Læknablaðið - 15.11.2001, Qupperneq 32
FRÆÐIGREINAR / TÍÐNI KRANSÆÐASJÚKDÓMA
Figure 1. Myocardiul infarction death rate in Iceland 1951-1996. Standardized per 100 000
men and women aged 30 and older.
81 82 83 84 85 86 87 88 89 90 91 92 93 94 95 96 97 98
Year
Figure 2. Myocardial infarction death rate, incidence rate and attack rate in Icelandic men
aged 25-74. Age standardized (world population). MONICA Iceland Study.
Figure 3. Myocardial infarction death rate, incidence rate and attack rate in Icelandic
women aged 25-74. Age standardized (world population). MONICA Iceland Study.
veginn í stað eða lækkar (tafla I). Við lok seinni
heimsstyrjaldarinnar eru blóðþurrðarsjúkdómar í
hjarta um 10% dánarorsaka en verða mest um 30% á
tímabilinu 1976-1985.
Frá 1951-1996 er til aldurstöðluð dánartíðni vegna
kransæðasjúkdóms eftir kyni (2,3,9,10,12). Þróunin
er sýnd á mynd 1. Tíðnin meir en tvöfaldast meðal
karla á tímabilinu 1950-1970 og vex einnig verulega
meðal kvenna, stendur síðan að mestu í stað næstu
10-15 árin en hefur lækkað verulega frá því um 1980.
Þegar MONICA skráningin kemur til sögunnar
1981 er farið að skrá öll tilfelli kransæðastíflu á aldr-
inum 25-74 ára á öllu landinu. Frá þeim tíma eru því
til upplýsingar um dánartíðni, nýgengi og heildartíðni
kransæðastíflu til ársloka 1998. A myndum 2 og 3
kemur fram að á tímabilinu 1981-1998 lækka allar
þessar tíðnitölur um 40-50% meðal karla en 30-50%
meðal kvenna, að meðaltali rúmlega 40%.
Meðal karla er lækkun heildartíðni mjög aldurs-
háð, mest í yngsta aldursflokknum (um 70%) en
minnst í þeim elsta (um 40%) (tafla II). Lækkunin er
ekki marktækt aldursháð meðal kvenna en var að
meðaltali rúmlega 40%.
Lækkun nýgengis kransæðastíflu er einnig mjög
aldursháð meðal karla, mest í yngsta aldursflokknum
(um 70%) en minnst í þeim elsta (26%) (tafla III).
Lækkun nýgengis hjá konum var ekki marktækt
aldursháð, að meðaltali rúmlega 30%.
Lækkun dánartíðni vegna kransæðastíflu meðal
karla er einnig mjög aldursháð og sem fyrr mest í
yngsta aldursflokknum (86%) en minnst í þeim elsta
(50%) (tafla IV). Meðal kvenna er ekki marktækur
munur á lækkuninni milli aldursflokka en lækkunin
var 50-60%.
Á tímabilinu 1981-1998 verður einnig veruleg
breyting á dánarhlutfalli vegna kransæðastíflu. í upp-
hafi tímabilsins deyr rúmlega fjórði hver karl sem fær
kransæðastíflu 30-50 ára, meðal karla sem eru eldri
er hlutfallið hærra, allt að 50% (tafla V). í lok tíma-
bilsins hefur dánarhlutfallið lækkað í öllum aldurs-
flokkum um sem næst 25% meðal karla en um sem
næst 15% meðál kvenna. Árið 1998 mátti gera ráð
fyrir dauðsfalli hjá um það bil fimmta hverjum karl-
manni á aldrinum 30-50 ára sem fékk kransæðastíflu,
við sextugt er hlutfallið komið upp í 30% en við
sjötugt um 40%.
Fyrir þá sjúklinga, sem komast á sjúkrahús hafa
horfurnar breyst enn meira (tafla VI). Á töflu VI má
sjá að dánarhlutfall þeirra sem vistaðir eru á sjúkra-
húsum vegna kransæðastíflu hefur lækkað um 40-
50% á tímabilinu 1981-1998 í öllum aldursflokkum
karla en um 30-35% meðal kvenna. I þessu sambandi
er rétt að geta þess að hlutfall þeirra sjúklinga með
kransæðastíflu sem komast á sjúkrahús hefur lítið
breyst á tímabilinu 1981-1998 (gögn ekki sýnd).
Þannig voru um 85% þrítugra karla sem fengu krans-
æðastíflu 1981 vistaðir á sjúkrahúsi en um 75% sjö-
892 Læknablaðið 2001/87