svokölluðu þegar mað-
urinn hóf að hafa veruleg áhrif á jörðina.
Plastið lifir okkur öll
Plastgrjót er dreift um flestar strandlengjur jarðar.
AFP
STEINGERT PLAST VÍSIR AÐ UPPHAFI MANNALDAR