Fréttablaðið - 12.04.2014, Side 18
12. apríl 2014 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 18
Alþjóðleg þróunarsam-
vinna er ein af megin-
stoðum íslenskrar utan-
ríkisstefnu. Við leggjum
áherslu á stuðning við
fátækustu ríki heims og
fátækt fólk í ríkjum þar
sem gæðum er misskipt.
Alþjóðabankinn gegn-
ir lykilhlutverki í fjöl-
þjóðlegri þróunarsam-
vinnu Íslands, enda
meðal stærstu og áhrifa-
mestu alþjóðastofnana
á sviði þróunarsamvinnu. Með
virkri þátttöku Íslands á vett-
vangi bankans leggjum við
okkar af mörkum til efnahags-
legrar og félagslegrar uppbygg-
ingar þróunarlanda. Þar lætur
Ísland sérstaklega til sín taka
á sviði orku- og fiskimála, auk
sérstaks stuðnings við jafnrétt-
ismál.
Við höfum orðið vör við mik-
inn áhuga hjá þróunarríkjum
á samstarfi á þessum sviðum
enda gegna þau mikilvægu hlut-
verki þegar kemur að því að
stuðla að aukinni framþróun
og hagvexti í þróunarríkjum.
Árangurinn skilar sér til fólks-
ins með aukinni atvinnusköpun
og bættum lífskjörum. Sóknar-
færi Íslendinga eru töluverð,
enda getum við deilt þekkingu
okkar og reynslu með fátækari
ríkjum heims.
Samstarf Íslands, Alþjóða-
bankans og Norræna þróunar-
sjóðsins um aukna nýtingu
jarðhita í Austur-Afríku er
gott dæmi þar sem íslensk sér-
þekking gegnir lykilhlutverki.
Samstarfið gerir ráð fyrir að
Íslendingar aðstoði ríki við að
meta bestu jarðhitasvæðin, gera
nauðsynlegar grunnrannsóknir
og veita liðsinni við gerð áætl-
ana um jarðboranir til þess að
meta stærð auðlindanna. Vonir
eru bundnar við að samstarfið
muni leiða til aukinnar
raforkuframleiðslu sem
geti skipt sköpum fyrir
þetta fátæka svæði Afr-
íku. Með samstarfinu
erum við að bregðast við þeirri
miklu orkufátækt sem ríkir á
svæðinu, en aðgangur að orku
er af mörgum talinn einn mikil-
vægasti liðurinn í að stuðla að
aukinni hagsæld fátækra sam-
félaga.
Veigamikil vegferð
Í dag sit ég fund þróunarnefnd-
ar Alþjóðabankans og Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins fyrir hönd
Norðurlandanna og Eystrasalts-
ríkjanna. Á fundinum munu 25
ráðherrar og seðlabankastjórar
koma saman til að leggja lín-
urnar um framkvæmd nýrrar
stefnu Alþjóðabankans og ræða
hvernig bankinn geti betur
brugðist við fyrirliggjandi
áskorunum, styrkt hagvöxt og
jöfnuð í þróunarríkjum, ekki
síst í kjölfar efnahagserfiðleika
undanfarinna sex ára.
Ég tel áherslusvið okkar
innan bankans, jafnrétti, orku-
og fiskimál, vera meðal sviða
sem stuðlað geta að framþróun
og hagsæld og að Alþjóðabank-
inn þurfi að huga sérstaklega
að þessum atriðum til að ná til-
settum árangri.
Á Íslandi er til staðar haf-
sjór af þekkingu og reynslu sem
getur reynst þróunarríkjum
afar mikilvæg. Þannig getum
við Íslendingar stutt við þessa
veigamiklu vegferð.
➜ Árangurinn skilar
sér til fólksins með
aukinni atvinnu-
sköpun og bættum
lífskjörum.
Árið 2008 starfaði ungur
lögmaður hjá fyrirtækja-
ráðgjöf Kaupþings. Hann
fékk erindi frá fyrirtæki
í Dubai sem óskaði milli-
göngu um viðræður við
breskt fyrirtæki sem að
stærstum hluta var í eigu
íslenskra aðila. Þetta
leiddi til viðræðna milli
eigenda þessara tveggja
fyrirtækja sem urðu til
þess að gert var svokall-
að forsamkomulag (heads
of terms) um kaup Dubai-félags-
ins á 30% af breska fyrirtækinu
miðað við að heildarverð þess
væri 100 milljónir punda.
