Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Page 29
8.6. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
G D a l s b r a u t 1 • A k u r e y r i OP I Ð V i r k a d a g a k l 1 0 – 1 8 o g l a u g a r d a g a 1 1 - 1 6 E I T T S Í M ANÚME R 5 5 8 1 1 0 0
– fyrir lifandi heimili –
NÝ OG FALLEG DRAUMAHÖLL
S
igríður Sigurjónsdóttir stofn-
aði galleríið Spark árið
2010. SPARK er gallerí þar
sem hver sýning er uppi í
tvo til þrjá mánuði í senn og eftir
það eru vörurnar sem sýndar eru á
sýningunni seldar áfram í SPARKI.
Þann- ig safnast nokkurnskonar
búð af áhugaverðum hönn-
unarvörum . „Fyrsta sýningin sem
var haldin í SPARKI var ilmvatns-
sýning Andreu Maack. Þá var rým-
ið tómt og því breytt og gert eins
og nokkurnskonar ilmvatnsbúð.
Við kynnum síðan þessa þrjá ilmi
sem Andrea hafði þróað ásamt ilm-
vatnsgerðamanni í Grass í frakk-
landi. Hún vinnur þannig að hún
sendir teikningarnar sína út til
frakklands og þessi ilmvatnsgerð-
armaður túlkar teiknigarnar í ilm.
Þannig hafa þau innið áfram og er
þetta orðið stórt apparat hjá and-
reu og eru ilmvötnin seld í yfir 80
löndum. Þetta verkefni hefur síðan
stækkað og eflst síðan. Þegar sýningunni lauk voru
ilmvötnin færð hingað á afgreiðsluborðið og við opn-
uðum næstu sýningu sem var Vík Prjónsdóttir,svo er
þetta bara svona koll af kolli. Smám saman verður
galleríið meira og meira eins og búð,“ segir Sigríður.
Sigríður, sem starfaði sem prófessor í vöruhönnun
við Listaháskóla Íslands í sjö ár, segir hugmyndina
að gallerýinu hafa kviknað í skólanum.
„Það sem að gerðist var það að ég kynntist auðvit-
að bæði samstarfsfólki og nemendum í skólanum og í
gegn- um þetta fólk vissi ég af svo mikið af spenn-
andi verkefnum, bæði sem fólk var að vinna í, jafnvel
búið að gera og svo var líka fullt af verkefnum í
skólanum sem var búið að gera frumgerðir af. Einnig
voru kollegar mínir að vinna verk, eins og Guð-
mundur Oddur og Linda Björg, sem var yfir fata-
hönnunardeildinni.
Mér fannst erfitt að sjá öll þessi tækifæri og þessa
möguleika sem oft voru ekki kláruð því það var ekki
farvegur fyrir þau eða ástæða til að klára þau alveg,“
segir Sigríður og bætir við að það sé stórt skref að
taka frumgerð og þróa úr henni vöru sem á að vera
tilbúin á markað.
SPARK var því hugsað sem nokkurnskonar stökk-
pallur fyrir framúrksarndi verkefni.
„Mér fannst vanta stað fyrir vöruhönnun, graf-
ískahönnun, textíl, matahönnun, ilmvötn skrítið að
segja ilmvötn og önnur til- raunaverkefni og hug-
myndir sem í SPARKI er hægt að gera góð skil. Við
erum alltaf að kynna ný verkefni sem að eru gjarnan
nýsköpunartengd.“ Sigríður hlaut í vikunnu sem leið
tveggja milljón króna styrk úr hönnunarsjóði sem
verður nýttur í byggja upp með- vitund, auglýsa
heimasíðu fyrirtæksins og auka söluna í gegnum net-
iðbúð Sparks „Við höfum ekkert auglýst síðuna og nú
er komin tími til þess að gera rassíu í því. Það er
verkefnið sem við erum að fara í núna. Þannig get-
um við aukið útflutning enda komin með svo fínt
safn af vörum sem að við höfum verið að selja en við
get- um gert mikið betur. (smá skrítið) Við erum að
fókusera á íslenska hönnun en erum þó með erlenda
gesti einu sinni á ári,“ segir Sigríður að lokum.
Þórunn Árnadóttir
hannaði meðal annars
sippuböndin Sipp og Hoj
sem seld eru í Spark.
Fallegar hönnunarvörur á neðri hæð hússins. Þar gefst fólki
kostur á að kynna sér verk úr fyrri sýningum gallerísins.
Frumgerð af fatahengi úr sýningunni, Í
þínar hendur - þrívíð sköpun og tækni.
Sigríður Sigurjónsdóttir eigandi Spark Design Space.
Stökkpallur fyrir fram-
úrskarandi verkefni
SIGRÍÐUR SIGURJÓNSDÓTTIR HLAUT Í VIKUNNI STYRK FRÁ HÖNNUNARSJÓÐI FYRIR
MARKAÐS- OG KYNNINGARÁTAK SPARK DESIGN SPACE. SIGRÍÐUR SEGIR HUGMYNDINA
AÐ GALLERÍINU HAFA KVIKNAÐ Í LISTAHÁSKÓLA ÍSLANDS.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
* „Mér fannst vantastað fyrir vöruhönnun,
grafíska hönnun, textíl,
matarhönnun, ilmvötn og
önnur tilraunaverkefni og
hugmyndir sem í Spark er
hægt að gera góð skil.“
VILJUM AUKA ÚTFLUTNING Á ÍSLENSKRI HÖNNUN