Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Síða 59

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Síða 59
8.6. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59 Í sálfræðitryllinum Öngstræti (Apple Tree Yeard) eftir Louise Doughty segir frá Yvonne sem er erfðafræðingur, gift og tveggja barna móðir. Hún hittir ókunnugan mann og fyrr en var- ir eiga þau í eldheitu ástar- sambandi. Það samband hrindir af stað ófyrirsjáanlegum og skelfilegum afleiðingum fyrir þau bæði. Bókin hefur hlotið mjög góða dóma erlendis. New York Tim- es sagði til dæmis að frásögnin væri meistaralega spunnin og bókin skrifuð af miklu sál- fræðilegu innsæi. Guardian sagði að höfundi tækist frábær- lega að draga upp mynd af hversdagslegum harmleik. Sálfræðitryllir um framhjáhald Ný ævisaga Eleanor Marx, dóttur Karls Marx, er komin út í Bretlandi. Bókin nefnist einfaldlega Eleanor Marx: A Life og er eftir Rachel Hol- mes. Bókin þykir hin athyglisverðasta og vera bæði grípandi og vel sögð, en ævi Eleanor var einkar við- burðarík og um leið harmræn. Eleanor lést árið 1898, 43 ára. Einhverjir fjöl- skyldumeðlima og vina Eleanor töldu að hinn ótrúi og óheiðarlegi ástmaður hennar, Edward Aveling, hefði myrt hana. Hegðun hans eftir dauða hennar þótti afar einkennileg og hann var staðinn að lygum við réttarrannsókn. Almennt hefur þó verið talið að Eleanor hafi fyrirfarið sér eftir að hafa frétt að ástmaður hennar hefði leynilega gifst ungri leik- konu. Eleanor var merkileg kona á sinni tíð, hún þýddi hina frægu skáldsögu Gustaves Flauberts, Frú Bovary, á ensku fyrst allra og hún var einlægur aðdáandi verka Henriks Ibsens. Hún var gall- harður sósíalisti og kvenfrelsiskona og beitti sér í verkalýðsmálum. Hún vann árum saman af mikilli fórnfýsi fyrir föður sinn sem ritari og lagðist einnig í mikla rannsóknarvinnu fyrir hann. Hún hóf ritun ævisögu föður síns en lauk ekki við hana. Eleanor Marx átti við- burðaríka ævi en ekki að sama skapi hamingjuríka. SAGA SANNRAR BARÁTTUKONU Von er á tveimur ljóðabókum frá Forlaginu í júní en það eru bækurnar Kisan Leónardó og önnur ljóð eftir Véstein Lúðvíksson og Hverafuglar eftir Einar Georg. Vé- steinn Lúðvíksson hefur á umliðnum áratug verið ötull að senda frá sér ljóðabækur sem vakið hafa athygli, en fyrrum var hann þekkt- astur fyrir skáldsögur sínar, smásögur og leik- rit. Ljóð Einars Georgs þekkja flestir Íslend- ingar þótt þeir geri sér ef til vill ekki grein fyrir því. Einar Georg er faðir tónlistarmann- anna Ásgeirs Trausta og Þorsteins í Hjálmum og hafa þeir bræður báðir samið lög við texta Einars sem hljómað hafa í eyr- um landsmanna. Ásgeir Trausti myndskreytir einnig Hverafugla. Varla er annað hægt en að tala um sannkallað ljóðasumar hjá Forlaginu en á undanförnum mánuðum hafa komið út nýjar ljóðabækur eftir Þórarin Eldjárn (Tautar og raular) og Anton Helga Jónsson (Tvífari gerir sig heimakom- inn). Auk þeirra kom út heildarsafn ljóða Gerðar Kristnýjar og úrval ljóða Steins Steinars var endurútgefið. GJÖFULT LJÓÐASUMAR Hverafuglar er ljóðabók eftir Einar Georg sem er faðir Ásgeirs Trausta og Þorsteins í Hjálmum. Þessi týpa eftir Björgu Magn- úsdóttur er sjálfstætt framhald fyrri bókar höfundar Ekki þessi týpa og söguhetjurnar eru sem fyrr vinkonurnar Bryndís, Reg- ína, Inga og Tinna. Í bókinni blandast saman gaman og al- vara og Björg fjallar meðal ann- ars um vináttu, kynhneigð og kynferðisofbeldi. Fyrri bók hennar Ekki þessi týpa fékk ágætar viðtökur og þeir sem lásu hana sér til ánægju munu örugglega líka lesa þessa. Framhald af bók um vinkonur Spennutryllir, týpur og úrval af því besta NÝJAR BÆKUR BJÖRG MAGNÚSDÓTTIR SENDIR FRÁ SÉR SKÁLD- SÖGU SEM ER FRAMHALD AF FYRSTU BÓK HENNAR. ERLENDUR SPENNUTRYLLIR ER KOMIN Á ÍSLENSKU OG SÖMULEIÐIS NÝ BÓK Í SERÍUNNI GAME OF THRONES. ÞRJÁR BÆKUR HAFA SVO BÆST VIÐ HINA VINSÆLU GJAFABÓKASERÍU FOR- LAGSINS. Sverðagnýr eftir George R.R. Martin er hluti af sagnabálkinum Game of Thrones, en eins og kunnugt er njóta samnefndir sjónvarpsþættir gríðarlegra vin- sælda víða um heim, en þeir eru meðal annars teknir upp á Ís- landi. Baráttan um Járnhásætið hefur aldrei verið ofsafengnari og grimmilegri en í þessari bók þar sem spenna og óvænt at- burðarás halda lesandanum við efnið. Grimmileg barátta um hásætið Þrjár nýjar bækur eru komnar út í hinni fallegu gjafa- bókaseríu Forlagsins en Alexandra Buhl sér þar um útlitshönnun. Íslenskir málshættir og snjallyrði er ein þessara bóka og Nanna Rögnvaldardóttir valdi. Íslenskar úrvalsstökur og íslensk úrvalsljóð eru hin- ar tvær og þar er það Guðmundur Andri Thorsson sem sá um valið. Þetta eru einstaklega fallegar bæk- ur og upplagðar til gjafa. Fallegt og vandað úrval * Ég er bara maður. Það er svo sem nógumikil köllun. Pär Lagerkvist BÓKSALA 28. MAÍ-3. JÚNÍ Allar bækur Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Þessi týpaBjörg Magnúsdóttir 2 Iceland Small World - lítilSigurgeir Sigurjónsson 3 Frosinn - þrautirWalt Disney 4 Íslenskar þjóðsögurBenedikt Jóhannesson/Jóhannes Benediktsson tóku saman 5 Gæfuspor - gildin í lífinuGunnar Hersveinn 6 Eldað með EbbuEbba Guðný Guðmundsdóttir 7 ÖngstrætiLouise Doughty 8 Íslenskir málshættir og snjallyrðiNanna Rögnvaldardóttir valdi 9 Stjörnurnar á HMIllugi Jökulsson 10 Íslensk orðsnilldIngibjörg Haraldsdóttir valdi Kiljur 1 Þessi týpaBjörg Magnúsdóttir 2 ÖngstrætiLouise Doughty 3 LífsmörkAri Jóhannesson 4 DægradvölBenedikt Gröndal 5 Síðasta orðsending elskhugansJojo Moyes 6 ParadísarfórnKristina Ohlsson 7 Húsið við hafiðNora Roberts 8 Eða deyja ellaLee Child 9 Stúlkan frá Púertó RíkóEsmeralda Satiago 10 HHhHLaurent Binet MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR Ekki er ráð nema í tíma sé tekið.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.