Fréttablaðið - 12.04.2014, Page 22

Fréttablaðið - 12.04.2014, Page 22
12. apríl 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 22 Gunnar Helgason undir-býr nú fjórðu bókina í vinsælli seríu sinni um fótbolta strákinn Jón Jónsson og vini hans. Víti í Vestmannaeyj- um, Aukaspyrna á Akureyri, Rang- stæður í Reykjavík og nú fjórða bókin, Gula spjaldið í Gautaborg sem Gunnar er í óða önn að skrifa fjalla um fótboltastrákinn Jón Jóns- son og vini hans. Bækurnar eru þó ekki eingöngu um fótbolta því Ívar, vinur Jóns, býr hjá drykk- felldum föður sínum sem beitir hann ofbeldi. Saga Ívars er lauslega byggð á sögu Guðmundar Ragnars. En hvernig kom samstarfið til? Gunnar: Við Gummi unnum saman hjá Latabæ og kynnt- umst þar. Einhvern daginn bauð hann mér að koma með sér í veiði. Gummi fór fram á að ég myndi hlusta á hann í klukkustund á meðan við veiddum og mér fannst það ekki hátt gjald fyrir að fá að fara að veiða. Ég hélt raunverulega að hann væri að fara að nálgast mig með einhverja viðskiptahugmynd, en mig grunaði ekki að hann ætl- aði að segja mér frá óvenjulegu lífs- hlaupi sínu. Guðmundur: Ég hef ekki áhuga á að segja einhverja sorgarsögu. En foreldrar mínir voru alkóhólistar og fóru mjög illa út úr því. Það var samt ekkert alltaf þannig, þegar ég var mjög ungur man ég eftir að hafa átt æðislega foreldra. Svo á einhverju augnabliki tók drykkj- an bara völdin. Fyrst var það þann- ig að pabbi fór að drekka miklu meira, en mamma var svo fljót að ná honum. Þá týnist allt. En það sem er kannski verst við þetta, að alast upp á heimili þar sem er mik- ill alkóhólismi og tilheyrandi læti, slagsmál og partí, er þessi leynd sem hvílir yfir ástandinu. Maður var kannski að mæta ósofinn, ólærður og kannski ekkert búinn að borða í skólann og var yfir- leitt tekinn og settur í skammar- krókinn. Ég ólst upp í litlu samfé- lagi og ég veit að það vissu allir af þessu. Pabbi var góður kall og gerði ýmsa góða hluti en það vissu allir af þessu drykkjuvandamáli. Hann var kennari og ég man stundum eftir að kennarar, sem maður hafði hitt í kennslustund sama dag, voru í partíi heima. Og þetta var allt svona, það vissu allir um þetta, eða margir – en það var enginn til í að tala við mann. Það er það sem ég tel að þurfi að breyta og þess vegna er ég að tala um þetta hér. Gunnar: Ég velti því auðvitað fyrir mér af hverju hann væri að segja mér þetta þarna í veiðinni og þá sagði hann mér að hann vildi koma sögunni á framfæri. Til þess að hjálpa öðrum, börnum og full- orðnum, í sömu aðstæðum. Guðmundur: Það er þessi leynd yfir þessu og þessi skömm sem ég held að sé hættulegust. Maður verður fyrir alls konar áföllum, það verða slys og slagsmál fara illa og oft á tíðum komu læknar heim til okkar, en við bræðurnir vorum þá bara lokaðir inni í herbergi og maður fékk aldrei að vita neitt. Það þarf engan ofsa, eða að rífa börn af heimilinu, það þarf bara að tala við þessa krakka og ljá þeim rödd. Maður vaknar alltaf daginn eftir og enginn man hvað gerðist nema börnin. Þetta er svo rosalega súr heimur að þú ferð að rífa sjálfan þig niður fyrir að hafa kannski ímyndað þér þetta, en maður sér ummerkin sem geta verið blóð eða hvaðeina en samt er eins og ekkert hafi gerst og allt er þaggað niður og þannig verða börn öryggislaus. Allt þetta ofbeldi, og allt sem ger- ist, það sem skiptir mestu máli er að láta þau vita að þau séu ekki sökudólgar. Fullorðna samfélagið hlustaði ekki Gunnar: Ég var með það í huganum að skrifa bækur um fótbolta fyrir börn en vantaði alltaf dýpri