Læknablaðið - 15.11.2001, Síða 87
FRÁ HEILBRIGÐIS- OG TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTI OG LANDLÆKNI
Lyfjamál 98
Lyfjakostnaður landsmanna
Á FYRSTU SEX MÁNUÐUM ÞESSA ÁRS VARÐ HEILDAR-
lyfjakostnaður Iandsmanna tæpar 6.000 milljónir
króna og haldi áfram sem horfir fer hann líklega í um
það bil 13.000 milljónir króna á árinu, reiknað á há-
marksverði með virðisaukaskatti samkvæmt lyfja-
verðskrá. Á árinu 2000 var lyfjakostnaðurinn 10.437
milljónir króna reiknaður með sama hætti. Á fjárlög-
um ársins 2000 voru Tryggingastofnun ríkisins ætlað-
ar 4.725 milljónir króna til greiðslu á lyfjakostnaði. Á
fjárlögum fyrir 2001 voru 4.755 milljónir króna ætlað-
ar til hins sama og í fjárlagafrumvarpi fyrir 2002 er
þessi upphæð 5.116 miiljónir króna.
Eins og oft hefur verið bent á eru læknar hér á
landi fljótir til að taka ný lyf í notkun og þessu til
sönnunar kemur hér súlurit sem sýnir söluverðmæti
nýrra lyfja, lyfjapakkninga og samheitalyfja sem
fengið hafa markaðsleyfi frá og með árinu 1999. Þetta
er sundurliðað í aðalflokka ATC-kerfisins og nefnd
nokkur söluhæstu lyfin í hverjum flokki. Ef spáin
fyrir 2001 gengur eftir mun kostnaður vegna þessara
lyfja verða um 17% af heildarkostnaði. Með slíku
áframhaldi er auðsætt að sífellt erfiðara verður að
fjármagna lyfjakostnaðinn. Ekkert lát er á streymi
nýrra lyfja, sem í mörgum tilfellum reynast hrein við-
bót við fyrri meðferðarúrræði, án þess að sýnilegur
betri árangur náist. Dæmi um þetta er lyfið rófekoxíb
(Vioxx). Það fékk markaðsleyfi hér 1. mars 2000. Á
miðju ári 2001 benda sölutölur til þess að um það bil
3000 manns séu að taka lyfið að staðaldri miðað við
að venjulegir dagskammtar séu samkvæmt ábending-
um Sérlyfjaskrár. Ársmeðferð kostar um 70.000
krónur á mann eða 210 milljónir króna fyrir 3000
manns. Þar af má ætla að almannatryggingar greiði
að minnsta kosti 150 milljónir króna.
Milljónir króna
Ný lyf og pakkningar frá 1999
2500
■ A Losec MUPS, Xenical, Nexium og fleiri
□ B Dianeal, Plavix, Hemohes og fieiri
□ C Sivacor, Carduran retard, Cozaar og fleiri
□ D Terbicil, Propecia og fleiri
■ G Viagra, Detrusitol, Puregon og fieiri
□ H Sandosten Lar, Norditropin simplexx
og fleiri
■ J Pentavac, Priorix, Puregon og fleiri
□ L Rebif, Campto, Casodex, Enbrel,
Remicade og fleiri
■ M Vioxx, Orudis, Modifenac og fieiri
□ N Zyban, Comtess, Oropram, Zyprexa
og fleiri
□ R Seretide, Ventolin discus, Symbicort
og fleiri
■ S Cosopt, Oculac og fleiri
□ V Alutard og fleiri
Læknablaðið 2001/87 947