Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Blaðsíða 17
Krókur opnaður
Bærinn Krókur á Garðaholti í Garðabæ er opinn á sunnudögum í sum-
ar frá kl. 13-17. Krókur er lítill bárujárnsklæddur burstabær sem var
endurbyggður úr torfbæ árið 1923. Þar eru varðveitt gamlir munir og
gaman fyrir fjölskylduna að kíkja og skoða. Aðgangur er ókeypis.
8.6. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17
Mufasa
* Fortíðin getur verið sár. Enþú getur annaðhvort hlaupiðfrá henni eða lært af henni.
Áslaug Hulda Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri Hjalla-
stefnunnar og forseti bæjar-
stjórnar í Garðabæ, á synina
tvo, Bjarna Dag og Baldur
Hrafn, með eiginmanni sínum
Áka Sveinssyni. Hún segir
fjölskylduna njóta þess að elda
saman enda eiga þau öll sam-
eiginlegt að vera miklir mat-
gæðingar.
Þátturinn sem allir geta
horft á?
Við elskum öll fræðsluþætti
og þá eru dýralífs- og náttúru-
þættir BBC í miklu uppáhaldi,
ekki skemmir ef David Atten-
borough bregður fyrir. Síðan
horfum við vandræðalega oft á
matreiðsluþætti.
Maturinn sem er í uppáhaldi hjá
öllum?
Allir elska humar og hryggur er
í miklu uppáhaldi. Eftir langan
vinnudag, þegar ekkert er til í ís-
skápnum og enginn nennir út í
búð, eru allir alltaf geim í góða
pítsu.
Skemmtilegast að gera saman?
Að ferðast, innanlands og utan.
Nú er sumarið komið og þá ferð-
umst við heima, förum í hjóla-
túra og í sund. Síðan hafa syn-
irnir ekki minni áhuga á mat
og matargerð en við foreldr-
arnir þannig að við erum oft öll
að stússa eitthvað saman í
eldhúsinu og finnst líka
voðalega gaman að fara í
matarboð eða út að borða.
Borðið þið morgunmat
saman?
Nei, því miður gerist það afskaplega
sjaldan. En fáum okkur oft brunch saman um helgar.
Hvað gerið þið saman heima ykkur til dægrastyttingar?
Við eldum saman og sitjum oft lengi yfir kvöldverðinum og spjöllum um
allt milli himins og jarðar. Algjörar gæðastundir. Ég er mjög oft dregin út í
körfubolta og ég læt mig hafa það, meira af gleðinni sem strákarnir mínir fá
út úr því en áhuga mínum eða getu í körfubolta. Síðan er líka oft voða gott að
henda sér í sófann fyrir framan sjónvarpið, horfa á eitthvað skemmtilegt og
kúra saman.
Hvað er á dagskrá í sumar hjá fjölskyldunni?
Við ætlum að njóta, hlæja og hafa gaman. Fara í sund, körfubolta og hjóla.
Við skellum okkur í brúðkaup vestur á firði, förum í einhver ferðalög, bæði í
bústað og í tjald. Hitta góða vini og fjölskyldu – bröllum pottþétt eitthvað
óvænt með þeim. Og svo veiða, það er ekki hægt að sleppa því að veiða á
sumrin!
EFTIRLÆTI FJÖLSKYLDUNNAR
Spjalla lengi saman
yfir kvöldmatnum
Áslaug Hulda og synir hennar tveir, Bjarni
Dagur og Baldur Hrafn.
Morgunblaðið/Kristinn
Morgunblaðið/Kristinn
Krakkar eru með minni maga en
fullorðnir og borða því frekar
margar smærri máltíðir heldur en
færri og stærri. Auk þess getur
matvendni verið tíður gestur á
vissum aldri og þá flækjast málin.
Hugmyndir að bragðgóðum en
hollum mat koma ekki á færibandi
og það getur stundum verið vanda-
samt að útbúa hollt nesti sem
hentar gormunum. Nokkrar hug-
myndir að ýmsu gómsætu í nest-
isboxið.
1. Hrískökur
með hnetu-
smjöri
Hnetur eru uppfullar af nauð-
synlegri fitu. Vinsælt er að setja
hnetusmjör á brauð, en í staðinn
fyrir brauðið er snjallt að nota
hrískökur eða hrökkbrauð og búa
til samloku úr því. Gott er að bæta
við smá sykurlausri sultu með
hnetusmjörinu frá merkinu St.
Dalfour sem fæst í flestum mat-
vörubúðum eða einfaldlega setja
nokkrar bananasneiðar.
2. Grautur í krukku
Grautinn er betra að búa til dag-
inn áður og setja hann í krukku.
Hráfæðisgrautur er virkilega góm-
sætur og hentar vel í morgunmat
eða milli mála. Hægt er að útfæra
hráfæðisgrautinn á ýmsa vegu og
nota hráefni sem hentar hverjum
og einum. Þessi uppskrift er hins
vegar einstaklega ljúffeng.
Miðlungs stærð á krukku
2 dl hafrar
½ stappaður banani
2 tsk. hrátt kakó
2/3 tsk. chia-fræ
1 tsk. vanilluduft
2 dl rísmjólk eða möndlu-
mjólk
nokkur bláber eða um ½
dl, frosin eða fersk
3. Eggjafyllt
tortilla
Mexíkanskar heilhveitipönnukök-
ur fást í flestum matvörubúðum og
er hægt að leika sér mikið með
þær. Gott er að setja eggjahræru á
milli eða einfaldlega skera niður
harðsoðið egg og bæta smá salsa-
sósu við. Skorið í litlar sneiðar.
4. Sætkartöflusnakk
Það er fátt betra en sætar
kartöflur. Þær eru fullar af A-
vítamíni en einnig B6, C og fól-
insýru. Notið kartöflur í mjórri
kantinum (betra að skera þær), af-
hýðið og skerið þær í þunnar
sneiðar,
eins og
snakk. Olíu-
berið þær með góðri ólífuolíu og
raðið á ofnplötu. Kryddið með salti
og pipar og örlitlu af rósmaríni.
Hitið á 180°C uns þær fá gylltari
áferð og endarnir mega brenna ör-
lítið. Kælið og setjið í lítið box.
Frábært snarl í ferðalagið.
5. Hummus-ídýfa
og gúrkur
1 dós kjúklingabaunir
3 msk. sólþurrkaðir tómatar
2 tsk. steinselja
2 msk. góð ólífuolía
2 msk. sítrónusafi
Allt hrært saman með töfra-
sprota eða sett í hrærivél
Hummus er dásamlegur ofan á
allskonar brauð en einnig er gott
að nota hummus sem ídýfu. Setjið
hummusinn í litla krukku og skerið
gúrku ílangt í bita. Þetta er hollt
og gott og skothelt snarl.
HOLL OG GÓÐ ORKA INN Í VIÐBURÐARÍKAN DAG
Næringarríkt nesti
fyrir krakkana
NÚ ER SÍÐASTI SKÓLADAGUR RUNNINN UPP Í FLESTUM SKÓLUM LANDSINS. ÞÁ TEKUR SUM-
ARIÐ VIÐ HJÁ KRÖKKUNUM OG MARGIR FARA Á LEIKJANÁMSKEIÐ EÐA ANNAÐ SEM BÝÐUR
UPP Á MIKLA ÚTIVERU. MARGIR ÞURFA AÐ TAKA MEÐ SÉR NESTI OG ÞÁ ER GOTT AÐ VERA
MEÐVITAÐUR UM AÐ HAFA SNARLIÐ SEM NÆRINGARRÍKAST FYRIR LITLA KROPPA.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is