Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Side 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.6. 2014 Heilsa og hreyfing C rossfit hefur notið sívax- andi vinsælda undan- farin ár um allan heim og Ísland er engin und- antekning. „Árið 2005 voru 15 crossfitstöðvar í heiminum, árið 2014 eru þær vel yfir 9.000 í heim- inum enda er crossfit í raun ekki ein íþrótt heldur sambland af öllum mögulegum og ómögulegum íþrótt- um þar sem lögð er áhersla á út- hald, styrk og liðleika. Fjölhæfar æfingar crossfit eru ekki síst ástæða vinnsælda þess,“ segir Ólaf- ur Tryggvason, þjálfari hjá Cross- fit Reykjavík. Þeir sem stunda crossfit eru hvattir til að æfa sem fjölbreytt- astar íþróttir og í þeim anda tóku nokkrir meðlimir Crossfit Reykja- vík þátt í IronMan-keppni árið 2012 en það varð til þess að fljót- lega uppgötvuðu þeir möguleikan á því sem í dag nefnist hjólacrossfit. „Hjólreiðar eru orðnar stærri þátt- ur í lífi margra og nú gefst þeim sem hafa áhuga á að styrkja sig og getu sína færi á að mæta á æfingar hjá okkur sem eru hannaðar með það í huga að bæta einstaklinga á þeim sviðum sem reynir mest á við hjólreiðar. Byrjaði með þátttöku í keppnum Eftir þátttöku okkar fólks í IronMan-keppninni 2012 fór að bera æ meira á áhuga á hjólreið- um. Ekki skemmdi fyrir að hjól- reiðar voru partur af heimsleik- unum í crossfit sama ár. Þannig má segja að lítill hópur hafi fljót- lega farið að vinda upp á sig og byrjað var að taka þátt í hjólreiða- keppnum eins og Bláalónsþrautinni og WOW Cyclothon,“ segir Ólafur en árið 2013 var Crossfit Reykja- vík með tvö fjögurra manna lið í WOW Cyclothon; kvennaliðið end- aði í þriðja sæti og karlaliðið í tí- unda. Hjólaþálfun hófst í kjölfarið hjá Crossfit Reykjavík en þegar illa viðraði til útiæfinga veturinn 2011 til 2012 voru þær færðar inn og þá fóru þær að taka á sig þá mynd sem þær eru í dag. „Þegar Crossfit Reykjavík flutti sig í stærra og betra húsnæði í Faxafeni kviknaði sú hugmynd að setja upp var- anlega æfingaaðstöðu fyrir hjól- reiðamenn þar sem hægt væri að stunda æfingar allan ársins hring. Við sömdum í kjölfar- ið við Örninn um búnað fyrir inni- æfingar frá Elite en í æfingastöð- unni hjá Crossfit Reykjavík eru núna 20 watta trainerar frá Elite. Wattatrain- erar gera hjólreiða- manninum kleift að sjá power output við æf- ingarnar sínar og gera þær því markvissari.“ Eins og áður sagði er crossfit blanda af mörgum íþróttum og segir Ólafur því ávallt leitað til bestu þjálfara hverju sinni þegar kemur að sérhæfðum æfngum. „Við leituðum til Hákons Hrafn Sigurðssonar, margfalds meistara í hjólreiðum og þríþraut, til að ráð- leggja okkur sem höldum utan um hjólacrossfitæfingarnar, þ.e. mér og Hirti Grétarssyni, en við stönd- um að hjólreiðaæfingaaðstöðunni í Crossfit Reykjavík.“ Sprengdu strax utan af sér aðstöðuna Vinsældir hjólreiða ættu ekki að hafa farið framhjá neinum þótt flestir leggi hjólinu yfir háveturinn. Inniæf- ingar eru því kærkomin viðbót og geta hjólreiðamenn haldið sér í góðu hjólaformi yfir veturinn þó svo veðrið hamli þeim í að munda hjólið úti. „Síðasta haust var inni- æfingaaðstaðan opnuð og æfingar hófust 6. október 2013 og var fljót- lega ljóst að þeir trainerar sem til taks voru í byrjun dugðu ekki og fljótlega var boðið upp á aðstöðu fyrir 20 hjólara að æfa saman inni. Einnig býðst geymsla á hjólum á staðnum. Var þessi nýlunda gíf- urlega vinsæl þar sem iðkendur losna við að ferja hjól sitt fram og til baka og geta gengið að því vísu hvenær sem er sólarhringsins. Í vetur voru yfir 40 hjól í geymslu,“ segir Ólafur en hann segir að boðið hafi verið upp á fimm hjólaæfingar á viku. „Við vorum með þrjár traineræfingar þar sem hver og ein hafði það markmið að bæta ákveðna eiginleika hjólreið- anna og tvisvar í viku voru crossfitæfingar sem miðuðust að því að bæta styrk og úthald. Þegar sól hækkaði á lofti færðust æfingar út og hjólar þá hópurinn sam- an og æfir fjölmarga þætti hjól- reiða eins og t.d. að hjóla í hópi til að nýta það sem kallast draft, brekku- spretti og fjallahjólreiðar.