Fréttablaðið - 12.04.2014, Qupperneq 90
KYNNING − AUGLÝSINGPáskar LAUGARDAGUR 12. APRÍL 20148
„Ég ólst upp við vín-
gerð og æskuminn-
ingar mínar snú-
ast um spænsk vín.
Ég man ilminn í
vínskemmunni
okkar og af tunn-
unum, fullum af
víni, og þegar fjöl-
skyldan smakkaði
vínin heima,“ segir
Gloria Collell, höf-
undurinn á bak
við Mia, nýja og
spennandi við-
bót við spænska
vínframleiðslu.
Gloria hannaði
vínið í samvinnu
við Freixenet, sér-
staklega fyrir konur.
„Ég tók eftir því að konur virt-
ust ekki falla fyrir spænskum
vínum því mörg þeirra þóttu gam-
aldags. Í samstarfi mínu við Freix-
enet lagði ég því til nýja nálgun til
að búa til líflegt og ferskt vín sem
myndi höfða til fólks um allan
heim. Mia-vínin eru ávaxtavín og
unnin þannig að spænska vínþrúg-
an njóti sín sem best. Ég veit að þótt
ég hafi búið vínin til með konur í
huga líkar karlmönnum þau ekki
síður.“
Hvað er það við spænsk vín sem
þér líkar?
„Fjölbreytileikinn í vínþrúgun-
um sem eingöngu eru ræktaðar á
Spáni finnst mér frábær, eins og
Tempranillo- og Parellada-þrúg-
urnar. Við gerð Mia tókst mér að
sameina íberískar þrúgur og nú-
tíma víngerðartækni við þann stíl
og lífsþrótt sem einkennir Barce-
lona, mína heimaborg. „Barcelona
í flösku“ er frábær lýsing á Mia-vín-
unum.“
Hver var innblásturinn á bak við
merkingarnar á flöskunum?
„Orðið „mia“, sem þýðir mitt á
spænsku, var mikið notað meðan
á vinnsluferlinu stóð. Þróun þessa
víns var afar spennandi og hreint
ævintýri fyrir alla sem komu þar
að, Freixenet-fjölskylduna, vín-
ekrubændurna og okkur öll. Okkur
finnst við öll eiga vínið og þess
vegna fannst okkur Mia viðeigandi
nafn. Á miðanum er nafnið mótað
með mósaíkmunstri, sem vísar til
verka hins fræga arkitekts, Gaudi.
Þá er saga mín og undirskrift einnig
á flöskunni, sem gerir merkinguna
persónulega.“
Handbragð konu
Mia-vínin eru ný og spennandi viðbót við spænska vínframleiðslu.
Gloria Collell er höfundurinn á bak við Mia en ástríða hennar fyrir víni
og lífið í Barcelona varð henni innblástur við gerð þess. Hún segir
„Barcelona í
Mia rauðvín: 12,5%
Silkimjúkt vín unnið úr Tempr-
anillo-vínþrúgum. Vínið ber ríkan
ávaxtakeim með þykku berja- og
plómubragði. Hentar vel með
pastaréttum eða eitt sér.
Mia hvítvín: 11%
Ferskt og létt með ríkum ávaxta-
keim og votti af hunangi. Vínið er
blanda af spænskum vínþrúgum
og hentar vel sem fordrykkur eða
með grilluðum kjúklingi.