Læknablaðið - 15.11.2000, Blaðsíða 97
RÁÐSTEFNUR / ÞING / STYRKIR
Ráðstefna um rannsóknir
í læknadeild HÍ
4. og 5. janúar 2001
Tími og umsjónaraðili: Ráðstefna um rannsóknir í læknadeild Háskóla íslands verður haldin 4. og 5. janúar
2001. Umsjón með ráðstefnunni hefur Vísindanefnd læknadeildar HÍ.
Staðsetning: Ráðstefnan fer fram í Odda.
Þátttakendur: Þátttaka í dagskrá ráðstefnunnar miðast við kennara og starfsmenn deildarinnar, það er í
læknisfræði og sjúkraþjálfun auk lyfjafræði. Ennfremur er gert ráð fyrir þátttöku starfsmanna stofnana sem
tengjast deildinni og kennslusjúkrahúsum landsins. Aðilum sem vinna að rannsóknum í samvinnu við starfsmenn
læknadeildar er einnig boðin þátttaka. Aðgangur að ráðstefnunni er öllum heimill.
Þátttökugjald: Kr. 3000 almennt gjald, kr. 1000 fyrir háskólanema. Ekki verður tekið við greiðslu með kortum.
Erindi og veggspjöld: Gert er ráð fyrir frjálsum erindaflutningi (10 mínútur hvert erindi, með fyrirspurnum) og
spjaldasýningu (stærð veggspjalda 90x120 cm). Veggspjöld verða til sýnis einn dag. Höfundar komi með
veggspjöld tilbúin til uppsetningar.
Skráning: Framkvæmdastjóri ráðstefnunnar Birna Þórðardóttir (sjá netfang að neðan) tekur við skráningu,
þátttakendur er hvattir til að skrá sig tímanlega.
Ágrip: Ágrip erinda og veggspjalda verða gefin út í Fylgiriti Læknablaðsins sem mun koma út fyrir ráðstefnuna.
Leiðbeiningar fyrir ágrip:
Framkvæmdastjóri ráðstefnunnar er Birna Þórðardóttir, símar: 564 4104 (v) / 552 9075 (h) / 862 8031, netfang:
birna@icemed.is
Vísindanefnd læknadeildar HÍ
Ástríður Pálsdóttir Tilraunastöð HÍ Keldum, s. 567 4700
Elías Ólafsson taugalækningadeild Landspítala Hringbraut, s. 560 1660, formaður nefndarinnar
Jens A. Guðmundsson kvennadeild Landspítala Hringbraut, s. 560 1000
Reynir Arngrímsson læknadeild HÍ, s. 525 3600
Þorsteinn Loftsson lyfjafræóideild HÍ, s. 525 4464
Vísindasjóður Félags íslenskra
heimilislækna
Umsóknir um vísindastyrki fyrir haustúthlutun 2000 þurfa að berast sjóðnum fyrir 15. nóvember og séu stílaðar
á undirritaðan.
Umsóknum ber að skila á þar til gerðum eyðublöðum ásamt rannsóknar- og fjárhagsáætlunum. Hægt er að
sækja eyðublöðin og sjá lög Vísindasjóðsins á heimasíðu FÍH, http://www.heimilislaeknar.is
Fyrir hönd stjórnar Vísindasjóðs FÍH
Þórir B Kolbeinsson formaður
Þrúðvangi 22, 850 Hellu
Netfang: thorbk@vortex.is
Læknablaðið 2000/86 815