Læknablaðið - 15.11.2001, Síða 44
FRÆÐIGREINAR / BRÉFASKIPTI
Læknablaðið vísindarit?
Pað var með athygli að við undirritaðir lásum grein-
ina Algengar orsukir svefnröskunar hjá íslenskum
börnum sem gangast undir svefnrannsókn (1) eftir þá
Hákon Hákonarson og Arna Þórsson. Lofsvert er að
nýjar rannsóknaraðferðir séu teknar í notkun til að
skilgreina betur svo umfangsmikið og margþætt
vandamál sem svefnraskanir í börnum er.
I þessari rannsókn er meðal annars notuð pH
mæling til að kanna tengsl súrs vélindabakflæðis við
svefnraskanir og kæfisvefn. Höfundar komast að
þeirri niðurstöðu að 69 af 89 börnum, rannsökuð með
pH mælingu, hafi verið með óeðlilegt mynstur eða
rnagn vélindabakflæðis og leiddi það til meðferðar.
Vélindabakflæði er algengt fyrirbrigði í heilbrigð-
um börnum á fyrstu mánuðum lífs (2) og vandaverk
að skilgreina hvað er eðlilegt og hvað ekki. Það vakti
athygli okkar að hcldur óhefðbundin skilgreining á
sjúklegu bakflæði var notuð í þessari grein. Annars
vegar var notað fall um tvö stig sem viðmiðun fyrir
bakflæði og gildir þá einu hvort um er að ræða til
dæmis fall frá pH 7 niður í 5 eða 5 niður í 3. Oftast
hefur fall niður fyrir pH 4 verið notað sem merki um
súrt bakflæði upp í vélinda. Hins vegar skilgreina höf-
undar heildartíma bakflæðis meiri en 4% af mæling-
artíma sem sjúklegt. Þetta er heldur frjálsleg skil-
greining og líklega tekin frá rannsóknum á fullorðn-
um. Til eru heimildir sem sýna að að allt að 10%
vélindabakflæði við eins árs aldur geti verið eðlilegt
(2). Það er því líklegt að þrengri skilgreiningar hefðu
breytt niðurstöðum.
Framsetningu niðurstaðna er einnig ábótavant.
Talað er um að yfir 90% barna (engar tölur gefnar)
hafi svarað vel meðferð við sex vikur, að mati for-
eldra, og vísað í töflu I sem gefur ekki frekari upplýs-
ingar. Gaman væri að vita hvort endurteknar mæling-
ar séu til og/eða staðlaðar spurningar fyrir og á með-
ferð til að styðja þessa fullyrðingu.
Hætt er við að lesendur fái miður heppileg skila-
boð um tengsl svefnraskana og vélindabakflæðis við
lestur þessarar greinar. Meðferð við vélindabakflæði í
þessurn börnum samanstóð af cisapríði og ranitidíni í
flestum tilfellum. Þó að ekki sé umdeilt að meðhöndla
skuli öndunartruflanir orsakaðar af vélindabakflæði
er lyfjameðferð við svefnröskunum almennt ekki að
öllu laus við hættu á alvarlegum aukaverkunum og
má benda á að cisapríð hefur verið tekið af markaði í
Bandaríkjunum og nokkrum öðrum löndum.
Það er okkar álit að ofantalin atriði dragi úr vís-
indagildi þessarar greinar.
Ábyrgð Læknablaðsins er hér mikilvæg. Val á sér-
fróðum ritrýnum og gagnrýnin ritstjórn er nauðsyn-
leg. Ritrýnir með sérþekkingu á viðkomandi sviði
(pH mælingum) og kunnugur börnum hefði getað
bent á vankanta og þar með gert höfundum kleift að
skýra mál sitt betur.
Lúther Sigurðsson, Úlfur Agnarsson
sérfræðingar í meltingar- og
næringarsjúkdómum barna
Heimildir
1. Hákon Hákonarson, Árni Þórsson. Algengar orsakir svefn-
röskunar hjá íslenskum börnum sem gangast undir svefnrann-
sókn. Læknablaðið 2001; 87: 799-804.
2. Vandenplas Y, Sacre-Smith L. Continous 24 hour pH eso-
phageal pH monitoring in 285 asymptomatic infants 0-15
months old. J Ped Gastroenterol Nutr 1987; 6: 220-4.
Svar við athugasemd
vegna vísindagreinar
Höfundar þakka þeim Lúther Sigurðssyni og Úlfi
Agnarssyni fyrir áhuga þeirra á grein okkar Algengar
orsakir svefnröskunar hjá íslenskuni börnum sem
gangast undir svefnrannsókn. Eins og þeir LS og ÚA
benda réttilega á, þá sýna niðurstöður rannsóknarinn-
ar að 69 af 89 börnum sem rannsökuð voru með pH
mælingu voru með óeðlilegt munstur eða magn vél-
indabakflæðis sem leiddi til meðferðar. Einnig benda
þeir á, að vélindabakflæði er algengt fyrirbrigði í
heilbrigðum börnurn á fyrstu mánuðum lífs og vanda-
verk að skilgreina hvað sé eðlilegt og hvað ekki og
benda í þessu sambandi á 15 ára gamlar heimildir sem
gefa til kynna að allt að 10% vélindabakflæði við eins
árs aldur geti verið eðlilegt. Hvað varðar þessa síðari
athugasemd, er nauðsynlegt að leiðrétta ákveðnar
rangfærslur. Sú rannsóknaraðferð sem notuð var til
að meta hvort um sjúklegt vélindabakflæði var að
ræða hjá þeim börnurn sem rannsóknarniðurstöður
okkar ná yfir er óskyld þeirri aðferðafræði sem þeir
LS og ÚA vitna í. Börnin voru rannsökuð með pH
mæli (sem mælir vélindabakflæði bæði efst og neðst í
vélindanu) og er mælingin samtvinnuð við öndunar-
mælingu og mælingu á svefnstigum og svefnmunstri.
Ef ekki komu fram tengsl vélindabakflæðis við óreglu
á öndunarniunstri, lækkun á súrefnismettun eða
röskun á svefnstigum var rannsóknin talin eðlileg og
barnið ekki meðhöndlað. Sýrufall á pH mæli sem nam
904 Læknablaðið 2001/87