Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Síða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.6. 2014
Úttekt
S
enuþjófar hafa verið fjöl-
margir á HM gegnum
tíðina. Knattspyrna er
leikur liðsheildarinnar
en eigi að síður eru
dæmi um að einstakir leikmenn hafi
borið heilu liðin á herðum sér í átt
að bikarnum. Fyrst koma upp í
hugann Garrincha og Brasilía 1962,
Pelé og Brasilía 1970 og Diego
Maradona og Argentína 1986. Téðir
menn eiga þessi mót með húð og
hári. Það er helst að Pelé hafi feng-
ið stuðning frá félögum sínum í
þunna loftinu í Mexíkó enda Brasilía
annó 1970 af mörgum talið besta
knattspyrnulið allra tíma.
Argentínumaðurinn Mario Kemp-
es átti kannski ekki mótið 1978 en
framlag hans var afgerandi. Sömu
sögu má segja af Ítalanum Paolo
Rossi fjórum árum síðar og Bras-
ilíumanninum Romário 1994.
Ekki fer alltaf saman hljóð og
mynd, eins og karlinn sagði, og
besti leikmaður mótsins hefur ekki
alltaf komið úr röðum sigurliðsins.
Fræg dæmi um það eru Ungverjinn
Ferenc Puskás 1954 og Hollending-
urinn Johan Cruyff 1974. Flestir
geta verið sammála um að fram-
ganga þeirra á þeim mótum hafi
verðskuldað heimsmeistaratign.
Það er raunar merkilegt að á síð-
ustu fjórum mótum hefur besti
maðurinn í þrígang komið úr silf-
urliðinu og einu sinni liðinu sem
hafnaði í fjórða sæti. Úrúgvæinn
Diego Forlán í Suður-Afríku 2010.
Þykkur skuggi
Ætli dagar erkispyrnisins séu jafn-
vel taldir á HM? Það er að segja
manna sem bera höfuð og herðar
yfir samherja sína. Argentínska
undrið Lionel Messi og portúgalska
séníið Cristiano Ronaldo hafa alltént
átt erfitt uppdráttar á HM til þessa.
Verður breyting þar á í sumar?
Ýmsir halda því fram að Messi og
mögulega þeir Ronaldo báðir standi
bæði Pelé og Maradona framar en
dræmt gengi þeirra á HM varpar
eigi að síður þykkum skugga á ann-
ars makalausan árangur þessara
dáðadrengja.
Pelé, Maradona og Garrincha
voru nefndir í sömu andrá hér að
framan. Tvær helstu hetjur spark-
sögunnar og svo maður sem mörg-
um er nú gleymdur.
Garrincha, eða „Litli fuglinn“,
eins og hann var gjarnan kallaður,
tók þátt í þremur heimsmeistara-
mótum með brasilíska landsliðinu,
1958, 1962 og 1966. Hann brilleraði
á tveimur fyrri mótunum, sérstak-
lega í Síle 1962 eftir að Pelé gekk
úr skaftinu vegna meiðsla. Eftir að
hafa tætt Spánverja og Englendinga
í sig skipti Garrincha enn um gír
gegn heimamönnum í undanúrslit-
unum. Honum héldu engin bönd í
4:2-sigri. Eftir leikinn spurðu fjöl-
miðlar agndofa: „Frá hvaða plánetu
er Garrincha?“
Aðrir sáu um markaskorun í úr-
slitaleiknum gegn Tékkóslóvakíu en
það var aðeins einn maður mótsins
– „Litli fuglinn“.
Hann skoraði ekki bara mörk,
heldur lagði þau upp líka. Það var í
raun hans sérgrein. Flinkari leik-
maður er vandfundinn í sögunni og
Garrincha hefði ekki sómt sér síður
í sirkus en á knattspyrnuvelli. Fátt
færði honum meiri unað en að fífla
andstæðinga sína á hægri vængn-
um, leika jafnvel á þá aftur – og aft-
ur. Svo þeir rötuðu ekki heim á eft-
ir. Minntu tilburðirnir á köflum á
nautaat enda er hermt að hvatning-
arópið fræga „ólé, ólé“, sem Spán-
verjar hafa löngum sungið nauta-
bönum sínum til dýrðar, hafi fyrst
heyrst á knattspyrnuvelli, þar sem
Garrincha lék listir sínar.
