Stígandi - 01.04.1944, Blaðsíða 17

Stígandi - 01.04.1944, Blaðsíða 17
S rÍGANDI KONA VÍGA-GLÚMS 95 þorðu að spyrna á móti þyrnibroddum Þverárbóndans, þó að þeir væru sárbeittir. í fylkingarbrjósti slíkra andstæðinga stóð Þórarinn Þórisson á Espihóli, vitur maður og vinsæll. Hjá hon- um höfðu jafnan leitað athvarfs allir þeir, er ósigur biðu fyrir Glúmi, eða voru olnbogabörn hans á einhvern hátt. Þórarinn safnaði þeim um sig til halds og trausts gegn Glúmi og atti við hann kappi í mörgum málum, en fór ætíð halloka. En eitt sinn hittust þeir Glúmur og Þórarinn á svonefndum Hrísateigi, og var ærinn liðsmunur, því að Þórarinn var við fimmtánda mann, en Glúmur hafði aðeins sex menn með sér. Þó vildi Þórarinn ekki sækja fram gegn Glúmi, því að hann vissi, að Glúmur átti sér brátt von liðstyrks Más sonar síns með átján menn. Gaf Þór- arinn skipun um að snúa undan heim á leið. En er Glúmur sá, að Þórarinn hopaði, rann hann á eftir honum sem skjótast og tafði för hans, unz hann vissi sig hafa nóg öryggi til að láta skríða til skarar, — þá hóf hann atlögu, en Esphælingar snerust lil varnar — og Hrísateigur litaðist blóði. ---------En á meðan hamslaus vígmóðurinn svall í brjóstum hinna kynbornu víkinga, svo að þeir fundu villta nautn í því að herða branda sína í blóði andstæðinganna, talaði friðar- rödd kærleikans sínu máli í hjarta húsfreyjunnar á Þverá. — ------„Þess er £etit, at Halldóra, kona Glúms, kvaddi konur með sér, — „ok skulum vér binda sár þeirra marma, er lifvænir eru, ór hvárra liði sem er.“ — „Enn er hon kom at, þá íéll Þórar- ii m fyrir Mávi, og var öxlin höggin frá, svá at lungun féllu út í sárit.“ En Halldóra batt um sár hans, ok sat yfir honum, til þess er lokit var bardaganum.“ En bardaganum lauk fyrir meðal- göngu margra manna og urðu úrslit þau, að fimm menn féllu úr hvorum flokki. Förunautar Þórarins höfðu hann heim með sér, og Glúmur fór einnig heim með sína menn. „En er menn váru heim komrúr, þá mælti Glúmur við Halldóru: — „Eör vár mundi hafa orðit góð í dag, ef þú hefðir heima verit, ok hefði Þórarinn eigi lífs brott komizt.“ Hon segir, at Þórarni væri lítil von lífs, — en þó muntu eiga skamma stund héraðvært, þótt hann lifi, en ef hann deyr, muntu aldrei eiga landvært“. Þessi örlagaspá rættist, og einnig sannaðist hið fornkveðna, „að skamma stund verður hönd höggi fegin“, því að fyrir þennan liildarleik á Hrísateigi og allar fyrri mótgerðir Glúms við þá Ksphælinga varð hann von bráðar að þola þá raun að selja óðal s'tt höfuðandstæðingi sínum í hendur og hrekjast í aðra sveit
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Stígandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.