Fréttablaðið - 29.11.2013, Blaðsíða 38
FÓLK|HELGIN
Minjasafnið á Akureyri opnar jólasýningu á morg-
un, laugardaginn 30. nóvember, klukkan 13. Í aðal-
hlutverki eru 82 hrekkjóttir íslenskir jólasveinar,
skógur gamalla jólatrjáa, jólaskraut, spennandi
jólasveinaveröld og rannsóknarstofa jólasveina.
Flestir þekkja jólasveinana þrettán en færri vita
deili á þeim 69 sem út af standa. Í ár og næstu ár
verða þessir jólasveinar myndgerðir. Fyrst verða
þau Flotsokka og Faldafeykir sem Ingibjörg H.
Ágústsdóttir listakona hefur útbúið.
Gestir geta litið inn í smáveröld jólasveinanna
sem Þórarinn Blöndal, listamaður og leikmynda-
hönnuður, hefur skapað. Þar geta þeir sett sig í
spor þeirra og prófað hluti sem tengjast þeim!
Á sýningunni má einnig sjá fjölda jólatrjáa sem
bæjarbúar hafa komið með en þau eru frá árunum
1920 til okkar tíma. Jólaskrautið fær einnig stóran
sess á sýningunni.
Jólasýning Minjasafnsins á Akureyri verður
sett upp árlega um ókomna framtíð með það fyrir
augum að heimsókn í safnið verði fastur liður í
undirbúningi jólanna.
Sýningin verður aldrei eins frá ári til árs en
alltaf kunnugleg!
Minjasafnið er opið daglega frá 30. nóvember til
6. janúar klukkan 13 til 17.
Lokað er á hátíðisdögunum.
STÓRSÝNING
Sýningin Íslenska
teiknibókin – 350
ára afmæli Árna
Magnússonar
stendur til 2. febrú-
ar 2014 í Gerðar-
safni.
Fjórar listasmiðjur fyrir börn og unglinga verða haldnar þessar vikurnar í tengslum við sýn-
inguna Íslenska teiknibókin – 350
ára afmæli Árna Magnússonar,
sem nú stendur yfir í Gerðarsafni
í Kópavogi. Fyrsta listasmiðjan
var haldin síðustu helgi og sú
næsta er á morgun laugardag.
Aðgangur er ókeypis en fjöldi
þátttakenda er takmarkaður og
þarf að skrá sig á Gerðarsafni.
Að sögn Ingibjargar Jóhanns-
dóttur, skólastjóra Mynd-
listaskólans í Reykjavík, eru
námskeiðin hluti af fræðslupró-
grammi í tengslum við sýningu
sem er hluti af miklum hátíða-
höldum til minningar um Árna
Magnússon. „Þetta verða alls
fjórar listasmiðjur sem byggja á
Íslensku teiknibókinni. Sú bók er
mjög merkileg en hún inniheldur
safn fyrirmynda sem gerðar voru
af fjórum óþekktum listamönnum
á tímabilinu 1350-1500. Myndirn-
ar í bókinni eru fyrirmyndir sem
listamenn á miðöldum nýttu sér, til
dæmis þegar þeir lýstu handrit eða
máluðu altarismyndir. Það má því segja
að listasmiðjurnar nýti þessa gömlu
teiknibók á áhugaverðan hátt í nútím-
anum.“
Á námskeiðinu síðustu helgi fengu
krakkar á aldrinum 8-12 ára að kynnast
verkfærum og aðferðum sem teiknarar
Íslensku teiknibókarinnar notuðu á
sínum tíma. Á morgun verða skrímsli
og furðuverur bókarinnar skoðuð og
sett í samhengi við nútímann.
Ingibjörg bendir á að skólar geti
pantað tíma á Gerðarsafni fyrir nem-
endur sína. Þannig geta þeir sem
komast ekki á listasmiðjurnar fengið
leiðsögn um sýninguna og kynnst því
sem boðið er upp á. „Slíkar heim-
sóknir eru gott tækifæri fyrir krakka
á öllum aldri til að kynnast þessum
gömlu verkfærunum og teikningum
úr bókinni. Um leið verða aðgengileg
á safninu, og á vefnum www.kveikjan.
is, ýmis teikniverkefni þar sem unnið
er út frá Íslensku teiknibókinni. Verk-
efnin eru bæði hugsuð fyrir gesti og
gangandi sem geta sest niður í smiðjum
í kjallara safnsins og teiknað en einnig
fyrir myndmenntakennara sem koma
hingað með nemendur sína.“
GAMLAR TEIKN-
INGAR LIFNA VIÐ
LISTASMIÐJUR FYRIR BÖRN Í tengslum við hátíðahöld til minningar um
Árna Magnússon verða haldnar nokkrar skemmtilegar listasmiðjur fyrir börn.
FURÐUVERUR
Ýmis skrímsli og furðu-
verur verða skoðuð og
sett í samhengi við
nútímann á lista-
smiðjunni á morgun.
MYND/ÚR EINKASAFNI
LISTASMIÐJUR
Ingibjörg Jóhanns-
dóttir er umsjónarmaður
Listasmiðjunnar.
MYND/ÚR EINKASAFNI
HREKKJÓTTIR JÓLASVEINAR
FLOTSOKKA Flotsokka er ein af 82 íslenskum jólasveinum. Hér
er hún túlkuð af listakonunni Ingibjörgu H. Ágústsdóttur.
FÁTÆKT
Styrktu verkefni Barnaheilla
og sendu SMS með textanum „jol“ í síma
903 1510 - 903 1520 - 903 1550
fyrir 1.000, 2.000 eða 5.000 krónur.
www.jolapeysan.is
12 ára drengur í Reykjavík
13 ára drengur á Vesturlandi