Fréttablaðið - 12.04.2014, Síða 74
Ársfundur
Eftirlaunasjóður starfsmanna Útvegsbanka
Íslands boðar til ársfundar
þriðjudaginn 29. apríl 2014 kl. 17.00
á Grand Hótel, Háteigi A.
Dagskrá:
Skýrsla stjórnar.
Tillaga að breytingum
á samþykktum sjóðsins.
Önnur hefðbundin ársfundarmál.
Allir sjóðfélagar eiga rétt á setu á ársfundi með málfrelsi
og tillögurétti. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta.
Stjórnin.
kopavogur.is
Bæjarsjóður Kópavogs óskar eftir tilboðum í malbiksviðgerðir á götum í Kópavogi og malbikun stíga og gangstétta
2014 og 2015.
Í verkinu fellst að gera við skemmd malbiksslitlög á götum í Kópavogi og malbikun á gangstéttum og stígum í
nýbygginga hverfum í Kópavogi.
Helstu verkliðir eru:
Fræstar viðgerðir
Malbikssögun
Malbikun viðgerðra flata
Malbikun gangstétta og stíga
Verkinu skal að fullu lokið 30. september ár hvert.
Útboðsgögn á geisladiski verða seld á kr. 5.000 – í þjónustuveri Kópavogsbæjar Fannorg 2 frá og með þriðjudeginum
15. apríl 2014.
Tilboðum skal skilað á sama stað þriðjudaginn 6. maí 2014 fyrir kl. 11:00 og verða þau þá opnuð í viðurvist þeirra
bjóðenda er þar mæta.
ÚTBOÐ
MALBIKUN OG VIÐGERÐIR Á GÖTUM Í KÓPAVOGI 2014 - 2015
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur
Með vísan til 24. gr. reglugerðar nr. 785/1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með
sér mengun eða mengandi starfsemi, mun tillaga að starfsleyfisskilyrðum fyrir neðangreint fyrirtæki
liggja frammi hjá Þjónustuveri Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, 1. hæð, frá 14. apríl til 14. maí 2014.
Rétt til að gera athugasemdir hafa eftirtaldir aðilar:
1. Sá sem sótt hefur um starfsleyfi svo og forsvarsmenn og starfsmenn tengdrar
eða nálægrar starfsemi.
2. Íbúar þess svæðis sem ætla má að geti orðið fyrir óþægindum vegna mengunar.
3. Opinberir aðilar, félög og aðrir þeir sem málið varðar.
Rétt til að gera athugasemdir hafa eftirtaldir aðilar:
Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendast Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur,
Umhverfis- og skipulagssviði, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, í síðasta lagi 14. maí 2014.
Auglýsing á starfsleyfistillögu vegna bensínstöðvar með metangasafgreiðslu.
Fyrirtæki/gildistími starfsleyfis í árum Almenn skilyrð Sértæk skilyrði Reglugerð 785/1999 Staðsetning
Olíuverzlun Íslands hf. / 12 ár X X X Álfheimar 49
Í boði eru m.a. stórar lóðir í Hellna- og Kapelluhrauni,
sem veita fyrirtækjum aukna möguleika til
uppbyggingar í framtíðinni. Tímabundin afsláttarkjör.
Allar upplýsingar um lóðir, stærðir og lóðaverð er að
finna á www.hafnarfjordur.is. Á vefnum er einnig að
finna skipulagsuppdrætti, skilmála og upplýsingar.
Fyrirspurnir sendist á lodir@hafnarfjordur.is.
Hafnarfjarðarbær leggur áherslu á að skapa gott og aðlaðandi
starfsumhverfi fyrir fyrirtækin í bænum. Bærinn vill stuðla að nýrri
atvinnuuppbyggingu en styrkleiki atvinnulífs Hafnarfjarðar felst í reynslu
og þekkingu á stóriðju, iðnaði, hafnarstarfsemi, framleiðslu-
og þekkingariðnaði, ferðaþjónustu og verslun og þjónustu.
ATVINNULÓÐIR
EINN BESTI STAÐUR
HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS
SAMFÉLAGSSJÓÐUR EFLU
Samfélagssjóður EFLU var stofnaður árið 2013 í tilefni af 40
ára afmæli fyrirtækisins. Markmið sjóðsins er að láta gott af
sér leiða og er hlutverk hans að veita styrki til verðugra
verkefna. EFLA styður uppbyggjandi og jákvæð verkefni í
samfélaginu.
Umsóknum skal fylgja greinargóð lýsing á markmiði eða
viðfangsefni, þó ekki meira en ein síða að lengd.
Umsóknir þurfa að berast sjóðnum fyrir 1. maí
næstkomandi. Allar nánari upplýsingar og leiðbeiningar
vegna umsókna má finna á efla.is.
EFLA hf. Höfðabakki 9 110 Reykjavík Sími 412 6000 www.efla.is
www.gardabaer.is
Tækni- og umhverfissvið
Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með
eftirfarandi tillögur að breytingum á
deiliskiplagi í samræmi við 1. mgr. 43. gr.
Skipulagslaga nr. 123/2010.
1.
Tillaga að breytingu deiliskipulags
Sjálands, Strikið 1-3
Tillagan gerir ráð fyrir því að byggingarreitur
fjölbýlishúss breytist sem og aðkoma og
fyrirkomulag bílastæðakjallara.
Byggingarmagn er óbreytt.
2.
Tillaga að breytingu deiliskipulags
Akrahverfis, hljóðvarnir við
Hafnarfjarðarveg
Tillagan gerir ráð fyrir breytingum á
hljóðmönum og legu göngustígs við
Hafnarfjarðarveg á móts við Breiðakur.
Tillögurnar liggja frammi á bæjarskrifstofum
Garðabæjar, Garðatorgi 7, frá 14. apríl til og
með 26. maí 2014. Þær eru ennfremur
aðgengilegar á heimasíðu Garðabæjar
www.gardabaer.is. Þeim sem telja sig eiga
hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að
gera athugasemdir við tillögurnar. Frestur til
þess að skila inn athugasemdum rennur út
mánudaginn 26. maí 2014. Skila skal
athugasemdum á bæjarskrifstofur
Garðabæjar og skulu þær vera skriflegar og
undirritaðar. Þeir sem ekki gera
athugasemdir við tillögurnar fyrir tilskilinn
frest teljast samþykkir þeim.
Arinbjörn Vilhjálmsson
skipulagsstjóri Garðabæjar
AUGLÝSING UM
DEILISKIPULAG Í
GARÐABÆ
Save the Children á Íslandi