Fréttablaðið - 12.04.2014, Page 6
12. apríl 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
ÖRUGGT START
MEÐ EXIDE RAFGEYMUM
Endingargóðir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir flestar gerðir
bifreiða. Veldu þaulreynda vöru frá gæðaframleiðanda.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
13
18
58 Exide rafgeymarnir fást hjá:
DÓMSMÁL Konu sem sagt var upp
störfum í Vínbúð Akureyrar hafa
verið dæmdar tveggja milljóna
króna bætur frá ÁTVR.
Ástæða uppsagnarinnar var
meint þátttaka konunnar í einelti
sem einn vaktstjóra Vínbúðarinnar
er sagður hafa orðið fyrir. Fórnar-
lambið hafi verið baktalað og huns-
að. Héraðsdómur Akureyrar segir
konunni ekki hafa gefist svigrúm
til að svara ávirðingum og að upp-
sögnin hafi verið ólögmæt. - gar
Sagt upp vegna eineltismáls:
Fær bætur frá
áfengisverslun
LÖGREGLUMÁL Vegna fréttar í
Fréttablaðinu á fimmtudag skal
tekið fram að sorphirðumenn
hvorki brutust inn né gerðu tilraun
til innbrots í hús Heiðars Helguson-
ar knattspyrnumanns. Þetta segir
lögreglan á höfuðborgarsvæðinu.
„Það var nýr starfsmaður sem
fór með masterslykil að húsinu til
að aðgæta hvort sorptunna kynni
að vera innan við dyr að bílskúr,
enda sorptunnur ekki alltaf sjáan-
legar og oft geymdar á bak við
læstar dyr. Af þeim sökum er mast-
erslykla að sorpgeymslum að finna
í ruslabílum. Fljótt kom á daginn
að lykillinn gekk ekki að skránni
og því ljóst að enga ruslatunnu var
að finna þar innandyra,“ segir í
tilkynningu lögreglu sem kveður
vinnubrögð sorphirðumannanna
hafa verið með öllu eðlileg.
- gar
Frétt um sorphirðumenn:
Ekkert innbrot
VIÐSKIPTI Starfsmenn Sjóvár sem
keyptu bréf í hlutafjárútboði
tryggingafélagsins gátu við lokun
markaða í gær grætt allt að 1,5
milljónir króna á bréfunum. Aðrir
almennir fjárfestar gátu þá mest
grætt 34 þúsund krónur á því að
selja sín bréf í félaginu.
Þegar niðurstöður almenns
hlutafjárútboðs Sjóvár voru kynnt-
ar í byrjun mánaðarins kom í ljós
að heildareftirspurn í útboðinu
hafði verið sjöfalt meiri en sölu-
andvirði þeirra hluta sem boðnir
voru út. Sú mikla þátttaka leiddi
til þess að hámarksúthlutun til
almennra fjárfesta var 227 þúsund
krónur. Tilboð fastráðinna starfs-
manna Sjóvár voru aftur á móti
ekki skert. Þeir gátu því keypt
hlutabréf fyrir allt að tíu milljón-
ir króna í útboðinu, eins og allir
almennir fjárfestar áttu upphaf-
lega að geta.
„En eftirspurnin innan fyrir-
tækisins var ekki slík að eigend-
ur teldu ástæðu til að skerða hluti
starfsmanna,“ segir Hermann
Björnsson, forstjóri Sjóvár.
„Það er tvenns konar fyrirkomu-
lag sem er þekkt hér á landi. Ann-
ars vegar þegar starfsmönnum er
veittur afsláttur af gengi bréfa eða
hins vegar þegar sett er í skrán-
ingarlýsingu fyrirheit um það að
skerða starfsmenn minna eða ekk-
ert. Eigendur tóku seinni valkost-
inn þar sem starfsmenn voru að
fá þetta á sama gengi og aðrir en
þetta er ákveðinn jákvæður hvati
gagnvart starfsmönnum,“ segir
Hermann.
Í gær var sagt í fjölmiðlum að
stjórn tryggingafélagsins myndi
leggja fram tillögu um að koma á
árangurstengdu launakerfi fyrir
starfsmenn á næsta aðalfundi
félagsins sem verður haldinn 29.
apríl. Hermann segir þetta ekki
rétt. Þarna sé einungis um að
ræða starfskjarastefnu félagsins
sem þurfi að liggja fyrir á öllum
aðalfundum.