Vitni hjá lögreglu
Árið 2010 var lögmaðurinn kall-
aður sem vitni til skýrslugjafar
hjá sérstökum saksóknara þar
sem yfir stóð rannsókn á því
hvort verðið sem um var samið
í forsamkomulaginu gæti átt við
rök að styðjast. Grunsemdir voru
um að verðákvörðunin í forsamn-
ingnum væri einhliða tilbúning-
ur seljandans og tekin í því skyni
að skapa grundvöll til lántöku hjá
Glitni.
Lögmaðurinn lýsti því fyrir
lögreglu að hann hefði setið
samningafundi með fulltrúum
seljenda og kaupanda bæði í
Englandi og Dubai. Hann lýsti
eftir bestu getu ýmsum þáttum í
undirbúningi viðskiptanna. Gat
þess að hann myndi þetta ekki
vel en eflaust væri hægt
að finna einhver svör við
spurningum rannsak-
enda með því að fara í
tölvupósta og vinnugögn
hans hjá Kaupþingi. Við
starfslok hans hjá bank-
anum hefði hann, rétt
eins og aðrir starfsmenn,
verið sviptur aðgangi að
vinnugögnum sínum og
gæti því ekki gengið úr
skugga um það sjálfur
hvernig þetta hefði geng-
ið fyrir sig.
Vitni fyrir dómi
Árið 2014 var lögmaðurinn boð-
aður til þess að gefa skýrslu í
sakamáli um ofangreind atvik
fyrir Héraðsdómi Reykjavík-
ur. Fyrir orð eins verjenda í
málinu tókst að afla heimildar
réttra aðila til þess að lögmað-
urinn fengi komið á skrifstofu
slitastjórnar Kaupþings þar
sem hann skoðaði vinnugögn
sín. Þar kom m.a. í ljós að lög-
maðurinn hafði ásamt starfs-
félaga sínum farið sérstaka ferð
frá London til annarrar enskr-
ar borgar þar sem höfuðstöðvar
breska fyrirtækisins voru. Þeir
hittu æðstu stjórnendur félags-
ins sem kynntu komumönnum
rekstur félagsins, rekstraráætl-
anir og framtíðarsýn stjórnenda
um reksturinn.
Á grundvelli upplýsinganna og
gagnanna sem þannig fengust
vann fyrirtækjaráðgjöf Kaup-
þings verðmat á félaginu. Niður-
staðan var að eiginfjárvirði þess
væri 121 milljón punda. Matið,
ásamt forsendum og útreikning-
um, hafði verið sent forstjóra
stærsta hluthafa félagsins áður
en hann hóf viðræðurnar við
mennina frá Dubai. Þá kom einn-
ig í ljós bréf frá forsvarsmanni
kaupandans þar sem fram kom
sýn hans á verðmæti félagsins
sem hann taldi vera í efri hluta
verðbilsins 90-100 milljónir
punda. Nokkrum vikum síðar
urðu aðilar sammála um 100
milljóna punda verðið sem fram
kemur í forsamningnum.
Gölluð rannsókn
Vart verður deilt um mikilvægi
þess fyrir rekstur sakamálsins
að umræddar upplýsingar komu
fram. Enginn vill verða til þess
að saklaus maður verði sak-
felldur. Skylda rannsakenda er
jafnt sú að draga inn í mál það
sem kann að leiða til sýknu og
hitt sem leiða kann til sakfellis.
Spurningin verður hvernig það
gat gerst að grundvallargögn
eins og hér um ræðir skiluðu sér
ekki í hús við rannsókn málsins.
Gleymin vitni
Í fréttum af dómsmálum er iðu-
lega sagt frá því að vitni og sak-
borningar „beri fyrir sig“ að þeir
muni ekki atvik. Lögmaðurinn
sem um getur er enginn meðal-
maður. Samt mundi hann ekki
við yfirheyrslu hjá lögreglu eftir
ferðalagi, fundi og stórum verk-
þætti í verkefni sem hann hafði
tekið þátt í tveimur árum áður.
Um leið og hann fékk aðgang að
eigin gögnum gat hann upplýst
um þessi atvik sem eru svo mikil-
væg fyrir rannsókn málsins.
