Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.11.2001, Page 59

Læknablaðið - 15.11.2001, Page 59
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AÐALFUNDUR LÍ Aðalfundur Læknafélags íslands Stríðsöxín grafin formlega í friðí og spekt Aðalfundur Læknafélags Íslands var haldinn í aðalstöðvum félagsins í Hlíðasmára í Kópavogi dag- ana 12. og 13. október. Fundurinn fór fram með hefð- bundnu sniði og hans verður tæpast minnst fyrir nein stórtíðindi. Það væri þá helst að þar var formlegur endir bundinn á deilu félagsins við íslenska erfða- greiningu ehf. vegna fyrirhugaðs gagnagrunns á heil- brigðissviði. Nýr heilbrigðisráðherra, Jón Kristjánsson úr Framsóknarflokki, ávarpaði aðalfundargesti í upp- hafi fundar og gafst fundarmönnum kostur á að leggja fyrir hann nokkrar fyrirspurnir að ávarpinu loknu. Meginefni ávarps ráðherra var helgað frum- varpi til laga um breytingar á lögum um heilbrigðis- þjónustu og lögum um almannatryggingar sem nefnt hefur verið Samninganefndarfrumvarpið. Þetta frumvarp lék nokkurt hlutverk á fundinum þótt það hefði enn ekki verið lagt formlega fram á Alþingi. Ráðherra gerði það að umtalsefni og á málþingi sem haldið var morguninn eftir kynntu fulltrúar hans úr ráðuneytinu efni þess en þá án þess að því væri dreift. Fundarmenn áttu því í nokkrum erfiðleikum að tjá sig um efni þess og bar umræðan keim af því. Auk þess að ræða um þetta frumvarp fagnaði ráð- herra því að LÍ og íslensk erfðagreining skyldu hafa „grafið stríðsöxina" í samskiptum sínum vegna gagnagrunns á heilbrigðissviði. Einnig fór ráðherra nokkrum orðum um rekstrarform í heilbrigðisþjón- ustu og þá umræðu sem á sér stað um þau. Þar tíund- aði hann ýmsar röksemdir sem hann sagði að vildu oft gleymast í hita leiksins en sagði svo: „Nú má alls ekki skilja orð mín svo að ég sé ein- hver andstœðingur einkarekstrar í sjálfu sér. Það er ég alls ekki, enda stuðningsmaður þess að mörgu leyti ágœta fyrirkomulags sem er nú ríkjandi hjá okkur í heilbrigðisþjónustunni. Þar er að finna umfangsmik- inn einkastofurekstur sem þrífst ágætlega sýnist mér við lilið heilsugœslunnar og sjúkrahúsanna, en ég er með orðum mínum að árétta að ég er andsnúinn einkarekstri þar sem hœtta er á að hagsmunum tiltek- inna þjóðfélagshópa séfórnað á altari sérhagsmuna. Að mínum dómi verður að skipuleggja heilbrigðis- þjónustuna þannig að fyrst og síðast sé gengið út frá hagsmunum þeirra sem þurfa á þjónustunni að halda. Ég fullyrði að það er enginn pólitískur vilji fyrir því að breyta íslenskri heilbrigðisþjónustu þannig, að sá meirihluti skjólstœðinga ykkar sem ég nefndi hér að framan [það er, böm, aldraðir og öryrkjar, Lbl.] þurfi að fara að kaupa sér einkatryggingar til að fá nauð- synlega heilbrigðisþjónustu. Það gagnast mér hins vegar prýðilega pólitískt að þessi mál skuli nú vera í brennipunkti því ég finn vel hvaða hljómgrunn sjónarmiðin sem ég hef gert hér að umræðuefni eiga meðal almennings. “ Jón Kristjánsson heilbrigð- is- og tryggingamálaráð- herra ávarpar aðalfund Lœknafélags íslands í stólnum sem Sighvatur gaf en Ingibjörg fœrði. Blómlegt bú Að ávarpi heilbrigðisráðherra loknu var gengið til hefðbundinna aðalfundarstarfa. Fluttar voru skýrslur um hag og starfsemi félagsins, Læknablaðsins og hinna ýmsu sjóða. Allt var þar með mesta blóma, hagnaður af rekstri félagsins og blaðsins, auk þess sem sjóðir félagsins standa vel. Það var einna helst að Lífeyrissjóður lækna hefði orðið fyrir nokkrum hremmingum vegna sviptinga á verðbréfamörkuðum en þó ekki svo að þær ógnuðu sjóðnum. Á móti verð- falli innlendra hlutabréfa vóg gengislækkun krón- unnar sem leiddi til þess að tekjur af erlendum verð- bréfum jukust. Árshátíð lækna Minnt er á,árshátíð lækna sem haldin verður á Broad- way Hótel íslandi laugardagskvöldið 19. janúar2002. Mikil og góð þátttaka hefur verið í árshátíðum síðustu ára og er þess vænst að læknar láti ekki sitt eftir liggja að gleðjast saman með myndarbrag á komandi hátíð. Tilhögun verður nánar auglýst í næsta Læknablaði. Stjórn Læknafélags Reykjavíkur Læknablaðið 2001/87 919

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.