Læknablaðið - 15.11.2001, Page 53
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ
tryggingavernd Tryggingastofnunar ríkisins, trygg-
ingavernd sem sjúklingar með aðra sjúkdóma njóta
flestir.
Margir aðilar urðu til þess að mótmæla þessari
ranglátu stjórnvaldsaðgerð meðan hún var í undir-
búningi og eftir gildistöku svo sem læknaráð Sjúkra-
húss Reykjavíkur, Læknafélag íslands, læknaráð
Landspítala háskólasjúkrahúss, Félag krabbameins-
lækna, Félag lyfjafræðinga og margir fleiri.
Formaður LI segir í bréfi til heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytisins hinn 22. október síðastliðinn:
„Fyrr á þessu ári gerði Tryggingastofnun ríkisins
samninga við tvær sjúkrastofnanir um „að þœr tœkju
að sér þann þátt sjúkratrygginga, sem lýtur að
greiðslu kostnaðar vegna S-merktra lyfja í gildandi
lyfjaskrúun'\ Læknafélag Islands getur ekki fallist á
að með þeim samningum falli niður skyldur Trygg-
ingastofnunar nkisins vegna sjúkratrygginga skv. lög-
um gagnvart þeim sjúklingum, sem þörf hafa fyrir
fyrrgreind lyf og njóta læknisþjónustu utan sjúkra-
húsa á einkareknum læknastofum." Og ennfremur:
„Tryggingastofnun ríkisins annast sjúkratryggingar
samkvæmt lögum um almannatryggingar nr.
117/1993. Stjórnvöldum ber að tryggja, að jafnræðis-
reglum sé fylgt, hvað snertir rétt sjúklinga til læknis-
þjónustu og greiðslu fyrir hana án tillits til þess, hvar
læknisþjónustan er veitt.“
Haft hefur verið eftir stjórnendum Landspítala
háskólasjúkrahúss í fjölmiðlum að kostnaður við S-
merkt lyf hafi farið fram úr þeim fjárveitingum, sem
til þeirra var veitt og sé sá umframkostnaður ein af
meginástæðunum fyrir framangreindum fjárskorti
spítalans í ár. Þannig eiga sjúklingar með illkynja
sjúkdóma, sem fæstir liggja á sjúkrahúsum, það nú
orðið undir fjárhag stóru sjúkrahúsanna, hvort þeir
fái sín lyf eða ekki.
VI
Á Alþingi vorið 2001 lagði þáverandi heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra fram frumvarp til laga um
breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu og lögum
um almannatryggingar. I frumvarpinu mátti greina
þrjá meginþætti:
1. Aukið vald skyldi fært til ráðherra við stýringu og
ákvarðanir í heilbrigðisþjónustunni.
2. Lagt var til að ein samninganefnd, skipuð af heil-
brigðisráðherra (meirihlutinn án tilnefningar)
skyldi semja við sjálfstætt starfandi sérfræðinga og
fyrirtæki og stofnanir (ríkið) um greiðsluþátttöku
almannatrygginga vegna sambærilegra læknis-
verka.
3. Lagt var til að unnt yrði að komast hjá því að taka
tillit til samkeppnislaga, þegar taka þyrfti til í heil-
brigðiskerfinu.
Varðandi viðhorf embættis- og stjórnmálamanna
lil heilbrigðiskerfisins á íslandi árið 2001 er fróðlegt
að grípa á nokkrum stöðum niður í greinargerð með
frumvarpinu, sem reyndar var að miklu leyti uppi-
staðan í ræðu núverandi ráðherra heilbrigðis- og
tryggingamála á nýafstöðnum aðalfundi Læknafélags
Islands.
„Þegar kemur að sérfræðilæknisþjónustu, sem
ýmist er veitt af læknum á eigin stofu eða á göngu-
deild sjúkrahúss, er stjórn hennar hins vegar enn
„dreifð og ósamhæfð“. Möguleikar heilbrigðisyfir-
valda á stýringu þessarar þjónustu eru að ýmsu leyti
takmarkaðir. Magn þjónustunnar og tegund hefur
því oft ráðist af öðru en markmiðum heilbrigðisyfir-
valda, jafnvel þegar um er að ræða þjónustu sem að
verulegu Ieyti er greidd af ríkinu. Fyrirkomulag sér-
fræðiþjónustu utan stofnana hefur að talsverðu leyti
ráðist af fjölda sérfræðinga á viðeigandi sviðum og
því hvort þeir kjósa að veita þjónustuna innan eða
utan stofnana. Erfitt hefur því reynst að framfylgja
markmiðum heilbrigðisyfirvalda varðandi forgangs-
röðun.“
Ennfremur: „Mikilvægt er að það séu fagleg rök
og hagkvæmni sem ráða því hvar þjónusta er veitt en
ekki ákvarðanir einstakra heilbrigðisstarfsmanna
eða hópa. Þegar um er að ræða sérhæfða þjónustu
getur það orðið til að draga úr gæðum þjónustunnar
og öryggi að flytja hana út af sjúkrahúsum og einnig
er yfirleitt hagkvæmara að slík starfsemi sé á einum
stað.“
Og enn: „Til að ná þessu markmiði eru lagðar til
breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu þess efnis
að ráðherra marki stefnu um forgangsröðun verk-
efna í heilbrigðisþjónustu og að ráðherra sé heimilt
að grípa til nauðsynlegra ráðstafana til að framfylgja
stefnu um forgangsröðun, stuðla að aukinni hag-
kvæmni og tryggja gæði heilbrigðisþjónustu. Hér
getur m.a. verið um að ræða heimild til athafna, sem
samkeppnisráð gæti annars gripið til aðgerða gegn,
þannig að ráðherra væri eftir atvikum heimilt að
grípa til slíkra ráðstafana í fyrrgreindum tilgangi.“
Loks: „Nauðsynlegt er að tryggja að heilbrigðis-
yfirvöld geti stýrt því hve mikla heilbrigðisþjónustu
af tiltekinni tegund þau vilja kaupa, fyrir hvaða verð
og hvar slík heilbrigðisþjónusta skuli veitt."
Svo mörg voru þau orð, mikilvægt er að læknar
íhugi þau vel.
Fleirum en læknum þótti of langt gengið með
frumvarpi þessu til laga og hafa nú lagabreytingar-
ákvæðið um skörun við samkeppnislög og setningin,
sem vitnað var í úr fyrri greinargerð verið felld út og
frumvarpið lagt að nýju fyrir Alþingi.
Það er skoðun mín að stjórnvöld þurfi á að halda
ráðgjöf og góðri samvinnu við samtök Iækna, þegar
þau ráðast í breytingar á heilbrigðisþjónustunni.
Mörg fleiri dæmi renna stoðum undir þá sannfæringu
mína.
Læknablaðið 2001/87 913