Fréttablaðið - 12.04.2014, Síða 62
Húnaþing vestra
Staða aðstoðarskólastjóra
Grunnskóla Húnaþings vestra
Staða aðstoðarskólastjóra við Grunnskóla
Húnaþings vestra er laus til umsóknar.
Menntunarkröfur:
• Kennaramenntun og rét tindi t il kennslu
í grunnskóla
• Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar eða
uppeldis- og menntunarfræða æskileg
Hæfniskröfur:
• Frumkvæði og samstarfsvilji
• Góðir skipulagshæfileikar
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Að vera reiðubúinn til að leita nýrra leiða
í skólastarfi
• Sveigjanleiki og víðsýni í star fi og samskiptum
• Reynsla af faglegri forystu á sviði kennslu og
skólaþróunar æskileg
• F jölbrey t t reynsla af kennslu og vinnu með
börnum og unglingum
• Reynsla og/eða þekking á Byrjendalæsi og
Orð af orði kostur
Umsóknarfrestur er til 28. apríl 2014.
Einnig eru lausar til umsóknar tvær
tímabundnar stöður kennara við skólann.
Nánari upplýsingar um ofangreindar stöður er
hægt að finna á www.hunathing.is
eða hjá skólastjóra, Sigurði Þór Ágústssyni,
s. 8625466, siggi@hunathing.is.
Grunnskólakennarar takið eftir!
Einstakt tækifæri býðst nú til að kenna við minnsta skóla
landsins, Finnbogastaðaskóla, sem staðsettur er
í Árneshreppi á Ströndum.
Um fullt starf er að ræða frá 1. ágúst 2014.
Sláðu til og hringdu í Elísu skólastjóra
í síma 451-4032/691-7697 finnbs@ismennt.is
eða Oddnýju oddvita í síma 451-4001.
Umsóknarfrestur rennur út 26. apríl.
Óskar eftir bifvélavirkja í almennar viðgerðir
Íslenskumælandi og góð enskukunnátta.
Góð laun fyrir góðan bifvélavirkja.
Umsókn skal senda á lilja@bfo.is
Frekari upplýsingar veitar á staðnum eða í síma 567-7360
Auðarskóli í Dölum
Við Auðarskóla eru lausar stöður grunnskólakennara
fyrir skólaárið 2014 -2015. Um er að ræða almenna
kennslu og kennslu í list- og verkgreinum (smíði og
myndmennt) ásamt umsjón með nemendahópum.
Auðarskóli er samrekinn grunn-, leik- og tónlistarskóli
staðset tur í Búðardal. Í starfinu er lögð áhersla á
leiðsagnarmat, ábyrgð í námi og kennslu í blönduðum
nemendahópum. Aðstaða nemenda og starfsmanna
til leiks og starfs er með ágætum.
Nánari upplýsingar umskólann má finna
á www.audarskoli.is
Menntun og hæfniskröfur:
• Leyfisbréf til að starfa sem grunnskólakennari
• Farsælt starf í kennslu eða vinnu með börnum
• Áhugi á kennslu og skólastarfi
• Góð samskiptahæfni
• Frumkvæði og sjálfstæði í störfum.
Upplýsingar um stöðurnar veitir Eyjólfur Sturlaugsson
skólastjóri í síma 899 7037 eða á net fanginu
eyjolfur@audarskoli.is
Áhugasamir sendi umsókir ásamt ferilskrá rafrænt á
sama net fang.
Umsóknarfrestur er til 28. april 2014.
ht.is
Hvetjum alla sem uppfylla þessi skilyrði og hafa áhuga á auglýstum störfum
til þess að fylla út rafræna umsókn á heimasíðu okkar www.ht.is/starf
SÖLUFULLTRÚI Á SUÐURLANDSBRAUT
Leitum að sölufulltrúa í fullt starf í verslun okkar að Suðurlandsbraut, þar sem fyrir
er þéttur og skemmtilegur hópur sölufulltrúa. Lykilatriði er að umsækjendur eigi gott
með að vinna undir álagi, hafi ríka þjónustulund og tileinki sér sjálfstæð vinnubrögð.
Hvetjum konur sérstaklega til að sækja um.
