Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.2001, Síða 53

Læknablaðið - 15.11.2001, Síða 53
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ tryggingavernd Tryggingastofnunar ríkisins, trygg- ingavernd sem sjúklingar með aðra sjúkdóma njóta flestir. Margir aðilar urðu til þess að mótmæla þessari ranglátu stjórnvaldsaðgerð meðan hún var í undir- búningi og eftir gildistöku svo sem læknaráð Sjúkra- húss Reykjavíkur, Læknafélag íslands, læknaráð Landspítala háskólasjúkrahúss, Félag krabbameins- lækna, Félag lyfjafræðinga og margir fleiri. Formaður LI segir í bréfi til heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytisins hinn 22. október síðastliðinn: „Fyrr á þessu ári gerði Tryggingastofnun ríkisins samninga við tvær sjúkrastofnanir um „að þœr tœkju að sér þann þátt sjúkratrygginga, sem lýtur að greiðslu kostnaðar vegna S-merktra lyfja í gildandi lyfjaskrúun'\ Læknafélag Islands getur ekki fallist á að með þeim samningum falli niður skyldur Trygg- ingastofnunar nkisins vegna sjúkratrygginga skv. lög- um gagnvart þeim sjúklingum, sem þörf hafa fyrir fyrrgreind lyf og njóta læknisþjónustu utan sjúkra- húsa á einkareknum læknastofum." Og ennfremur: „Tryggingastofnun ríkisins annast sjúkratryggingar samkvæmt lögum um almannatryggingar nr. 117/1993. Stjórnvöldum ber að tryggja, að jafnræðis- reglum sé fylgt, hvað snertir rétt sjúklinga til læknis- þjónustu og greiðslu fyrir hana án tillits til þess, hvar læknisþjónustan er veitt.“ Haft hefur verið eftir stjórnendum Landspítala háskólasjúkrahúss í fjölmiðlum að kostnaður við S- merkt lyf hafi farið fram úr þeim fjárveitingum, sem til þeirra var veitt og sé sá umframkostnaður ein af meginástæðunum fyrir framangreindum fjárskorti spítalans í ár. Þannig eiga sjúklingar með illkynja sjúkdóma, sem fæstir liggja á sjúkrahúsum, það nú orðið undir fjárhag stóru sjúkrahúsanna, hvort þeir fái sín lyf eða ekki. VI Á Alþingi vorið 2001 lagði þáverandi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu og lögum um almannatryggingar. I frumvarpinu mátti greina þrjá meginþætti: 1. Aukið vald skyldi fært til ráðherra við stýringu og ákvarðanir í heilbrigðisþjónustunni. 2. Lagt var til að ein samninganefnd, skipuð af heil- brigðisráðherra (meirihlutinn án tilnefningar) skyldi semja við sjálfstætt starfandi sérfræðinga og fyrirtæki og stofnanir (ríkið) um greiðsluþátttöku almannatrygginga vegna sambærilegra læknis- verka. 3. Lagt var til að unnt yrði að komast hjá því að taka tillit til samkeppnislaga, þegar taka þyrfti til í heil- brigðiskerfinu. Varðandi viðhorf embættis- og stjórnmálamanna lil heilbrigðiskerfisins á íslandi árið 2001 er fróðlegt að grípa á nokkrum stöðum niður í greinargerð með frumvarpinu, sem reyndar var að miklu leyti uppi- staðan í ræðu núverandi ráðherra heilbrigðis- og tryggingamála á nýafstöðnum aðalfundi Læknafélags Islands. „Þegar kemur að sérfræðilæknisþjónustu, sem ýmist er veitt af læknum á eigin stofu eða á göngu- deild sjúkrahúss, er stjórn hennar hins vegar enn „dreifð og ósamhæfð“. Möguleikar heilbrigðisyfir- valda á stýringu þessarar þjónustu eru að ýmsu leyti takmarkaðir. Magn þjónustunnar og tegund hefur því oft ráðist af öðru en markmiðum heilbrigðisyfir- valda, jafnvel þegar um er að ræða þjónustu sem að verulegu Ieyti er greidd af ríkinu. Fyrirkomulag sér- fræðiþjónustu utan stofnana hefur að talsverðu leyti ráðist af fjölda sérfræðinga á viðeigandi sviðum og því hvort þeir kjósa að veita þjónustuna innan eða utan stofnana. Erfitt hefur því reynst að framfylgja markmiðum heilbrigðisyfirvalda varðandi forgangs- röðun.“ Ennfremur: „Mikilvægt er að það séu fagleg rök og hagkvæmni sem ráða því hvar þjónusta er veitt en ekki ákvarðanir einstakra heilbrigðisstarfsmanna eða hópa. Þegar um er að ræða sérhæfða þjónustu getur það orðið til að draga úr gæðum þjónustunnar og öryggi að flytja hana út af sjúkrahúsum og einnig er yfirleitt hagkvæmara að slík starfsemi sé á einum stað.“ Og enn: „Til að ná þessu markmiði eru lagðar til breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu þess efnis að ráðherra marki stefnu um forgangsröðun verk- efna í heilbrigðisþjónustu og að ráðherra sé heimilt að grípa til nauðsynlegra ráðstafana til að framfylgja stefnu um forgangsröðun, stuðla að aukinni hag- kvæmni og tryggja gæði heilbrigðisþjónustu. Hér getur m.a. verið um að ræða heimild til athafna, sem samkeppnisráð gæti annars gripið til aðgerða gegn, þannig að ráðherra væri eftir atvikum heimilt að grípa til slíkra ráðstafana í fyrrgreindum tilgangi.“ Loks: „Nauðsynlegt er að tryggja að heilbrigðis- yfirvöld geti stýrt því hve mikla heilbrigðisþjónustu af tiltekinni tegund þau vilja kaupa, fyrir hvaða verð og hvar slík heilbrigðisþjónusta skuli veitt." Svo mörg voru þau orð, mikilvægt er að læknar íhugi þau vel. Fleirum en læknum þótti of langt gengið með frumvarpi þessu til laga og hafa nú lagabreytingar- ákvæðið um skörun við samkeppnislög og setningin, sem vitnað var í úr fyrri greinargerð verið felld út og frumvarpið lagt að nýju fyrir Alþingi. Það er skoðun mín að stjórnvöld þurfi á að halda ráðgjöf og góðri samvinnu við samtök Iækna, þegar þau ráðast í breytingar á heilbrigðisþjónustunni. Mörg fleiri dæmi renna stoðum undir þá sannfæringu mína. Læknablaðið 2001/87 913
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.