Fréttablaðið - 29.11.2013, Side 50
KYNNING − AUGLÝSINGSpil FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 20134
Veldu spjald, lestu upp spurningu og vinir þínir svara henni fyrir þig! Þú velur það svar sem þér líkar best og hinir giska svo á hvaða svar þú valdir og veðja á það með því að nota spilapeninga. Besta
svarið er hressilegt og einfalt spil sem gaman er að spila jafnt í vinahópi
sem á kósíkvöldum fjölskyldunnar en spilið gengur út á að kanna hversu
vel leikmenn þekkja hver annan.
Hversu vel þekkja vinir þínir þig?
Besta svarið er bráðskemmtilegur afþreyingarleikur sem ekki á að taka of alvarlega. Í góðra vina hópi er því tilvalið að draga hann
fram eða spila í fjölskylduboðum en í leiknum er kannað hversu vel leikmenn þekkja hver annan. Besta svarið er þýtt upp úr spilinu
Say Anything og er framleitt af sömu aðilum og framleiddu Alias-spilið, söluhæsta spil á Íslandi frá upphafi. Say Anything hefur
fengið verðlaun um allan heim og var meðal annars valið besta partíspilið á Golden Geek. Besta svarið er komið í verslanir.
Ef líf mitt væri kvikmynd, hver væri þá titillinn? Vinir þínir skrifa niður það svar sem þeir halda að eigi best við þig og þá er fróðlegt að
sjá hversu vel þeir telja sig þekkja þig. Þú velur það svar sem þér líkar best.
Algengar spurningar um hvernig spila á Besta svarið
Getur spyrjandinn reynt að hafa áhrif á hina leikmennina?
Nei! Spyrjandinn má alls ekki hafa áhrif á hvað hinir leikmennirnir skrifa niður né hjálpa þeim á neinn
hátt. Spyrjandinn má hins vegar segja allt sem hann vill eftir að svarið hefur verið sýnt!
Má leikmaður reyna að hafa áhrif á að sitt svar verði valið?
Já! leikmenn geta reynt að hafa áhrif á hvaða svar er valið. Það er hluti af skemmtigildi leiksins.
Hvað ef tvö svör eru eins?
Aðeins fyrra svarið sem lagt er á borðið gildir. Sá sem er seinni til verður að skrifa nýtt svar. Ef upp
kemur ágreiningur um hvor varð fyrri til verður spyrjandi að skera úr.
Dæmi um spurningar:
Hvaða kvikmyndapersóna
væri ég síst til í að vera?
Hvað myndi ég gera ef ég ynni
milljón í lottó?
Ef ég væri ósýnileg/ur í einn
dag, hvað myndi ég gera?
Ef líf mitt væri kvikmynd, hver
væri þá titillinn?
Hvaða persónu gæti ég ekki
hugsað mér að sitja við hliðina
á í flugvél?
Hvernig á að spila Besta svarið?
Að spyrja spurningar
Ef þú ert með valhjólið ert þú spyrjandinn. Veldu spjald, veldu síðan
hvaða spurningu sem er á spjaldinu og lestu upphátt.
Hinir leikmennirnir skrifa svör sín með tússpennunum á svartöflur
sínar og leggja þær svo á borðið þannig að allir sjái svörin.
Að velja svar
Spyrjandinn velur uppáhaldssvarið sitt með því að snúa valhjólinu á
sama lit og er á svartöflunni sem hefur að geyma besta svarið, án þess
að sýna hinum það strax.
Hinir leikmennirnir velja besta svarið með því að leggja spilapeninga
sína á það svar sem þeir halda að spyrjandinn velji. Þegar allir leikmenn
hafa valið svar sýnir spyrjandinn hvaða svar hann valdi.
Að telja stigin
Spyrjandinn fær stig fyrir hvern spilapening sem er á því svari sem hann
velur en hinir leikmennirnir fá 1 stig fyrir hvern spilapening sem þeir
hafa sett á svarið sem spyrjandinn velur. Sá leikmaður sem skrifaði valda
svarið fær 1 aukastig.
Hefjið svo nýja umferð með hrein spjöld og sá leikmaður sem situr til
vinstri við spyrjanda síðustu umferðar verður spyrjandi.
Eftir að allar umferðirnar hafa verið spilaðar á stigavörður að telja
saman stigin. Sá leikmaður sem er með flest stig sigrar!
Áður en leikurinn hefst
- Veljið eina svartöflu og tvo
spilapeninga í sama lit.
- Setjið tússpenna á borðið þann-
ig að allir spilarar geti náð til
þeirra.
- Stokkið spurningaspjöldin og
leggið þau hvolf á borðið.
- Náið í bréf svo hægt sé að þurrka
út svörin eftir hverja spurningu.
- Veljið stigavörð sem skráir niður
stigin á stigatöfluna.
- Látið lágvaxnasta leikmann-
inn fá valhjólið og hann byrjar
leikinn.