LAGERSTARFSMAÐUR / BÍLSTJÓRI
Óskum eftir lagerstarfsmanni í fullt starf. Helst koma þeir til greina sem búa yfir
öguðum vinnubrögðum, nákvæmni og skipulagshæfileikum í bland við jákvætt
hugarfar. Viðkomandi þarf að vera líkamlega hraustur og eiga gott með að vinna í
samvinnu við hóp samstarfsmanna á lager. Æskilegt að viðkomandi hafi meirapróf
eða áhuga á að taka slíkt próf.
Heimilistæki var stofnað árið
1962 og er í dag leiðandi
fyrirtæki í sölu á raf- og
heimilistækjum á Íslandi.
Starfræktar eru 7 verslarnir
um land allt undir merkjum
Heimilistækja.
Boðið er upp á vandaðar
vörur frá fjölda virtra
framleiðanda á borð við
Philips, Whirlpool, Kenwood,
Denon, Nikon, NAD, DeLonghi,
Braun, Panasonic, Beko
og Vestfrost.
AKADEMÍSK STAÐA Á SVIÐI MENNTUNAR,
UPPELDIS- OG ÞROSKASÁLFRÆÐI VIÐ
SÁLFRÆÐISVIÐ HÁSKÓLANS Í REYKJAVÍK
Háskólinn í Reykjavík leitar að akademískum starfsmanni til að byggja upp og stunda rannsóknir á sviði menntunar,
menntastefnu og uppeldis- og þroskasálfræði. Sérstök áhersla er lögð á viðfangsefni sem tengjast stefnu og starfsemi
menntastofnana á leik- og grunnskólastigi. Ráðið verður í stöðu lektors, dósents eða prófessors og verður starfsheitið
ákvarðað út frá formlegu hæfismati.
STARFSSVIÐ:
Akademískur starfsmaður mun stunda rannsóknir, leiðbeina
nemendum í rannsóknarverkefnum og sinna kennslu á
sálfræðisviði, ásamt öðrum verkefnum sem tengjast námi
innan deildarinnar. Starfið veitir viðkomandi tækifæri til þess
að hafa áhrif á þróun rannsókna og kennslu á fagsviðinu
við háskóla sem hefur nýsköpun og frumkvöðlastarf
að leiðarljósi.
HÆFNISKRÖFUR:
• Doktorspróf (í sálfræði, þroskasálfræði, kennslufræði
eða tengdum greinum).
• Reynsla af kennslu á háskólastigi.
• Umsækjendur skulu vera virkir rannsakendur sem birt hafa
fræðigreinar á ritrýndum vettvangi.
• Sérstaklega er sóst eftir því að umsækjendur hafi náms-
og starfsreynslu á sviði menntunar- eða skólasálfræði,
þroskasálfræði eða skyldum sviðum sálfræðinnar.
Menntavegi 1 | 101 Reykjavík | Sími 599 6200 | www.hr.is
Frekari upplýsingar um sálfræðisvið má finna á hr.is/salfraedi. Þar að auki svarar dr. Kamilla Rún Jóhannsdóttir, forstöðumaður
grunnnáms í sálfræði (kamilla@ru.is) og dr. Þóranna Jónsdóttir, deildarforseti (thoranna@ru.is), fyrirspurnum um starfið.
Umsóknum skal skilað til Háskólans í Reykjavík á vefnum ru.is/lausstorf. Með umsókn skal fylgja ferilskrá, skrá yfir birt
rannsóknarverk, lýsing á rannsóknarsviði og áætlun í rannsóknum, upplýsingar um kennsluferil og um þrjá aðila sem veitt
geta meðmæli. Eintak af allt að þremur áhrifamestu ritrýndum birtingum umsækjanda má einnig fylgja með.
Umsóknarfrestur er til og með 5. maí 2014. Gert er ráð fyrir að viðkomandi muni hefja störf í ágúst 2014.
Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði fyrir einstaklinga og
samfélag með siðgæði, sjálfbærni og ábyrgð að leiðarljósi. Kennsla og rannsóknir við Háskólann í Reykjavík mótast af sterkum
tengslum við atvinnulíf og samfélag. Lögð er áhersla á þverfagleika, alþjóðlegt umhverfi, nýsköpun og góða þjónustu.
Nemendur háskólans eru um 3400 og starfa um 230 fastir starfsmenn við skólann auk fjölda stundakennara.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Sterk tengsl í
íslensku atvinnulífi
www.hagvangur.is