bak- sögu. Svo allt í einu small þetta, að ég gæti tvinnað svona saman og staðið við skuldbindinguna við Gumma í leiðinni, sem var að koma þessari sögu út. Í bókunum er það Ívar, sem býr hjá drykkfelldum föður – líkist ekkert því sem Gummi ólst upp við en er ínspírerað af því. Myndirðu ekki segja það? Guðmundur: Ég tengi mikið við það hvernig Ívari líður í sögunni, en þetta er ekki pabbi minn. Ég tengi líka við þetta fullorðna sam- félag sem vildi ekki hlusta, þannig að maður þurfti að grípa til eigin ráða. Ég var svo heppinn að ég átti afa og ömmu sem ég gat leitað til þegar hlutirnir voru sem verstir og ég held að það hafi átt sinn þátt í því að ég fetaði ekki sömu braut og mamma og pabbi, og báðir bræð- ur mínir. Þau sýndu mér að það var öðruvísi líf í boði. Þurfa að sjá útgönguleið Yngri bróðir Guðmundar, Snorri, lést úr ofneyslu árið 2009, en eldri bróðir hans hefur verið edrú í bráðum tuttugu ár. Foreldrar Guð- mundur eru báðir látnir, móðir hans fyrirfór sér fyrir sautj- án árum en pabbi hans lést fyrir skömmu, en hann var þá illa farinn af drykkju. Gunnar: Við Gummi erum sam- mála um að það vantar einhver úrræði fyrir þessi börn. Ég fór að lesa úr fyrstu bókinni í grunnskóla og var að segja frá bókinni. Sagði frá Ívari, og að hann væri óheppinn með pabba því hann væri alkóhól- isti og beitti börnin sín ofbeldi. Ég bætti svo við að ekki mætti lemja börn undir nokkrum kringum- stæðum og ef einhver væri í þeim aðstæðum yrðu þau að segja frá. Þá fóru svona sjö hendur á loft. Guðmundur: Þó að maður alist upp í þessu umhverfi er óþarfi að fara þessa leið sjálfur. Það eru vita- skuld margir sem gera það, en þjóðfélagið er líka að segja það við þig. Í stað þess að unnið sé með þessum krökkum eru þau, því miður, dálítið dæmd fyrir allt saman. Það er allavega mín reynsla. Ég trúi því samt að flest- ir foreldrar í þessari stöðu vilji losna. Þegar svona er komið fyrir fólki, virðist vandamálið vera óyfirstíganlegt, en ef þau sjá útgönguleið held ég að það geti fengið fólk til að fara í meðferð og taka sig á. Þetta snýst ekki um mig, eða að ég hafi meiðst, eða að ég og bræður mínir höfum falið okkur undir rúmi meðan það versta gekk yfir. Þetta snýst um það sem er aktúelt og er að gerast á þessari stundu. Gunnar: Já, en Gummi, börn þurfa að finna samhljóm. Til að þau samsvari sér og trúi að þarna sé maður sem skilur þau. Hittu mig eftir hálft ár Guðmundur: Ég vil fyrst og fremst vekja fólk til umhugsunar. Hver eru úrræðin fyrir krakka í svona stöðu? Við Gunnar fórum einu sinni að hitta barnasálfræð- ing hjá SÁÁ, sem var yndislegur og langaði að gera miklu meira, og var algjörlega með puttann á púlsinum, en hann sagði okkur að biðlistinn hjá sér væri hálft ár. Ímyndaðu þér hvað er erfitt fyrir barn að taka upp símann, þetta eru erfiðustu skref sem það mun nokkurn tíma taka, að opna á þetta þegar allir eru búnir að segja þér að halda öllu leyndu, alla ævi. Og hvert er svarið? Já. Hittu mig eftir hálft ár. Gunnar: Hálft ár hjá barni er hálf mannsævi. Guðmundur: Draumurinn er að koma á fót stofnun, sem börn geta leitað til. Ég held að síma- númer sé ekki nóg – einhver þarf að svara. Ég ætla ekki að dissa tólf spor eða AA-samtökin, eða hvað sem helst, en þetta er allt- af bara alkóhólistinn. Það er ekki nóg að vera í AA og fara á fundi en síðan er allt í steik heima. Og það eru örfáir krakkar sem vita sjálfir hvert þeir eiga að sækja sér hjálp. Ég þekki engan krakka sem myndi hugsa: „Já. Nú hefur ýmislegt gengið á og best er fyrir mig að fara að vinna í minni meðvirkni á Al-anon-fundi fyrir aðstandendur.” Gunnar: Það er ekki verið að ná til barnanna. Guðmundur: Það gleymist svo oft, og það er svo leiðinlegt, að það þarf bara að tala við þessi börn. Margir eru börn alkóhól- ista og eru að gera vonda hluti en eru góðir krakkar inn við beinið. Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is Það vissu allir af drykkjunni Guðmundur Ragnar Einarsson er barn alkóhólista. Hann var alinn upp í litlu samfélagi þar sem allir vissu um erfiðar heimilis- aðstæður, en lokuðu augunum fyrir því. Hann man eftir kennurum, sem hann hafði hitt í kennslustund, sama dag í partíum heima hjá sér og segir leyndina yfir ástandinu erfiðasta. Mikilvægast sé að ná til þessara barna og ljá þeim rödd. Gunnar Helgason hefur komið sögu Guðmundar á framfæri í gegnum barnabókaseríu en hann vinnur nú að nýrri bók í seríunni. Ása Margrét Sigurjónsdóttir er sálfræð- ingur hjá SÁÁ, en samtökin veita börnum alkóhólista þjónustu frá átta til átján ára. Hvað með börn sem eru yngri eða eldri? „Okkar þjónusta snýr aðallega að fræðslu um alkóhólisma og öllu sem því fylgir, auk þess sem það er forvörn gegn því að börnin leiðist sjálf út á þessa braut og einnig stuðningur vegna aðstæðna þeirra. Það var ákveðið að setja þennan aldursramma þar sem reynslan sýndi okkur að börn yngri en átta ára hafa ekki nægilegan þroska til að skilja þá fræðslu sem fer fram hér en það hafa verið undantekningar á þessu. Það fer algjörlega eftir aðstæðum barnanna. Það kemur fyrir að við fáum börn hingað yngri en átta ára sem við ræðum við og það kemur strax í ljós hvort okkar þjónusta hentar þeim aldurshópi.“ Stígið þið inn í einstök mál? „Hlutverk okkar er ekki beinlínis að stíga inn í þeirra aðstæður heldur frekar að veita þeim stuðning vegna aðstæðna þeirra. Ef ég tel að öryggi barnsins sé ógnað á einhvern hátt, þá beri mér lagaleg skylda til að tilkynna það til Barnaverndar og það gerum við hér ef börn búa við óviðunandi aðstæður. Við erum í góðu samstarfi við Barnavernd– bæði vísa þau börnum til okkar í viðtöl og við tilkynnum heimilisaðstæður sem við teljum skaðlegar barninu.“ Eru börn sjálf að hringja og biðja um viðtöl? „Nei, það er mjög lítið um það. Í flestum tilfellum er um að ræða skyldmenni sem koma börnum til okkar.“ Hversu langan tíma tekur að komast að? „Núna eru yfir fimmtíu börn á þessum biðlista og hann lengist bara. Það getur verið allt upp í 4-5 mánaða bið að komast að. Það væri hægt að gera meira ef það væri meira fjármagn. Þetta snýst náttúrlega algjörlega um það. Við vorum þrír sálfræðingar að sinna þessum málum fyrir tæplega ári, en núna er ég bara ein og þess vegna verður biðin sífellt lengri fyrir þessi börn.“ Hvað myndir þú vilja gera ef fjárráðin væru rýmri? „Reynslan hefur sýnt að almennt eru börnin og for- eldrar þeirra mjög ánægð með þjónustuna, það er mikið um endurkomuviðtöl. En það er alltaf hægt að bæta þjónustuna. Við viljum auðvitað stytta biðina hjá okkur svo að allir komist að þegar þörfin er sem mest. Ef það væri til nægilegt fjármagn væri hægt að bjóða börnum og fjölskyldum þeirra upp á betri þjónustu. Ég sé fyrir mér að það væri hægt að bjóða upp á heildræna sál- fræðimeðferð fyrir fjölskylduna þar sem er ekki aðeins unnið með barninu heldur með fjölskyldunni í heild.“ SÁLFRÆÐIÞJÓNUSTA SÁÁ FYRIR BÖRN ALKÓHÓLISTA LEYNDIN OG SKÖMMIN HÆTTULEGUST Guðmundur Ragnar og Gunnar eru sammála um að það sé ekki verið að ná til barna í sömu sporum og Guðmundur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.