Morgunblaðið - 13.11.2014, Page 6

Morgunblaðið - 13.11.2014, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2014 Kjartan Kjartansson Björn Jóhann Björnsson Gísli Freyr Valdórsson, fv. aðstoð- armaður innanríkisráðherra, var í gær dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðs- dómi Reykjavíkur fyrir að hafa í nóvember í fyrra lekið minnisblaði með viðkvæmum persónuupplýs- ingum um hælisleitandann Tony Omos. Arngrímur Ísberg kvað upp dóm- inn. Hann ákvað refsingu Gísla átta mánuði en fresta skyldi fullnustu dómsins og skyldi hann falla niður eftir tvö ár haldi Gísli skilorð. Ger- ist hann hins vegar sekur um slíkt brot aftur hafi dómurinn nú ítrek- unaráhrif á mögulegan dóm í fram- tíðinni. Málsaðilar hafa fjórar vikur til að áfrýja dómnum til Hæstaréttar en Gísli sagðist myndu una dómnum. Engan kostnað leiddi af rekstri málsins og verjandi Gísla Freys, Ólafur Garðarsson, krafðist ekki málsvarnarlauna en saksóknari hafði krafist þess að Gísli yrði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Lögreglan fékk ný gögn Fyrr um morguninn hafði Gísli Freyr játað formlega við dóminn að hann væri sekur af þeim brotum sem á hann væru borin. Gísli lýsti sig upphaflega saklaus- an af ákæru í lekamálinu svonefnda þegar það var þingfest 16. sept- ember sl. Hann var ákærður fyrir brot gegn þagnarskyldu í starfi sínu sem aðstoðarmaður innanríkisráð- herra, með því að hafa, á tímabilinu frá þriðjudeginum 19. nóvember 2013 til miðvikudagsins 20. nóvem- ber 2013, látið óviðkomandi í té efni samantektar er bar yfirskriftina „Minnisblað varðandi Tony Omos“. Ríkissaksóknari segir að upplýs- ingarnar hafi verið til þess fallnar að hafa áhrif á umfjöllun um mál- efni Tonys Omos sem hælisleitanda, en þær birtust í Fréttablaðinu og á netmiðlunum visir.is og mbl.is að morgni 20. nóvember 2013. Fram kemur í dómi héraðsdóms að við ákvörðun refsingar var haft í huga að Gísli játaði ekki brot sitt fyrr en komið var að aðalmeðferð og eftir að komið höfðu fram ný gögn. Gagnanna aflaði starfsmaður sérstaks saksóknara um síðustu helgi með þartilgerðum hugbúnaði. Sagði saksóknari gögnin sýna að Gísli hefði átt við minnisblaðið, breytt því og síðan sent fjölmiðlum. Ekki talinn ávinningur af leka „Í minnisblaðinu, sem ákærði kom á framfæri við fjölmiðla, var að finna viðkvæmar persónuupplýsing- ar eins og í ákærunni greinir. Hins vegar er ekki fallist á að sýnt hafi verið fram á að ákærði hafi komið minnisblaðinu á framfæri í því skyni að afla sér eða öðrum órétt- mæts ávinnings, hvorki fjárhags- legs né annars. Þá hefur ákærði hreint sakavottorð. Samkvæmt þessu verður refsing ákærða ákveð- in átta mánaða fangelsi sem bundin skal skilorði eins og í dómsorði greinir,“ segir í dómnum. Ekki lá fyrir í gær hvort ákæru- valdið myndi áfrýja dómnum. Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissak- sóknari sagði gott að fá niðurstöðu í málið, þótt hann væri ekki endilega alveg sammála henni. Gísli í skilorðsbundið fangelsi  Fyrrverandi aðstoðarmaður ráðherra játaði leka á minnisblaði um Tony Omos  Lýsti sig saklausan í upphafi  Ný gögn komu fram  Unir niðurstöðu dómsins Morgunblaðið/Kristinn Dómur Gísli Freyr Valdórsson í Héraðsdómi Reykjavíkur, þegar dómur var kveðinn upp yfir honum, átta mánaða fangelsi, skilborðsbundið í tvö