Fréttablaðið - 12.04.2014, Side 73
| ATVINNA |
ÚTBOÐ
LANDSPÍTALI FOSSVOGI
ÚTVEGGIR OG GLUGGAR A-ÁLMU
ÚTBOÐ NR. 15643
Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. Landspítala, óskar eftir
tilboðum í framkvæmdir við allsherjar viðgerðir og
endurbætur á ytra byrði suðurhliðar A-álmu Landspítala
í Fossvogi.
Gera á við steypu- og múrskemmdir útveggja, brjóta
niður svalir og endursteypa að miklu leyti. Endursmíða
svalahandrið og setja upp. Gera á við harðviðarglugga og
hurðir, 42 stórum furugluggum þarf að skipta út fyrir nýja
litaða álglugga og gera við aðra, gler verður endurnýjað.
Þá verður sett jöfnunarlag á útveggi og þeir ásamt köntum
og svalaloftum, steinaðir í heild sinni.
Helstu magntölur eru:
• Algluggar 42 stk.
• Einangrunargler 500 m2
• Svalahandrið 76 m
• Endursteypa 10 m3
• Steining 650 m2
Vettvangsskoðun verður haldin föstudaginn 11. apríl
kl. 10:00 að viðstöddum fulltrúa verkkaupa.
Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar
en 31. október 2014.
Útboðsgögn verða til sýnis og sölu á kr. 3.500 hjá Ríkis-
kaupum, Borgartúni 7C, 105 Reykjavík frá og með þriðju-
deginum 8.apríl 2014. Tilboðin verða opnuð hjá Ríkis-
kaupum þriðjudaginn 29. apríl kl. 14:00 að viðstöddum
þeim bjóðendum sem þess óska.
FRAMKVÆMDASÝSLA RÍKISINS
ÚTBOÐ Á ENDURBÓTUM
OG VIÐBYGGINU LEIKSKÓLA
Sveitarfélagið Flóahreppur auglýsir útboð á
endurbótum og viðbyggingu við leikskólann
Krakkaborg, Þingborg.
Hér er um almennt útboð að ræða og lýtur það þeim
reglum sem um þau gilda.
Um er að ræða verulegar endurbætur á núverandi
leikskólahúsnæði ásamt byggingu 245,8 m2 viðbyggingar.
Innifalið í tilboði skal vera allt sem til þarf að ljúka verkinu
eins og það er skilgreint í útboðsgögnum.
Verklok eru 19. desember 2014.
Útboðsgögn verða afhent rafrænt. Senda þarf beiðni á
tölvupóstfangið floahreppur@floahreppur.is með nafni,
kennitölu, heimilisfangi og síma bjóðanda.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Flóahrepps, Þingborg fyrir
kl. 12.00 mánudaginn 28.apríl 2014, en þá verða þau opnuð
að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Nánari upplýsingar veitir undirrituð,
floahreppur@floahreppur.is eða í síma 480-4370.
Margrét Sigurðardóttir, sveitarstjóri Flóahrepps
Skálholt
Bújörðin Skálholt auglýst til ábúðar
Kirkjuráð íslensku þjóðkirkjunnar, f.h. kirkjumálasjóðs,
auglýsir lausa til ábúðar jörðina Skálholt, landnúmer 167166,
Biskupsstungum, sveitarfélaginu Bláskógabyggð. Ábúðar-
samningur verður til fimm ára frá og með 1. júní 2014, með
möguleika á framlengingu.
Ábúðarsamningnum fylgir starf ráðsmanns á Skálholtsstað,
sem gerður verður sérstakur ráðningarsamningur um.
Sjá nánari upplýsingar á kirkjan.is
ÚTBOÐ
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í eftirfarandi Útboð
1. Kaup á vörubifreið með krókheysi
Opnun tilboða miðvikudaginn 30. apríl 2014 kl. 11:00
Útboðsgögn afhent hjá:
Umhverfi og framkvæmdir
Norðurhellu 2
Hafnarfirði
Frá og með mánudeginum 14. apríl á kr. 2.000.- fyrir hver
tilboðsgögn.
