Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Síða 54

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Síða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.6. 2014 Menning Þ eir eru dauðir. Dregnir á land og hengdir upp til þurrkunar. Samt stara þeir, brostnum og jafnvel reiðilegum augum. Tár sést á hvarmi. „Ég er fyrst að sjá myndirnar allar sam- an núna. Þetta verður eins og miðils- fundur,“ segir Rúnar Gunnarsson og brosir í kampinn. Við erum staddir í Gallery Bak- aríi á Skólavörðustígnum og ljósmyndarinn er að hengja upp sýningu sína, Framliðnir fiskar, sem nú er opin almenningi. Á sýn- ingunni eru 22 myndir og verða aðeins gerð þrjú eintök af hverri. Augun er mörg hver allsvakaleg og greinilegt að Rúnar hefur hugsað út fyrir rammann. „Sennilega er það einhver klikk- un að tengjast þessum augum. Hver veit?“ segir hann hlæjandi. Rúnar trúir mér fyrir því að hann sé að brjóta reglur. „Maður á ekki að manngera dýr. Hvað þá framliðin dýr. Samt læt ég mig hafa það að þessu sinni. Þetta eru bara portrett – eins og af hverjum öðrum góðborgara.“ Í því gengur ókunnugur maður gegnum rýmið. „Hér er allt fullt af fiski,“ hefur hann á orði. Já, það er sannarlega mokveiði. Og það á miðjum Skólavörðustígnum. Er þetta sannur heimur? Rúnar segir verkin vekja spurningar um eðli ljósmyndarinnar. „Hversu raunveruleg- ur leikur er ljósmyndin? Er þetta sannur heimur? Hver er trúverðugleiki sýnarinnar og mörk þessarar skynjunar?“ spyr hann. Svari nú hver fyrir sig! Spurður hvort hann búi sjálfur að svari hristir Rúnar höfuðið. „Því meira sem ég velti þessu fyrir mér þeim mun ruglaðri verð ég. En gildir það svo sem ekki einu? Er ekki nóg að einhver stoppi við ljósmynd og upplifi hana? Á sinn hátt. Er þá ekki tilganginum náð?“ Hann heldur áfram með pælinguna. „Ég hef ekki formúluna enda væri það örugg- lega ekkert gaman. Þá þyrfti maður ekki að leita lengur. Ljósmyndin stöðvar heim- inn – sem annars færi á hraðferð framhjá eins og strætisvagn. Stundum eru ein- hverjir töfrar án þess að maður viti af hverju. Og þarf ekkert endilega að vita það.“ Rúnar hefur myndað fiskitrönur um langt árabil, ekki síst á Ægisíðunni meðan þær var þar að finna. Heillaðist af forminu. Í seinni tíð hefur hann mest myndað mótífið í Hafnarfirði. Lengst af snerust þessar myndatökur um trönurnar. Þar til dag einn. „Allt í einu fannst mér fiskarnir stara á mig,“ útskýrir hann. „Þá fór ég að mynda út frá augunum og úr varð þetta konsept. Framliðnir fiskar. Ætli ég hafi ekki verið um þrjá mánuði að safna þessu myndefni.“ Fjórða sýningin á 45 árum Spurður um tengingu sína við fiskinn og hafið viðurkennir Rúnar að hann hafi aldrei verið til sjós. „Ég er hins vegar ættaður úr Aðalvík, þar sem lífið snerist um sjóinn, og alinn upp við að borða þorskhausa. Pabbi byggði gamla hjallinn á Nesinu, sem löngu er orðinn víðfrægur, ásamt tveimur öðrum. Það er synd að trönurnar séu horfnar það- an og af Ægisíðunni.“ Þetta er fjórða sýning Rúnars og teygja þær sig yfir hálfan fimmta áratug. Fyrstu sýninguna hélt hann í Unuhúsi 1969, þá næstu í Galleríi Sólon Íslandus við Aðal- stræti 1977 og þá þriðju á Mokka snemma á þessari öld. Á fyrri sýningunum tveimur var mannlíf ljósmyndaranum hugleikið en á Mokka hverfðust myndirnar um girðingar og hindranir. Rúnar lærði ljósmyndun hjá Guðmundi Erlendssyni og síðar í Brooks Institute of Photography í Kaliforníu. Aðeins nítján ára var hann ráðinn til starfa sem frétta- ljósmyndari á Alþýðublaðinu og eftir það varð ekki aftur snúið. Rúnar hóf störf hjá Ríkissjónvarpinu við stofnun þess 1966 og vann þar í rúma fjóra áratugi sem kvik- myndatökumaður, upptökustjóri, fram- kvæmdastjóri og dagskrárstjóri. Lagði samt aldrei ljósmyndavélina frá sér. „Það var helst að ég gerði hlé þegar stafræna tæknin kom fram á sjónarsviðið. Mér leist ekkert á þá tækni til að byrja með. Það breyttist þó fljótt, stafrænu tækninni fleygði fram og í dag er hún al- gjör draumur. Að vísu hélt ég fyrst um sinn áfram að spara „filmuna“ en eins og gefur að skilja hefur það enga þýðingu,“ segir hann hlæjandi. „Núna ýtir maður bara á einn takka og allt sem maður kærir sig ekki um að halda upp á er farið. Það er ágæt regla að gera það vikulega.“ Allt í einu störðu fisk- arnir á mig FRAMLIÐNIR FISKAR ER YFIRSKRIFT LJÓSMYNDASÝNINGAR SEM RÚNAR GUNNARSSON HEFUR OPNAÐ Í GALLERY BAKARÍI Á SKÓLAVÖRÐUSTÍG 40. ÞAR BRÝTUR RÚNAR ÓSKRÁÐA REGLU, MANNGERIR DÝR. MEIRA AÐ SEGJA DAUÐ DÝR. „ÞETTA ERU BARA PORTRETT – EINS OG AF HVERJUM ÖÐRUM GÓÐBORGARA,“ SEGIR LJÓSMYNDARINN UM VERK SÍN. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is „Sennilega er það einhver klikkun að tengjast þessum augum,“ segir Rúnar Gunn- arsson ljósmyndari um fiska- myndirnar. Götuljósmyndun hefur lengi verið áhugamál hjá Rúnari. Þessi mynd var á sýningu sem hann hélt í Galleríi Sólon Íslandus 1977. „Í blaðaljósmyndun er óhjákvæmilegt að mynda fólk,“ segir hann.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.