Fréttablaðið - 12.04.2014, Page 20

Fréttablaðið - 12.04.2014, Page 20
BÓKINA Hinumegin við fallegt að eilífu eftir Kather- ine Boo. Mögnuð lýsing á baráttu fólks fyrir tilveru sinni í fátækra- hverfi í Mumbai á Indlandi. Á TÓNLISTINA úr kvikmynd- inni Her eftir Spike Jonze í flutningi Arcade Fire. Sóley Tómasdóttir borgarfulltrúi Ráðstefna og Bláfj öll Dagurinn í dag verður helgaður sveitarstjórnarráðstefnu Vinstri grænna í Flensborgarskólanum. Þar ætla nýir og gamlir frambjóðendur og sveitarstjórnarfólk að fræðast, vinna og kynnast. Á morgun vona ég að guð og lukkan lofi mér að kíkja í Bláfjöll á skíði með fjölskyldunni, enda ekki til betri leið til að dreifa huganum og njóta lífsins. Kjartan Guðmundsson morgunútvarpsmaður Liverpool og Prúðuleikarar Helgin fer í að búa sig andlega undir leikinn Liverpool– Manchester City, sem Liverpool vinnur vonandi, og svo ætla ég líka að sjá myndina um Prúðu- leikarana í bíó með dóttur minni. Yrsa Sigurðardóttir rithöfundur Uppi í sófa að skrifa Ég ætla að reyna að nota helgina til að skrifa eitthvað af næstu bók. Bara uppi í sófa. Það er nú ekki magnaðra en svo. Hálfdán Steinþórsson framkvæmdastjóri Elda, þrífa, skipta, hlæja Ég ætla að elda, þrífa, skipta um bleiur, baða, bursta, svæfa, horfa, kyssa, sleikja, klæða og keyra. Og svo aftur: þrífa, elda, skipta um bleiur, baða, svæfa og hlæja. Á GESTASPJALL á Kjarvals- stöðum á morgun klukkan 15. Úlfar Þormóðsson ræðir við gesti um ritskoðun og guðlast í tengslum við sýninguna Harro. Á LEIKINN milli Liverpool og Manchester City í ensku úrvalsdeildinni á Stöð 2 Sport 2 klukkan 12.30 á morgun. „Ég tengi verkefnið þessari vitundarvakningu um sjálf- bæran lífsstíl sem á við í dag og ég sjálf reyni að stunda,“ segir Björg Vilhjálmsdóttir sem sýnir verkefnið sitt á útskriftarsýn- ingu meistaranema í hönnun og myndlist frá Listaháskóla Íslands sem verður opnuð í dag, Verkefni Bjargar nefnist Slow treat-askurinn og er ker hugsað utan um ferskmeti. Markmiðið er að losna við einnota óvist- vænar umbúðir og tengja fæð- una við nærumhverfið. Ílátið er gert út bioplasti. „Ég er sjálf mikill göngugarpur og finnst það skemma þessa heildarupp- lifun sem gönguferðin er að vera með allar þessar einnota umbúðir utan um nestið. Vantar þessi upprunatengsl við fæðuna og að tengja saman fæðusam- félagið,“ segir Björg sem stefnir á að taka næstu skref með verk- efnið eftir að sýningunni lýkur. Alþjóðlegt meistaranám í myndlist og hönnun hófst í Listaháskóla Íslands haust- ið 2012 og er þetta því fyrsti árgangurinn sem setur fram MA-verkefni sín á sérstakri útskriftarsýningu. Á sýning- unni má sjá afrakstur tveggja ára háskólanáms á meistara- stigi þar sem hönnuðir og mynd- listarmenn hafa fengið tæki- færi til að efla þekkingu og þróa rannsóknir sínar á viðkomandi fagsviðum. Áhersla er lögð á skapandi og greinandi hugsun sem nýtist við framsækin verk- efni á fagsviðum hönnunar og myndlistar á Íslandi. Björg er myndlistarkona að mennt sem útskrifaðist úr Mynd- lista- og handíðaskóla Íslands árið 1988. „Ég starfaði sem graf- ískur hönnuðir og við bókaútgáfu áður en ég byrjaði í þessu námi. Mig langaði að fara úr þjónustu- hlutverkinu og hafa meiri áhrif á samfélagið en það var eitt af markmiðum námsins.