ár. Umboðsmaður Alþingis hyggst í næstu viku skila af sér áliti um samskipti Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkis- ráðherra og Stefáns Eiríks- sonar, fv. lögreglustjóra, vegna rannsóknar á lekamálinu. Tryggvi Gunnarsson umboðs- maður segir við Morgunblaðið að niðurstaða í máli Gísla Freys engu breyta, enda um aðskilin mál að ræða. Alltaf hafi staðið til að skila álitinu í næstu viku. bjb@mbl.is Skilar af sér í næstu viku UMBOÐSMAÐUR ALÞINGIS „Það er ekki útilokað að höfðað verði nýtt skaðabótamál, það var brotið á mínum skjólstæðingi í krafti þess valds sem ráðuneytinu var falið. Annars hafa hlutirnir gerst hratt undanfarinn sólarhring og við erum að skoða þetta betur,“ segir Stefán Karl Kristjánsson, lögmaður hælisleitandans Tonys Omos, um játningu og dóm Gísla Freys Valdórssonar. „Þetta sýnir fram á að minnst einn starfsmaður í ráðuneytinu hefur ekki gætt fullrar hlutlægnis- skyldu. Þá má minn skjólstæð- ingur ætla að mál hans hafi ekki hlotið algerlega faglega meðferð innan ráðuneytisins. Það á eftir að koma betur í ljós hverju síðustu at- burðir breyta,“ segir Stefán Karl. Hvort grunnur sé til nýs skaða- bótamáls á hendur innanríkisráðu- neytinu bendir hann á að þegar aðalmeðferð málsins átti að fara fram hafi dómarinn klofið bóta- kröfuna frá og sett hana yfir í sér- stakt mál til að einfalda mála- rekstur. „Nú liggur fyrir játning og mér þykir eðlilegt að sú játning taki einnig til vilja til að gera upp við þá sem brotið var gegn,“ segir Stefán Karl ennfremur. bjb@mbl.is Morgunblaðið/RAX Tony Omos Mótmæli við innanríkisráðu- neytið í fyrra vegna hælisleitandans. Skaðabótamál á hendur ráðuneytinu ekki útilokað VIÐTAL Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hanna Birna Kristjánsdóttir inn- anríkisráðherra segist ætla að halda áfram með sín verkefni í inn- anríkisráðuneytinu og ljúka þeim vel. Hún segist ekki sækjast eftir að taka á ný við dómsmálunum sem hún sagði sig tímabundið frá þegar Gísli Valdórsson, fyrrverandi aðstoðarmaður hennar, var ákærð- ur fyrir að afhenda fjölmiðlum skjöl um hælisleitanda. Hann hefur nú verið dæmdur fyrir það brot. „Þetta mál hefur verið afar erfitt í heilt ár, ég hef ekki legið á því,“ segir Hanna Birna. „Játning hans gagnvart mér í gær [fyrradag] kom mér algerlega í opna skjöldu og er gríðarleg vonbrigði. Ég er sár og vonsvikin. Þetta er gríðarlegur trúnaðarbrestur gagnvart þeim sem hann átti að gæta trúnaðar gagnvart en einnig gagnvart sam- starfsfólkinu í ráðuneytinu og mér. Hann naut fulls trausts. Ég spurði hann ítrekað og fékk alltaf sama svarið. Ég hafði ekki ástæðu til að bregðast fyrr við en mér þykir þetta allt mjög miður.“ Þykir vænna um verkefnin en stólana Hanna Birna nýtur stuðnings þingflokks Sjálfstæðisflokksins til að gegna áfram embætti innanrík- isráðherra. Spurð hvort til greina hafi komið að hún segði af sér seg- ir Hanna Birna að nú sé fengin ákveðin niðurstaða í málinu. Hún staðfesti að hún hefði ekki haft að- komu að því. „Ég hef oft sagt að mér þykir vænna um verkefnin en stólana. Ég hef oft, því ég er þannig gerð, velt fyrir mér stöðu minni í því sam- hengi, hvort ég sé að ná þeim ár- angri sem ég tel mikilvægt að ná.