Minnið er brotakennt
Þeir sem þekkja til skýrslutöku
af vitnum um löngu orðin atvik
gera sér grein fyrir því hve
brotakennt minnið er. Til þess
að fá fram réttar upplýsingar
ber rannsakendum að tryggja að
vitni hafi aðgang að þeim gögn-
um sem geta stuðlað að réttum
framburði. Varði atvikin sem
eru til rannsóknar starf vitnis
ber rannsakendum í tilviki eins
og hér um ræðir að tryggja vitn-
inu aðgang að sínum eigin gögn-
um sé slíkt unnt. Skoðun sam-
tímagagna er langáreiðanlegasta
leiðin til þess að leiða hið sanna
í ljós.
Hlutverk verjanda
Í nýlegum dómi í svokölluðu Al
Thani-máli var fundið að því að
verjendur hefðu rætt við vitni í
málinu og borið undir þau gögn.
Var þessi háttsemi verjendanna
meira að segja talin andstæð
lögum. Taldi dómurinn þetta
leiða til þess að þau vitni væru
ekki trúverðug sem verjend-
ur höfðu rætt við. Undirritaður
telur þessa afstöðu dómenda
ranga. Í lögum er engin regla
um bann við því að verjandi ræði
við vitni. Þvert á móti er í 35. gr.
sakamálalaganna mælt fyrir
um skyldu verjanda til þess að
draga fram í máli allt sem verða
má skjólstæðingi hans til sýknu
eða hagsbóta og gæta réttar hans
í hvívetna.
Verjandi getur auðvitað ekki
dregið inn í mál upplýsingar
sem gætu orðið skjólstæðingi til
sýknu eða hagsbóta án þess að
leita til þeirra sem þekkja atvik-
in, þ.e. vitnanna í málinu. Engum
öðrum er til að dreifa sem geta
orðið að liði. Svo vill til að í mál-
inu sem nú er fyrir dómi féllst
dómforseti á og bókaði um það
sérstaklega, að verjendum væri
heimilt að ræða við vitni og leita
upplýsinga með þeim hætti.
Hefði það ekki verið gert er eins
víst að sakamálið hefði verið
tekið til dóms án þess að réttar
upplýsingar hefðu legið fyrir.
Þess getur enginn óskað.
Saga úr sakamáli
SAKAMÁL
Gestur Jónsson
hæstaréttarlög-
maður
➜ Verjandi getur auðvitað
ekki dregið inn í mál upp-
lýsingar sem gætu orðið
skjólstæðingi til sýknu eða
hagsbóta án þess að leita til
þeirra sem þekkja atvikin,
þ.e. vitnanna í málinu.
Orka, fi skur
og jafnrétti
ÞRÓUNAR-
SAMVINNA
Gunnar Bragi
Sveinsson
utanríkisráðherra
Save the Children á Íslandi
Samfélagsstyrkir
Landsbankans
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Umsóknarfrestur vegna samfélagsstyrkja er til og með mánu-
deginum 12. maí 2014. Rafrænar umsóknir og nánari upplýsingar
á landsbankinn.is.
Landsbankinn veitir 20 milljónum króna í samfélagsstyrki
árið 2014 sem úthlutað verður í tvennu lagi. Samfélags-
styrkjum er ætlað að styðja við verkefni á ýmsum sviðum,
þar á meðal í mannúðarmálum, menningu og listum,
menntun, rannsóknum og vísindum, einnig forvarna- og
æskulýðsstarfi og sértækri útgáfustarfsemi.
Samfélagssjóður Landsbankans hefur það hlutverk að veita styrki til verðugra
verkefna. Árlega eru ferns konar styrkir veittir: Námsstyrkir, nýsköpunarstyrkir,
samfélagsstyrkir og umhverfisstyrkir en afreksstyrkir eru veittir annað hvert ár.
Verkefni sem einkum koma
til greina:
Verkefni mannúðarsamtaka
og góðgerðarfélaga.
Verkefni á sviði menningar
og lista.
Menntamál, rannsóknir
og vísindi.
Forvarna- og æskulýðsstarf.
Sértæk útgáfustarfsemi.
Á hvoru úthlutunartímabili
verða veittir eirtaldir styrkir:
Fimm styrkir að upphæð
1.000.000 krónur hver.
Fimm styrkir að upphæð
500.000 krónur hver.
Tíu styrkir að upphæð
250.000 krónur hver.