“ Tengir saman fæðusamfélagið Björg Vilhjálmsdóttir er einn af tíu nemendum sem taka þátt í útskrift arsýningu meistaranema í hönnun og myndlist frá Listaháskóla Íslands sem verður opnuð í dag. Hún hannaði fæðuílát fyrir göngugarpa sem er vistvænt og hugsað utan um ferskmeti. Björg tengir verkefnið við sjálfb æran lífsstíl en ílátið er úr bioplasti. Hvað? Útskriftarsýning meistara- nema í hönnun og myndlist. Hvar? Gerðarsafn í Kópavogi. Hvenær? Opnuð kl. 15 í dag og stendur til 11. maí. Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is ASKURINN Björg Vilhjálms- dóttir hannaði matarílát sem heldur nestinu fersku og er vistvænt í leiðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Stór hluti af fólki í dag þjáist af svokall- aðri sykurlöngun sem oft er mjög erfitt að sigrast á. Aðalástæða sykurs í matvælum er aukið geymsluþol hans. Sykur hefur verið notaður öldum saman til að viðhalda gæðum matar. Undanfarna áratugi höfum við komið upp þoli fyrir þessu aukna magni sykurs. Það sem felst í því er að til þess að við finn- um sykrað bragð þurfum við alltaf stærri skammta af sykri. Því hafa nú margir orðið háðir þessum sykruðu matvælum. Sykr- aðir drykkir, líkt og gosdrykkir, hafa mikið af viðbættum sykri og auðvelt er að inn- byrða mikið magn af sykri á stuttum tíma. Með því að útiloka eða minnka neyslu á sykruðum drykkjum getum við betrumbætt mataræði okkar og auk þess stuðlað að þyngd- artapi. Vert er að taka það fram að ferskir ávext- ir falla ekki í flokk sykraðra matvara þó vissulega séu margir þeirra mjög sætir á bragðið. Ávextir innihalda náttúrulegan sykur í formi kolvetna og trefja sem hægja á upptöku næringarefna og orkan sem við fáum endist lengur. Ávextir eru klárlega ein besta leiðin til að fá sætt bragð í mataræðið. Ávaxtasafar geta hins vegar verið vanda- mál því trefjarnar hverfa við vinnsluna á söfunum og oft er sykri eða sætuefnum bætt við. Þetta á þó ekki við um nýpressaða safa. Heimild: heilsutorg.is Sigraðu sykurlöngunina með einföldum hætti Geir Gunnar Markússon, næringarfræðingur og einkaþjálfari, ræðir um sykur og sykurþörfi na. ÞAÐ ER ERFITT AÐ SIGRAST Á SYKURLÖNGUN Mikilvægt er að minnka neyslu á sykruðum drykkjum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY HELGIN 12. apríl 2014 LAUGARDAGUR12. apríl 2014 LAUGARDAGUR FARÐU HLUSTAÐU LESTU HORFÐU... Verkin á sýningunni eru mjög fjölbreytt en þar má m.a. sjá hvernig má leysa upp ósjálfbært og mengandi kerfi þar sem líftími neytendaum- búða er settur í samhengi við líftíma vöru, boðið er upp á nýjar leiðir til að mynda tengsl við umhverfið og minnka sóun með því að tengja sig nærumhverfi í gegnum mat og samneyti, ímynd íslenska hestsins er rýnd og þáttur mannsins í sköpulagi hans myndgerður, fjallað er um missi, minnið og ljósmyndina sem aðferð til að endurskapa minningar, rannsóknir gerðar á ummerkjum tungumálsins í málverkum sem leika á mörkum abstraksjónar og táknrænu og talað er í gegnum efnið í skúlptúrum sem standa sem hlutgerving tilfinninga. Útskriftarnemar eru: Ásgeir Matthíasson, Björg Vilhjálmsdóttir og Gréta Guðmundsdóttir af MA-námsbraut í hönnun. Halldór Ragnars- son, Katla Rós Völu- og Gunnarsdóttir, Kristín Helga Káradóttir, Kristín Gunnarsdóttir, Pia Antonsen Rognes, Ragnar Már Nikulásson og Rán Jónsdóttir af MA-námsbraut í myndlist. Sýningarstjóri er Birta Guðjónsdóttir. Fjölbreytt verkefni
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.