Kappanum gekk mun verr að fóta
sig utan vallar. Kvennamál hans
voru alræmd og er hann sagður
eiga fjórtán börn – hið minnsta. Þar
af átta stúlkur með fyrstu eiginkonu
sinni. Hjákonurnar voru fjölmargar.
Garrincha varð ungur alkóhólism-
anum að bráð og var um tíma sett-
ur út úr landsliðinu vegna ólifnaðar.
Eftir að hann lagði skóna á hilluna
sneri hann sér alfarið að flöskunni.
Og varð ekki bjargað. Garrincha
lést árið 1983, 49 ára að aldri. Bana-
mein hans var skorpulifur.
Með her á herðunum
TUTTUGASTA HEIMSMEISTARAMÓTIÐ Í KNATTSPYRNU HEFST Í BRASILÍU Á FIMMTUDAGINN. AF ÞVÍ TILEFNI RIFJAR SUNNUDAGSBLAÐIÐ UPP ÝMSAR
SÖGULEGAR STAÐREYNDIR OG VELTIR VÖNGUM YFIR HINUM OG ÞESSUM KEMPUM SEM YLJAÐ HAFA SPARKELSKUM Á FYRRI MÓTUM.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Diego Armando
Maradona með
heimsbikarinn í
Mexíkó 1986.
Action Images / Sporting Picture
Garrincha á harðakani upp kantinn.
HM staðreyndir
Mót Heimsmeistari Bestur Markakóngur Mörk
1930 Úrúgvæ Úrúgvæ José Nasazzi, Úrúgvæ Guillermo Stábile, Argentínu 8
1934 Ítalía Ítalía Giuseppe Meazza, Ítalíu Oldrich Nejedlý,Tékkóslóvakíu 5
1938 Frakkland Ítalía Leônidas, Brasilíu Leônidas, Brasilíu 7
1950 Brasilía Úrúgvæ Zizinho, Brasilíu Ademir, Brasilíu 8
1954 Sviss Vestur-Þýskal. Ferenc Puskás, Ungverjaland Sándor Kocsis, Ungverjaland 11
1958 Svíþjóð Brasilía Didi, Brasilía Just Fontaine, Frakkland 13
1962 Síle Brasilía Garrincha, Brasilía FlóriánAlbert, Ungverjaland 4
Valentin Ivanov, Sovétríkin 4
Garrincha, Brasilía 4
Vavá, Brasilía 4
Leonel Sánchez, Chile 4
Dražan Jerkovic, Júgóslavía 4
1966 England England Bobby Charlton, England Eusébio, Portúgal 9
1970 Mexíkó Brasilía Pelé, Brasilía Gerd Müller,V-Þýskaland 10
1974 V-Þýskaland Vestur-Þýskal. Johan Cruyff, Holland Grzegorz Lato, Pólland 7
1978 Argentína Argentína Mario Kempes, Argentína Mario Kempes, Argentína 6
1982 Spánn Ítalía Paolo Rossi, Ítalía Paolo Rossi, Ítalía 6
1986 Mexíkó Argentína Diego Maradona, Argentína Gary Lineker, England 6
1990 Ítalía Vestur-Þýskal. Salvatore Schillaci, Ítalía Salvatore Schillaci, Ítalía 6
1994 Bandaríkin Brasilía Romário, Brasilía Oleg Salenko, Rússland 6
Hristo Stoichkov, Búlgaría 6
1998 Frakkland Frakkland Ronaldo, Brasilía Davor Šuker, Króatía 6
2002 Japan/S-Kórea Brasilía Oliver Kahn, Þýskaland Ronaldo, Brasilía 8
2006 Þýskaland Ítalía Zinedine Zidane, Frakkland Miroslav Klose, Þýskaland 5
2010 Suður-Afríka Spánn Diego Forlán, Úrúgvæ Thomas Müller, Þýskaland 5