„Þessi sama stefna lá fyrir í
fyrra og sú ályktun að við séum
að taka upp kaupaukakerfi er ekki
rétt. Það liggur fyrir sambæri-
leg tillaga fyrir aðalfundinn um
heimild til upptöku hvatakerfis.
Verði sú heimild nýtt, sem ekki er
búið að taka ákvörðun um, kemur
hún ekki til framkvæmda fyrr en
að undangengnu samþykki hlut-
hafafundar og slík tillaga mun
ekki liggja fyrir á næsta hluthafa-
fundi.“
haraldur@frettabladid.is
Starfsfólk Sjóvár gat grætt
1,5 milljónir á einum degi
Velta með hlutabréf í Sjóvá nam rúmum 254 milljónum króna í gær þegar félagið var skráð í Kauphöllina. Bréf
almennra fjárfesta hækkuðu um 15%. Forstjóri Sjóvár segir ekki rétt að félagið sé að taka upp kaupaukakerfi.
Í KAUPHÖLLINNI Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár, og Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, við skráninguna í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
En eftirspurnin
innan fyrirtækisins var
ekki slík að eigendur teldu
ástæðu til að skerða hluti
starfsmanna.
Hermann Björnsson
forstjóri Sjóvár.
VÍNBÚÐIN Einelti á Akureyri.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
STJÓRNMÁL S. Björn Blöndal, oddviti Bjartrar
framtíðar í Reykjavík, segir nauðsynlegt að
borgin komi að málum við uppbyggingu leigu-
markaðar til að taka á húsnæðisvandanum.
„Við verðum að horfast í augu við það að
leigumarkaðurinn í Reykjavík og á Íslandi er
mjög óheilbrigður. Hann hefur ekki náð að
þroskast og verða til,“ segir Björn í viðtali við
Pólitíkina á Vísi.
Björn segir þá stefnu hafa verið rekna að
allir þurfi að kaupa íbúð. „Það er fínt á meðan
fólk hefur efni á því en eins og staðan er núna
er bara orðið mjög erfitt fyrir til dæmis ungt
fólk að kaupa íbúð. Þá er ansi slæmt að ekki
skuli vera til heilbrigður leigumarkaður,“ segir
oddvitinn.
Þá segir Björn núverandi meirihluta Besta
flokksins og Samfylkingarinnar í borgarstjórn
Reykjavíkur hafa verið að þróa hugmyndir sem
kallaðar séu Reykjavíkurhús.
„Þar er verið að tala um beint inngrip borg-
arinnar í leigumarkaðinn. Við aðstoðum við að
koma honum á fót. Hinn frjálsi markaður hefur
haft ansi langan tíma en þetta hefur ekki verið
að gera sig. Spurningin er hvort borgin þurfi
ekki að hjálpa þessu af stað í tíu, tuttugu ár og
svo getur hún selt þetta. Framlag borgarinnar
yrði þá í formi lóða.“ - hks
Oddviti Bjartrar framtíðar í Reykjavík segir leigumarkaðinn á Íslandi vera mjög óheilbrigðan:
Boðar inngrip borgarinnar í leigumarkað
S. BJÖRN BLÖNDAL Frjálsi markaðurinn hefur ekki
verið að gera sig á húsaleigumarkaði, segir efsti maður
á lista Bjartrar framtíðar í Reykjavík. MYND/VÍSIR
ERLENT Forsætisráðherra
Úkraínu, Areníj Jatsenjúk, mis-
tókst að koma á friði í austurhluta
landsins á föstudag. Mótmælend-
ur hafa lokað sig inni í opinberum
byggingum og krefjast sjálfstæð-
is frá yfirstjórn landsins í Kænu-
garði. Það er vefsíða The Guardi-
an sem segir frá þessu.
Forsætisráðherrann bauð aust-
urhéruðum Úkraínu meiri sjálfs-
stjórn með það að leiðarljósi að
lægja öldur í landinu en án árang-
urs. - ssb
Engir samningar í Úkraínu:
Friðarumleitun
mistókst