Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Page 57

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Page 57
8.6. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57 Rás 1 Ríkisútvarpsins og Listasafn Íslands frumflytja samtímis á hvítasunnudag klukkan 14 útvarpsþáttinn „Píanó: Fúga fyrir undirbúin píanó“. Þátturinn er unninn í samstarfi við Listahátíð og sýninguna Píanó undir stjórn Tinnu Þorsteinsdóttur. 2 Í blíðunni á hvítasunnudag er kjörið að heimsækja bæ- inn Krók á Garðaholti í Garðabæ, á leiðinni út á Álftanes. Krókur er lítill bárujárns- klæddur burstabær sem var endur- byggður úr torfbæ árið 1923. Þar er starfrækt safn á sumrin og opið á sunnudögum kl. 13 til 17. 4 Nimrod Ron heldur út- skriftartónleika í Salnum á sunnudag kl. 19.30. Hann er að ljúka BMus-námi í túbuleik í tónlistardeild Listaháskóla Íslands. Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt en m.a. verða frumflutt tvö verk. 5 Hinni athyglisverðu sýningu „Hnallþóra í sólinni, úrval prent- og bókverka eftir Dieter Roth (1930-1998)“ lýkur í Hafnarborg á mánudag. Á sýn- ingunni er lögð áhersla á framlag Dieters Roth til prentmiðilsins, sem hann hafði mikinn metnað fyrir. Sýnd eru grafík- og bókverk frá árunum 1957-1993. Sýningarstjóri er Björn Roth. 3 Hljómsveitin Myndra heldur útgáfutónleika í Norræna hús- inu á laugardagskvöld klukkan 20 og kynnir efni af nýrri plötu, „Songs From Your Coll- arbone“. Nokkrir vinir stækka hljóm- sveitina og kunna þetta að vera síð- ustu tónleikar sveitarinnar. MÆLT MEÐ 1 Blásarakvintett Reykjavíkur kemur framá stofutónleikum á Gljúfrasteini ásunnudag og hefjast þeir klukkan 16. Tónleikana kallar kvintettinn „Rapp og ridd- arar á Skerplu“ og á efnisskránni eru „La cheminée du roi René“ eftir Darius Milhaud, „Íslenskt rapp - Rondo fantastico“ eftir Atla Heimi Sveinsson og „Fornir ungverskir dansar“ eftir Farkas. Titill tónleikanna vísar til rapps Atla Heimis og kvintetts Dariusar Milhaud, en hann fjallar um miðaldarómantík og ridd- aramennsku. Annar mánuður í sumri eða skerpla hófst 24. maí og lýkur 23. júní. Blásarakvintett Reykjavíkur skipa þau Hallfríður Ólafsdóttir á flautu, Daði Kol- beinsson á óbó, Einar Jóhannesson klarín- ettuleikari, Jósef Ognibene á horn og Darri Mikaelsson fagottleikari. „Það er komið nýtt blóð í kvintettinn, Hallfríður og Darri á flautu og fagott,“ segir Einar sem er einn stofnfélaganna. „Við höfð- um komið okkur upp mjög persónulegum stíl, sem ekki er alltaf hægt að halda sig við og hann kemur til með að breytast eitthvað. Hvað hljómheiminn varðar höfum við oft hugsað út fyrir kammermúsíkrammann og höfum hljómað eins og lítil hljómsveit en með nýju fólki kemur nýr kraftur. Við öld- ungarnir yngjumst allir upp við það,“ segir hann og hlær. Einar segir kvintettinn ekki æfa reglulega. „En í mörg ár gerðum við það og lögðum ótrúlega mikla vinnu í að búa til þennan kvintett sem ferðaðist út um allan heim og hafði þennan sérstaka hljóm. Nú komum við saman fyrir einstök verkefni. Við þrír sem erum eftir búum að því sem við æfðum upp, höfum í raun geipilega víð- feðma efnisskrá, en Hallgerður og Darri verða að setjast niður og læra,“ segir hann. Hvað efnisskrá tónleikanna á sunnudag varðar segist Einar hafa tekið að sér að setja hana saman og hafi hann síðan tilkynnt þeim hinum hver hún væri. „Varðandi tit- ilinn hafði ég rappið hans Atla Heimis í huga, en það hefur kvintettinn ekki leikið í nokkur ár, auk árstíðarinnar. Stykkið eftir Milhaud hefur fylgt okkur lengi en við höf- um heldur ekki leikið það lengi og það er gaman að rifja það upp með nýja fólkinu. Þá endum við á dýrðlegri þjóðlagatónlist eftir Farkas.