Stígandi - 01.04.1944, Blaðsíða 53

Stígandi - 01.04.1944, Blaðsíða 53
STÍGANDI í ORLOFI 131 Nú opnaðist hurð og kvenmannsfótur sté út á brautarkantinn. Kvenmann hefi ég ekki séð á mínu heimili síðan í fyrra. Það er alveg satt. Ekki eina veru, ekki einu sinni fót, varla sokk af því fríða kyni. Fagurlega skapaður fótur þreifaði sig fram og nam staðar á guðsgrænni jörðinni. Ég gleymdi að hotta á hestana. Þeir stóðu, en ég sat og horfði á það, sem koma skyldi. Slægjan hvítnaði í þurrkinum. Svitinn rann af vinnuhestunum. Hvorugt sá ég, bara þetta: Tvær stúlkur hoppuðu upp á túngarðinn og komu hlaupandi og hjöluðu silfurorð sín á milli, sem ekki urðu þó aðgreind enn- þá. Roskin kona staulaðist út um aðrar dyr og feitlaginn maður við aldur á eftir henni, líklega forstjóri. — Sæll manni minn, sögðu báðar meyjarnar í einu. — Guðmundur minn og Jesías og Jerimías í hæðum og himnaríki! Alveg er það draumur í dósarloki að vera komin upp í sveit í heyskapinn og sólskinið og frelsið og æfintýrin! sagði önnur mærin. Ekki satt, Gógó? Þær voru í buxum með göngu- skó, í stökkum og heldur en ekki ferðamannalegar, sá ég. — Hvað heitirðu, væni minn? sagði nú hin, sem ávörpuð hafði verið með Gógóarnafninu. Ég er Gógó. Þessi er Bíbíbí. Nú verðurðu að segja, hver þú ert. Ekki klumsa og sveitó, svona sætur piltur og huggulegur. — Jón, sagði ég, en orðin sátu enn hálf-föst í hálsinum. Bráð- um rættist samt úr því við alúð kvennanna og lítillæti, enda lá nokkuð við að standa sig. Bílstjórinn dittaði að bifreiðinni. For- stjórinn sté á þúfu og frúin tyllti sér á tá. Svo bentu þau á feg- urð náttúrunnar, hann með allri hendinni, hún með vísifingri. — Á að láta þetta allt inn í hlöðu í kvöld? sagði Gógó og dif- aði með tánni undir síðasta múginn minn. Ó, hvað það er hríf- andi að fara í heyskapinn. Ég er bara spennt að drífa alla þessa heyglás inn í hlöðu strax í kvöld. — Drengur, sagði Bíbíbí, af hverju ferðu ekki ofan af þess- ari hjólatík og ferð að hætta þessu slátturíi í kvöld? Ég hafði dvalið um sinn í nýrri veröld. Nú áttaði ég mig og sté til jarðarinnar. —- Hvert eruð þið að halda? sagði ég, og fór að losa sláttu- hestana frá. — Halda? Halda. Hvað er það? sagði Bíbíbí. — Að fara, sagði ég til leiðréttingar. Hvert er ferðinni heit- ið, á ég við? 9*
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Stígandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.