“ Hún segist ætla að halda áfram með sín verkefni og ljúka þeim vel. „Ég hef auðvitað oft í þessu ferli íhugað það [að segja af sér] en það eru frekar persónulegar hugleið- ingar. Þetta mál hefur verið erfitt fyrir þá sem næst mér standa, fjöl- skylduna, og ég hef frekar hugsað um það hversu langt ég get gengið gagnvart þeim.“ Hanna Birna svarar því játandi að hún beri pólitíska ábyrgð á sín- um aðstoðarmönnum. „Þetta var lögbrot sem ég hafði enga vitn- eskju um, gat ekki stöðvað eða brugðist við fyrr, eins og ég hefði þó gjarnan viljað gera. Ég er búin að segja af mér sem dómsmálaráðherra, gerði það um leið og Gísli var ákærður. Ég veit ekki hvort menn vilja að ég segi oft af mér.“ – Hafðir þú Gísla aldrei grun- aðan? „Ég treysti manninum og hafði ekki forsendur til annars. Hann var starfsmaður minn og hluti af teyminu hér. Hann gaf aldrei til kynna með neinum hætti að hann hefði sent frá sér upplýsingarnar. Ég spurði hann ítrekað og fékk alltaf sömu svörin.“ Reynt að vinna heiðarlega – Telur þú að málið hafi skaðað ríkisstjórnina og Sjálfstæðisflokk- inn? „Það er ekkert sem bendir til þess. Ég tel að skaðinn hafi að- allega verið gagnvart ráðuneytinu, gagnvart verkefnum sem hér er unnið að. Auðvitað hefur þetta ver- ið erfitt og ómögulegt mál í alla staði. Ég tel að það hafi skaðað mig pólitískt og verð ég að vinna úr því. Fyrir hönd þessa starfs- manns míns verð ég að biðjast af- sökunar á að hann hafi komið fram með þessum hætti. Þetta eru mis- tök sem hann verður að lifa við alla sína ævi. Málið hefur tekið á sig allskyns myndir sem ekki tengjast því beint. Það er ekkert óeðlilegt við það. Fjölmiðlar og pólitískir and- stæðingar hafa skynjað það að ég hef ekki getað skýrt það út og fundið að málið hefur verið mér erfitt. Vissulega hefur það verið mér erfitt. Ég hef fengið harð- drægar ásakanir og hótanir. Ég hef verið sett í snúna stöðu.“ – Sagðir þú Alþingi satt allan tímann um meðferð ráðuneytisins á málinu? „Ég gaf Alþingi alltaf bestu upp- lýsingar sem ég hafði á hverjum tíma. Umræðan hefur snúist um viðbót við skjalið sem aldrei var í mínu minnisblaði. Ég gat ekki gengist við þeim upplýsingum. Ég hef alltaf reynt að vinna að þessu máli heiðarlega, miðað við þær upplýsingar sem ég hef haft.“ Vinnur áfram að sínum verkefnum  Hanna Birna Kristjánsdóttir segist ekki hafa haft upplýsingar um lögbrot aðstoðarmanns síns  Segir að málið hafi skaðað sig pólitískt  Hún hafi axlað ábyrgð með því að segja sig frá dómsmálum Morgunblaðið/Kristinn Í þingflokksherbergi Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins fundaði um stöðu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur í gær. „Hún nýtur trausts til að halda áfram. Hún nýtur óskoraðs trausts frá mér og það kom fram breiður stuðningur við ráðherrann á þing- flokksfundinum,“ sagði Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, eftir þingflokksfund þar sem staða Hönnu Birnu Kristjánsdóttur var rædd. „Hanna Birna var kosin á þing sem leiðtogi okkar sjálfstæð- ismanna í Reykjavík, hún er vara- formaður flokksins og fyrsti þing- maður Reykvíkinga. Mér finnst hún líka hafa ábyrgð sem slíkur stjórnmálamaður sem ég veit að hún vill rísa undir. Það gerir hún best með því að halda sínu striki og hefur til þess traust frá mér.“ Breiður stuðningur í flokknum ÞINGFLOKKUR SJÁLFSTÆÐISMANNA RÆÐIR STÖÐUNA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.