Læknablaðið - 15.11.2000, Blaðsíða 9
FRÆÐIGREINAR / RITSTJÓRNARGREIN
samanburðarrannsókn (case-control study) í þessum
faraldri þar sem stór hluti þjóðarinnar var úsettur
(exposed) fyrir smiti og tilfellin sem greindust
yfirleitt stök. DNA rannsóknir staðfestu að sá
kampýlóbakter sem greindist í mönnum var í flestum
tilvikum af sama toga og hafði mengað kjúklingana. í
kjölfarið var lögð fram sérstök aðgerðaráætlun til að
draga úr mengun í kjúklingaræktinni og slátruninni.
Voru þessar aðgerðir unnar í góðri samvinnu við
kjúklingaiðnaðinn með þeim árangri að verulega
hefur dregið úr sýkingum í mönnum á þessu ári.
Þann 11. september á þessu ári varð fyrst vart við
faraldur af Salmonella typhimurium á Reykja-
víkursvæðinu. Sýkillinn var sérstakur því hann var
ónæmur fyrir mörgum sýklalyfjum. Sú ályktun var
dregin að hann ætti uppruna sinn erlendis enda
óþekktur hér á landi. Þá þegar var hafist handa við
faraldsfræðilega rannsókn. Fyrstu niðurstöður sýndu
að það var aðallega ungt fólk á aldrinum 15-30 ára
sem hafði sýkst. Það sem nánast allir hina sýktu áttu
sameiginlegt var að þeir höfðu borðað á veitinga- og
skyndibitastöðum skömmu fyrir veikindin. Með því
að skrá þá daga þegar fólk veiktist mátti sjá að hér
var um atsótt að ræða sem var bundin við smitefni
sem var í umferð síðustu dagana í ágúst og fyrstu 8-10
dagana í september. Þannig hagaði til að 12 manna
hópur hafði snætt saman á einum þeirra veitinga-
staða sem oft var nefndur í upphafi faraldursins af
þeim sem sýkst höfðu. Fjórir af þessum 12 veiktust af
iðrasýkingu.
Samanburðarrannsókn leiddi í Ijós að það sem
þeir áttu sameiginlegt sem veiktust var neysla
jöklasalats en þeir sem ekki veiktust höfðu ekki neytt
þess. Tölfræðilega marktækt samband var því milli
neyslu jöklasalats og sjúkdóms (nákvæmnipróf
Fishers = p<0,005). Athuganir Heilbrigðiseftirlits
Reykjavíkur leiddu í ljós að áðurnefndur staður og
annar skyndibitastaður, þar sem margir sem höfðu
sýkst eftir að hafa neytt þar matar, höfðu það
sameiginlegt að hafa keypt jöklasalat frá sama aðila.
Jafnframt lá fyrir að flestir aðspurðra höfðu það
sameiginlegt að hafa neytt salats og þá sérstaklega
jöklasalats. Á þessum forsendum var umrædd mat-
vara innkölluð þótt sýnt þætti að erfitt yrði að finna
hana þar sem líftími salats er stuttur á markaði. Það
er þó mikilvægt að allir möguleikar séu kannaðir til
hlítar þótt tíma taki.
Þessi atsótt hefur líka sýnt mikilvægi alþjóðlegs
samstarf í sóttvörnum. Upplýsingar höfðu borist frá
Bretlandi um svipaðan faraldur þar í landi.
Salmonellustofninn var sendur til London þar sem
nánari greining á honum sýndi að hann var af
sérstökum undirstofni sem nefnist DT204b. í
Englandi höfðu greinst mörg sjúkdómstilfelli af S.
typhimurium DT104 í ágúst og september síðast-
liðnum sem einnig er fjölónæmur fyrir sýklalyfjum.
Nú bar svo við að samsvarandi faraldur hafði komið
upp sumstaðar í Bretlandi í september og gengur hér
á landi. Þá hafa borist upplýsingar um tilfelli af
völdum DT204 annars staðar í Evrópu meðal annars
í Hollandi og Þýskalandi sem einnig hafa greinst í
september. Verið er að bera saman þessa stofna
sýkilsins og faraldsfræði sjúkdómsins í þessum
löndum. Sýkillinn hefur einnig verið sendur til
Bandaríkjanna svo hægt sé að bera hann saman við
stofna þar í landi.
Það er brýnt að faraldsfræðileg rannsókn á upp-
runa smits sé ekki eingöngu bundin við að finna hina
menguðu fæðu heldur þarf að útskýra þá atburðarás
sem leiddi til mengunarinnar. Er þá mikilvægt að þeir
aðilar sem framleiða matvæli, dreifa þeim og fram-
reiða, vinni með að rannsókn málsins. Það er stað-
reynd að matvælaiðnaður er áhættuiðnaður. Þegar
sótt brýst út sem skaðar fjölda manna er brýn nauð-
syn á að gripið sé til aðgerða sem stundum þurfa að
byggjast á faraldsfræðilega rökstuddum gruni um
uppruna smits þótt endanleg sönnun liggi ekki fyrir
um hann. Er þá óhjákvæmilegt að þeir sem tengjast
framleiðslu eða dreifingu viðkomandi matvæla hafi
af því óþægindi. Affarasælast er að allir aðilar málsins
leggist á eitt við að komast að hinu sanna með
almannaheill í huga. Með þeim hætti er hægt að
byggja upp traust á matvælaframleiðslunni, dreifingu
matvæla og framreiðslu.
Sjúklingarnir og læknar þeirra gegna lykil-
hlutverki í faraldsfræðilegri rannsókn á farsótt.
Greining fæst ekki nema að læknir sendi sýni á sýkla-
fræðideild til rannsóknar. Jafnframt þurfa læknar að
tilkynna sóttvarnalækni eða héraðslæknum, sem eru
sóttvarnalæknar í héraði, um hættulega smitsjúk-
dóma, sem tilnefndir eru í reglugerð um tilkynninga-
skylda sjúkdóma, án ónauðsynlegrar tafar hvort
heldur þeir stunda sjúklinga eða starfa á rannsóknar-
stofu við greiningu þeirra. Tilgangurinn er að ná
skilvirkri vöktun hættulegra smitsjúkdóma svo að
unnt sé að grípa til lögbundinna sóttvarnaaðgerða,
reynist þeirra þörf. Samkvæmt áðurnefndum
breytingum á sóttvarnalögum, sem gildi tóku 1.
september á þessu ári, skal sóttvarnalæknir gera
faraldsfræðilega rannsókn á uppruna smits sem
ógnar heilsu manna og hefur til þess víðtækar
heimildir. Þessar rannsóknir eru nú gerðar í náinni
samvinnu við sýklafræðideild Landspítalans og eftir
atvikum heilbrigðiseftirlitin, Hollustuvernd ríkisins
og yfirdýralækni. Þótt það sé grundvallarregla að haft
sé samband við lækni sjúklings við faraldsfræðilega
rannsókn geta aðstæður verið með þeim hætti að
ekki náist til læknis áður en aflað er mikilvægra
upplýsinga frá sjúklingi með sjúkdóm sem ógnar
heilsu manna. Samvinna við lækna hefur yfirleitt
verið með ágætum og árvekni þeirra skiptir sköpum
um sóttvarnir í landinu.
Læknablaðið 2000/86 737