Tilboð verða opnuð á sama stað að viðstöddum þeim
bjóðendum er þess óska.
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna
öllum.
Umhverfi og framkvæmdir
Hafnarfjarðarbær.
Innkaupadeild
Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg:
• Gönguleiðir skólabarna 2014, útboð nr. 13226.
• Leikskóla- og skólalóðir: Fallvarnar- og yfirborðsefni,
útboð nr. 13180.
• Fossvogsskóli, endurgerð lóðar 2014, 1. áfangi,
útboð nr. 13184.
• Ölduselsskóli, endurgerð lóðar 2014, 1. áfangi,
útboð nr. 13185.
Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod
GLÆSILEGT ATVINNUHÚSNÆÐI
Á AKUREYRI TIL LEIGU
STRANDGATA 3
258 m2 húsnæði til leigu á besta stað í miðbæ Akureyrar,
við Ráðhústorgið.Inngangar og útstillingagluggar bæði
að austan og vestan. Mjög sýnilegt öllum sem fara um
miðbæ Akureyrar. Húsnæðið er innrét tað sem fata-
verslun , en áður hefur verið rekin veitingarstaður í
eigninni. Stór og sólrík verönd framan við húsnæðið
gefur mikla möguleika, og næg bílastæði eru í grennd.
Upplýsingar gefur Aðalsteinn Árnason
í síma 666 1077 eða á vgj@nett.is
www.gardabaer.is
Tækni- og umhverfissvið
Garðabær, auglýsir eftir tilboðum í byggingu
2ja hæða viðbyggingar við Hofsstaðaskóla,
Skólabraut 5 í Garðabæ, ásamt með
breytingum innandyra í núverandi
skólabyggingu og frágangi aðliggjandi lóðar
umhverfis viðbyggingu.
Byggingin er staðsteypt 2ja hæða
skólabygging með flötu einangruðu og
dúklögðu þaki, pússuð að utan og einangruð
og pússuð að innan. Byggingunni skal skilað
fullbúinni að utan sem innan 1. ágúst 2015.
Helstu stærðir:
• Grunnflötur byggingar 605 m²
• Heildarstærð 1140 m²
• Mótafletir 3.700 m²
• Steinsteypa 650 m³
• Steypustyrktarjárn 48 tonn
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum
sem eru rafræn og verða aðgengileg á vef
Garðabæjar, www.gardabaer.is frá
þriðjudeginum 15. apríl nk.
Tilboðum skal skilað eigi síðar en 20. maí
2014 kl 11:00 á Bæjarskrifstofur
Garðabæjar, Garðatorgi 7, Garðabæ, þar
sem þau verða opnuð að viðstöddum þeim
bjóðendum sem þess óska.
ÚTBOÐSAUGLÝSING
HOFSSTAÐASKÓLI
4. ÁFANGI
ÚTBOÐ
Göngustígur og stofnlagnir í Fellabæ
Hitaveita Egilsstaða og Fella óskar eftir tilboðum í verkið GÖNGUSTÍGUR OG STOFNLAGNIR Í FELLABÆ.
Verkið felst í lagningu á 580 m löngum göngustíg samhliða endurnýjun á 750 m af stofnlögnum hitaveitu
og vatnsveitu meðfram hringvegi frá Smiðjuseli að Lagarbraut í Fellabæ ásamt 250 m af öðrum lögnum.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Hitaveitu Egilsstaða og Fella, Einhleypingi 1,
700 Egilsstöðum, frá og með miðvikudegi 9. apríl 2014, eða samkvæmt samkomulagi.
Nánari upplýsingar á heimasíðu HEF, www.hef.is.
Tilboð verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 30. apríl 2014 kl. 14:00
að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Sterk tengsl í
íslensku atvinnulífi
www.hagvangur.is
LAUGARDAGUR 12. apríl 2014 17