“ Blásarakvintett Reykjavíkur var stofnaður 1981. Hann er einn virtasti kammerhópur landsins og hefur borið hróður íslenskrar tónmenningar víða um lönd. Hópurinn hefur haldið tónleika í mörgum Evrópulöndum, í Bandaríkjunum, Asíu og Ástralíu. Mörg tón- skáld hafa samið verk sérstaklega fyrir hóp- inn og hin virtu hljómplötufyrirtæki Chandos og BIS hafa gefið út leik kvintettsins og dreift víða. Blásarakvintett Reykjavíkur var tilnefndur til Tónlistarverðlauna Norður- landaráðs árið 1995 og var opinber kamm- erhópur Reykjavíkurborgar 1998 til 2000. BLÁSARAKVINTETT REYKJAVÍKUR LEIKUR Á GLJÚFRASTEINI Kvintettinn með nýju blóði NÝIR BLÁSARAR HAFA TEKIÐ SÉR STÖÐU Í HINUM REYNSLUMIKLA BLÁSARAKVINTETT REYKJAVÍKUR. ÞAU KOMA FRAM Á SUNNUDAG. Blásarakvintett Reykjavíkur eins og hann er skipaður í dag. Hann hefur leikið víða um lönd á síðustu áratugum, við góðar undirtektir. en félagar hennar búa hins vegar víða um Evrópu og koma saman í „æfingabúðum“ og tónleikaferðum, en flest eru þau í slíkum ferðum í yfir 150 daga ár hvert. „Þetta verður fyrsta heimsókn okkar flestra til Íslands. Við erum spennt. Mikið hefur verið rætt um ferðina innan hópsins,“ segir franski fiðluleikarinn Geffroy Chied, einn stofnfélaga MCO. Undir það tekur þýski fiðluleikarinn Henja Semmler þegar blaðamaður ræðir við þau fyrir tónleika í Bergen. „Já, það er spenningur í hópnum. Margir vina minna hafa komið til Íslands og sumir voru svo hrifnir að þeir hugleiddu að flytja til landsins!“ segir hún og brosir. Þegar spurt er hvort lagt hafi verið upp með það við stofnun hljómsveitarinnar að hún myndi ferðast þetta mikið segja þau að markmiðið hafi verið að spila saman og til að geta gert það urðu þau að ferðast. „Starf hljómsveitarinnar snýst um verk- efni,“ segir Chied. „Við komum saman til að ráðast í ákveðin verkefni sem hafa verið vel undirbúin og ferðirnar eru hluti af þeim. Við förum að heiman og er gert kleift að einbeita okkur á ferðalögum að því sem við gerum best; ég tel það mikilvægt fyrir hljómsveitina hvað við náum góðri einbeit- ingu á verkefnin á ferðalögunum.“ Þau segja að á æfingatímabilum starfi þau venjulega sem gestir í tónlistarhúsum, oft til að mynda í Ferrera á Ítalíu þar sem komið hefur fyrir að þau séu tvisvar til þrisvar á ári; þar þekki þau orðið tónleikasalinn afar vel og áheyrendur. „Nú förum við að koma þrisvar á ári til Íslands,“ segir Semmler hlæjandi. Þau segja hljómsveitina byggða upp eins og lítið lýðveldi, þar sem allir hafa jafnan atkvæðisrétt og eru mjög samtaka. Þar fyrir utan hafi listræn markmið haldið hópnum saman í nær tvo áratugi. „Það er tónlistin sem er mikilvægust; æf- ingarnar og tónleikarnir. Við getum rifist um smáatriði en þegar allt kemur til alls er það ástin á tónlistinni sem heldur okkur saman. Við viljum miðla þeirri ástríðu og tónverk- unum sem við leikum til áheyrenda. Það er áhrifaríkt og alltaf jafnspennandi,“ segir hún. Chied bætir við: „Ekkert leysir upplifun á tónleikum af hólmi. Hljóðritanir hafa alltaf verið fyrir mér eins og skuggar eða minn- ingar. Fólk þarf að heyra og sjá tónlistar- menn, þannig er best að njóta tónlistar.“ Tónleikagestir hylltu Mahler Chamber Orchestra og einleikarann Leif Ove Andsnes hressilega, með klappi og hrópum, eftir tónleika í Bergen. Morgunblaðið/Einar Falur „Það er tónlistin sem er mikilvægust,“ segja Henja Semmler og Geoffrey Chied. Morgunblaðið/Einar Falur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.