Fréttablaðið - 12.04.2014, Síða 28
12. apríl 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 28
Tuttugu ár eru liðin frá því að Kurt Cobain, for-sprakki rokksveitar-innar Nirvana, svipti sig lífi á heimili sínu í Seattle, aðeins 27 ára
gamall. Tónlistarferill hans var
stuttur en áhrifa hljómsveitar-
innar gætir enn víða.
Cobain glímdi við þunglyndi,
heróínfíkn og illskæðan maga-
sjúkdóm en hæfileikar hans voru
óumdeilanlegir. Nirvana gaf alls
út þrjár breiðskífur auk fjölda
annarra útgáfna, en það er platan
Nevermind frá árinu 1991 sem
skaut sveitinni upp á stjörnuhim-
ininn. Þetta goðsagnakennda tríó
var í fremstu víglínu gruggbylgj-
unnar sem naut mikilla vinsælda
á tíunda áratugnum og skemmdi
dulúðin sem sveipaði söngvarann
síður en svo fyrir áhuga fólks á
sveitinni.
Kjaftasögur um hvernig and-
lát Cobains bar að garði lifa enn
góðu lífi. Ein sú lífseigasta er
sú að eiginkona hans, tónlistar-
konan Courtney Love, hafi ráðið
leigumorðingja til þess að bana
manni sínum. Samsæriskenn-
ingasmiðir eru þó einir á báti og
hefur lögreglu ekki þótt ástæða
til þess að rannsaka þær tilgátur
frekar.
En þrátt fyrir hrjúfan hráleika
Nirvana þekkja flestir einnig
mýkri hlið sveitarinnar. Hún var
í forgrunni á þekktustu tónleik-
um hennar; órafmögnuðum tón-
leikum sem haldnir voru fyrir
sjónvarpsstöðina MTV árið 1993.
Þeir voru gefnir út á plötunni
Unplugged in New York ári síðar,
en þá var Cobain allur.
Heiðar Örn Kristjánsson,
kenndur við hljómsveitirnar
Botnleðju og Pollapönk, hefur
aldrei farið í felur með aðdáun sína
á Nirvana. Hann rifjar upp kynni sín
af sveitinni. „Þetta er örugglega það
band sem mótaði mig einna mest
sem tónlistarmann,“ segir Heiðar
en hann hlustaði á Nevermind-
plötuna í Skífunni sama dag og
hún barst hingað til lands. „Ég setti
þessi afdrifaríku heyrnartól á mig
og varð fyrir algjörri hugljómun. Og
skömmu síðar stofnuðum við Botnleðju.“
Þegar Kurt Cobain féll í dá vegna ofneyslu fíkniefna
um mánuði fyrir dauða sinn héldu Botnleðjustrákarnir
og vinir þeirra vöku fyrir átrúnaðargoðið. „Við fylgdumst
með þessu og höfðum miklar áhyggjur. Pöntuðum landa
og drukkum honum til heiðurs,“ segir Heiðar og bætir
því við að það hafi verið mikil sorg þegar fregnirnar af
andlátinu bárust. Hann gefur þó lítið fyrir samsæriskenn-
ingarnar. „Maðurinn var auðvitað heróínfíkill og þetta er
ekkert í fyrsta sinn sem heróínfíkill sviptir sig lífi. Þetta
var bara maður sem átti bágt.“
Kurt fer í með-
ferð við heróín-
fíkn, en neysla
hans er talin
hafa hafist árið
1986. Hann kvænist Love á Havaí
og síðar sama ár fæðist dóttir
þeirra, Francis Bean Cobain.
Kurt stofnar
Nirvana með
Krist Novoselic,
skólafélaga
sínum
Haukur Viðar
Alfreðsson
haukur@frettabladid.is
STIKLAÐ Á STÓRU
Á STUTTRI ÆVI
1987
1988
1989
1990
1991
1992
1993
1994
20. FEBRÚAR
KURT DONALD
COBAIN
FÆDDUR Í
BORGINNI
ABERDEEN Í
WASHINGTON
15. JÚNÍ
Bleach, fyrsta breiðskífa
Nirvana, kemur út.
Trommarinn Dave Grohl gengur
til liðs við sveitina og tríóið
skrifar undir útgáfusamning
við Geffen. Kurt kynnist fram-
tíðareiginkonu sinni, Courtney
Love, en þau hófu ástarsamband
ári síðar.
24. SEPTEMBER
Önnur breiðskífa
sveitarinnar,
Nevermind, kemur
út og slær ræki-
lega í gegn. Hún
hefur selst í meira en
þrjátíu milljónum eintaka.
In Utero, þriðja og
síðasta breiðskífa
Nirvana, kemur út.
Hún selst ekki jafn
vel og Nevermind
en gagnrýnendur
eru yfir sig hrifnir.
Hljómsveitin kemur fram á
frægum órafmögnuðum tónleik-
um fyrir MTV-sjónvarpsstöðina.
4. MARS
Cobain er fluttur með hraði á
spítala í Róm eftir að hafa tekið
inn of stóran skammt af róhypn-
óli og öðrum lyfjum. Hann er þar
í fimm daga og segir Courtney
Love þetta hafa verið hans fyrstu
tilraun til sjálfsvígs.
18. MARS
Lögregla kölluð að heimili Cobains
í Seattle þar sem hann hefur læst
sig inni á baðherbergi með hagla-
byssu. Lögreglumenn leggja hald
á nokkur skotvopn, auk lyfja sem
Cobain hefur í fórum sínum.
30. MARS
Cobain fer í meðferð í Los Ange-
les. Degi síðar stingur hann af og
flýgur aftur til Seattle. Í fluginu
situr hann við hlið Duffs McKagan,
bassaleikara Guns N‘ Roses.
3. APRÍL
Love ræður einkaspæjara til
að hafa uppi á Cobain. Ekkert
hafði þá til hans spurst í rúmlega
tvo sólarhringa.
5. APRÍL
Cobain fremur sjálfsvíg með
haglabyssu á heimili sínu í
Seattle.
1967
➜ Drukku landa til heiðurs Cobain
NORDICPHOTOS/GETTY
GOÐSÖGN
SEM GLEYMIST SEINT
Kurt Cobain fannst látinn á heimili sínu 8. apríl 1994. Hann hafði skotið sig í höfuðið
með haglabyssu þremur dögum fyrr. Tónlistarferill hans var stuttur en áhrifaríkur.