Stígandi - 01.04.1944, Blaðsíða 81
STÍGANDI
LEYNDARDÓMAR TILVERUNNAR
159
Kraftar fimmtu stærðar, hverjir
sem þeir reynast, eða hversu marg-
brotnir, munu taka öllum öðrum
langt fram.
Við höfum reynt að leiða athygli
að hinum lítt skiljanlega krafti, sem
heldur áðurnefndum formum í föst-
um skorðum þrátt fyrir allar þær
truflanir, sem andrúmsloftið er und-
irorpið.
Kraftur eldsins er vissulega mik-
ill, en hann er einnig næmur fyrir
mörgu. Raforkan þarfnast hreyfing-
ar, hún þarf að koma frá stað og
fara til staðar, og hún eyðist, en
hinn dularfulli máttur fimmtu
stærðar hlýðir öðrum lögum. Form-
in, sem hann geymir og varðveitir,
eru þar, sem þau eru, því að það er
frumorka sköpunarkraftsins, sem
umlykur þau og verndar gegn öll-
um breytingum.
Því skyldi veitt eftirtekt, að
myndir af jurtagróðri, sem koma
fram á gluggarúðum, færa líkur að
þeirri hugmynd, að mynd eða form
mannslíkamans sé geymt í völund-
arhúsi fimmtu stærðar. Ef til vill
kristallað á annan hátt og með öðr-
um bylgjuhraða, og sennilegt er, að
framköllun þess krefjist annarra
hluta en hitamunar, til þess að hún
verði sýnileg eða líkamist. Áður en
gler var fundið upp, hafði enginn
séð frostrósir, og þá hefði verið bor-
ið á móti, að slíkt fyrirbrigði væri
til. Enginn vafi leikur á því, að
maðurinn á eftir að skapa flöt eða
yfirborð, sem önnur og merkileg
form munu birtast á. Við skulum
líta á möguleika fyrir þvílíku tæki,
og hvað það sé, sem unnizt hefir á
því sviði:
Athugun fimmtu stærðar hefir
leitt í ljós þessi atriði: (a) Að form
eru alls staðar í loftinu. (b) Að
mörg form búa á sama bletti, en
sjálfstæð. (c) Að það er frumform-
ið eða einstaklingseðlið, sem sendir
frá sér geislanir. (d) Að það er of-
urorka bak við allt þetta, sem varð-
veitir það óhagganlega.
Finnum við þá nokkur dæmi til
samanburðar þessum atriðum í
líkama mannsins?
Við skulum grípa dæmi af handa-
hófi, úr sögu læknisfræði og sjúk-
dóma:
Kona var langt leidd af krabba-
meini. Hún var skorin upp, en þá
kom í Ijós, að meinið hafði sáð frá
sér, og lækning var óframkvæman-
leg. Læknarnir saumuðu saman sár-
ið, án þess að hafa gert nokkra til-
raun til að skera fyrir meinin. En
þegar konan vaknaði, eftir svæfing-
una, sögðu þeir henni, að skurður-
inn hefði tekizt ágætlega. Konunni
batnaði skyndilega og að fullu. Öll
sjúkdómseinkenni hurfu.
Fyrir nokkrum árum hefði þetta
verið óskiljanlegt. Á síðustu tímum
hafa vísindin þokazt það áleiðis, að
hægt er að gizka á orsakir batans.
Sá skilningur hefir fengizt, að sjúk-
dómar og heilbrigði eru í afar nánu
sambandi við sveiflur. Sjúkdómar
og heilbrigði eru á valdi sveiflna og
hljóðfalls. Raskist þessi áhrif, eða
hið heilbrigða starf þeirra í líkaman-
um, þá leiðir það til sjúkdóms og
dauða. Sé aftur á móti hægt að færa
þetta í rétt horf, og skapa annan
hraða — nýtt tempo, þá virðast hin-
ar jákvæðu og neikvæðu eindir
fylkja sér til nýrrar atlögu gegn
sjúkdóminum og mynda nýja vefi
og efni.
Líkur árangur hefir orðið af nýj-
ustu ljósalækningunum, t. d. af
infra-rauðum ljósum, útfjólubláum
geislum, radium o. fl. Þessi lækn-
ingatæki hafa hjálpað hinum öðrum
geislum, er sífellt ganga i gegnum
likama mannsins. Þessi nýju tæki
hafa stytztu öldulengd, en mjög háa