“ Hjólaæfingar eru hannaðar fyrir alla Hjólreiðar eru góð leið til að vinna upp þol og kynnast umhverfi sínu með öðrum hætti en í bíl. Flestir geta stundað hjólreiðar og eru hjólaæfingar Crossfit Reykjavík þannig úr garði gerðar að allir geta tekið þátt í þeim. „Æfing- arnar henta öllum og er mið tekið af getu hvers og eins. Á æfingum er þeim sem mæta skipt upp í hópa eftir getu hvers og eins svo allir fái eitthvað við sitt hæfi enda snýst crossfit um keppni við sjálfan sig þar sem við vinnum að því að bæta okkar eigin styrk og þol með öðrum en ekki í keppni við aðra.“ Í vetur var stofnað Hjólreiða- félagið CFRvk sem er í umsókn- arferli að ÍSÍ. Í sumar hefur félag- ið verið áberandi í hjólreiðakeppnum það sem af er tímabilinu. „Flestir ef ekki allir fé- lagsmenn eru að stíga sín fyrstu skref í keppnishjólreiðum en hafa þó verið að vinna til verðlauna í byrjendaflokkum í ýmsum keppn- um,“ segir Ólafur. Það er ljóst að Crossfit Reykja- vík og Hjólreiðafélag CFRvk eru komin til að vera í keppnis- hjólreiðum á Íslandi og munu halda áfram að hlúa að hressum hópi hjólara og er hjólreiðamót á vegum félagsins á teikniborðinu. ÍÞRÓTTIR OG TÓMSTUNDIR FYRIR ALLA SAMEINAST Í EITT Hjólað í crossfitform Hressir hjól- reiðakappar úr hjólacrossfit hópi CFRvk. CROSSFIT NÝTUR SÍFELLT VAXANDI VINSÆLDA Á ÍSLANDI OG HEFUR FJÖLDI IÐKENDA MARGFALDAST Á EINUM ÁRATUG. HJÓLREIÐAR HAFA EINNIG VERIÐ AÐ SÆKJA Í SIG VEÐRIÐ OG ERU ÍSLENDINGAR FARNIR AÐ FERÐAST MEIRA UM Á HJÓLINU OG ÞÁ SÉR- STAKLEGA YFIR SUMARTÍMANN. NÚ HEFUR HINS VEGAR VERIÐ KOMIÐ Á FÓT HJÓLA- CROSSFITÆFINGUM HJÁ CROSSFIT REYKJAVÍK OG GETA HJÓLREIÐAMENN SEM EKKI TREYSTA SÉR TIL AÐ HJÓLA ALLT ÁRIÐ UM KRING ÚTI SÓTT INNIÆFINGATÍMA Í HJÓLA- CROSSFIT YFIR VETURINN OG ÆFT ÚTI Á SUMRIN. Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Tungumálakunnátta er nauðsynleg í því alþjóðaumhverfi sem við hrærumst mörg í. Nú hefur verið sýnt fram á það að fullorðið fólk sem tekur sig til og lærir nýtt tungumál hægir á öldrun heilans. Það eru því ekki bara stærðfræðiþrautir sem þjálfa heilann heldur einnig tungumála- kennsla sem að auki gerir okkur skiljanlegri fyrir stærra hlutfall mannkynsins. Lærum nýtt tungumál Fjallgöngur eru stórkostleg leið til upplifa náttúrufegurð Íslands um leið og við bætum andlega og líkamlega heilsu okkar. Fyrir utan aukið þol og styrk losnar úr læðingi orka sem kallar á endorfínáhrif en það er vellíðunar- hormón líkamans. Í rólegri náttúrunni kemst fólk einnig frá erli dagisns og út í ferskt fjalla- loftið. Hluti af fjallgöngum er einnig að sigrast á áskorunum en það veitir okkur aukið sjálfs- traust til að takast á við nýjar áskoranir í lífinu og setja okkur háleitari markmið. Fjallgöngur eru heilsusamlegar og skemmtilegar og um að gera að byrja rólega og vinna sig upp í stærri og erfiðari tinda. NÝTUM NÁTTÚRUNA Í KRINGUM OKKUR RÉTT Heilsurækt á fjöllum Mikill áhugi á fjallgöngum og göngum um Ísland er engin tilviljun enda eftir mörgu að sækjast. Morgunblaðið/Eyþór Ráðlagt er að borða fimm skammta af græn- meti og ávöxtum á dag eða a.m.k. 200 grömm af ávöxtum og 200 grömm af grænmeti. Íslend- ingar uppfylla ekki þessa lág- markskröfu þrátt fyrir að neysla ávaxta og græn- metis hafi aukist á und- anförnum árum. Rífleg neysla grænmetis og ávaxta getur haft já- kvæð áhrif á þyngdarstjórn þar sem við fáum mettunar- tilfinningu eftir að hafa borðað ann- aðhvort grænmeti eða ávexti. Einnig hjálpar það meltingunni að fá trefjaríkar fæðu- tegundir og sætuefnið í ávöxtum er góður kost- ur í stað sælgætis eða matvöru með viðbættum sykri. Hollusta ávaxta er ekki síður fólgin í fjölda nauðsynlegra efna svo sem ýmissa vítamína t.d. C- og E- vítamíns; annarra efna á borð við kalíum, magnesímum, an- doxunarefni, karótenóíð og trefjar. Venjum okkur á að borða nokkra skammta af ávöxtum og grænmeti á dag og höfum valið fjölbreytilegt. NÁUM EKKI RÁÐLÖGÐUM DAGSKAMMTI Meira af ávöxtum og grænmeti

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.