Fréttablaðið - 29.11.2013, Page 58
Freyja Rúnarsdóttir
hefur mikinn áhuga á
Ítalíu og er að klára BA
í ítölsku í vor. Hún hefur
einnig gaman af því að
elda góðan og hollan fjöl-
skyldumat og prófa
sig áfram með nýjar
uppskriftir. Hér
býður hún upp á
einfalda uppskrift
að sænskum kjöt-
bollum fyrir fjóra.
Lífi ð
FRÉTTABLAÐIÐ Helgarmaturinn og Spjörunum úr.
Hvern faðmaðir þú síð-
ast? Ég faðmaði Sölva Ottesen
þegar ég kvaddi hann í Króatíu
eftir landsliðsferðina.
En kysstir? Ég kyssti líka
Sölva Ottesen.
Hver kom þér síðast á
óvart og hvernig? Vinur
minn sem var ekki beint að
koma mér á óvart en það kom
mér hins vegar mjög mikið á
óvart þegar ég sá hann rífa sigg
af stóru tánni á sér og borða
það.
Hvaða galla í eigin fari
ertu búinn að umbera
allt of lengi? Ég er búinn
að vera neikvæður og þrjóskur
alltof lengi.
Ertu hörundsár? Ég held
alveg örugglega að ég sé ekki
hörundsár, kýs allavega gagn-
rýni fram yfir hrós.
Dansarðu þegar enginn
sér til? Já, ég dansa einungis
þegar enginn sér til.
Hvenær gerðirðu þig
síðast að fífli og hvern-
ig? Ég man ekki hvenær ég
gerði mig síðast að fífli, því
miður, en ég er alltaf að segja
eitthvað heimskulegt og óúthugs-
að við fólk. Ég sagði til dæmis
einu sinni við liðsfélaga minn í
Svíþjóð að mér þætti kærastan
hans „ekkert svakalega sæt“.
Hringirðu stundum í
vælubílinn? Ég veit ekki
alveg hvað það þýðir að hringja
í vælubílinn en þegar væluþörfin
kemur þá hringi ég í bestu vini
mína og væli aðeins í þeim.
Tekurðu strætó? Ég tek
aldrei strætó en ég tek oft metró.
Hvað eyðirðu mikl-
um tíma á Facebook á
dag? Ég eyði alltof miklum
tíma á Facebook og hata mig
líka fyrir það.
Ferðu hjá þér þegar þú
hittir fræga eða heils-
arðu þeim? Hvorugt, en ég
stari stundum á þá.
Lumarðu á einhverju
sem fáir vinir þínir vita
um þig? Það vita það ekki
margir en ég er viss um að það
komi samt engum vini mínum á
óvart að metið mitt í að leysa
3x3 Rúbiks-tening er 1 mínúta
og 13 sekúndur.
Hvað ætlarðu alls ekki
að gera um helgina?
Um helgina ætla ég alls ekki
að pirra mig á vælu- og sleikju-
statusum hjá fólki á Facebook.
Ragnar Sigurðsson
ALDUR: 27 ára
STARF: Knattspyrnumaður
...SPJÖ
RU
N
U
M
Ú
R
HELGARMATURINN SÆNSKAR KJÖTBOLLUR
Ofninn stilltur á 190°C
500 g nautahakk
1 dl brauðmylsna/rasp
1 laukur (saxaður)
1 egg
Chili Explosion-krydd (eða annað
krydd)
Salt og pipar
1 dós tómatmauk (mér finnst
best að nota maukið frá
Sollu, 200 g)
Púrrulaukur
500 g kartöflur
Um 8 dl vatn
Kryddið nautahakk-
ið með salti og pipar,
bætið brauðmylsnu
(raspi), chili-kryddinu,
lauknum og egginu saman
við. Blandið mjög vel saman
(ég nota yfirleitt matvinnsluvél-
ina) og mótið um átta bollur. Af-
hýðið kartöflurnar (val) og sker-
ið þær í mjög þunnar sneiðar.
Púrrulaukurinn er svo skorinn
niður, settur í eldfast mót ásamt
kartöflunum. Blandið tómat-
maukinu við vatn og piprið og
hellið svo
yfir kart-
öflurnar og
púrrulauk-
inn þannig að
lögurinn hylji kart-
öflurnar og laukinn. Raðið svo
bollunum í eldfasta mótið og
setjið inn í ofninn í um 40 mín-
útur eða þar til kartöflurnar eru
orðnar mjúkar. Kjötbollurnar eru
svo bornar fram með nýbökuðu
naan-brauði, hrísgrjónum eða
fersku salati.