Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2002, Síða 52

Læknablaðið - 15.02.2002, Síða 52
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FRÁ LÆKNADÖGUM Frá Læknadögum Hjálækningar, steratröll svo ball á eftir Arnór Víkingsson for- maður Frœðslunefndar bar hilann og þungann af skipulagningu Lœknadaga. Hér slakar hann á að þeim loknum ásamt konu sinni, Ragnheiöi Jónu Jónsdótlur, á árshátíð LR. Ljósm. Jón Svavarsson. Það FER EKKERT Á MILLI MÁLA AÐ Læknadagar ERU einn veigamesti þátturinn í fræðslustarfi og jafnframt félagslífi lækna. í heila viku eru þeir í félagsskap kollega og ræða fagið, fræðast um nýjungar og skipt- ast á skoðunum. Svo lýkur þessu með balli ársins og að því loknu teljast rafhlöðurnar fullhlaðnar fyrir nýtt ár. Þetta fyrirkomulag hefur greinilega sannað tilverurétt sinn því aðsóknin eykst ár frá ári. Það er helst að þeir sem þurfa að eiga samskipti við lækna þessa viku kvarti undan því að þeir séu dálítið annars hugar, ef þeir á annað borð láta ná í sig. Áhugi fjölmiðla á Læknadögum hefur farið vax- andi og blöð og ljósvakamiðlar voru uppfullir með viðtöl og frásagnir af því sem þeim þótti merkast. Mikla athygli vakti til dæmis heimsókn tveggja bandarískra lækna sem héldu erindi um hjálækningar eða það sem á ensku nefnist Complementary and Alternative Medicine. Það var fróðlegt að hlýða á mál þeirra en þeir hvöttu lækna til þess að kynna sér það sem boðið er fram af hjálækningum, nauðsynlegt væri að brúa bilið milli hefðbundinna lækninga og hjálækninga og eyða tortryggni sem ríkt hefur á milli þessara greina. Glöggt mátti heyra á máli þeirra Ronald E. Chez og Wayne B. Jonas hversu margbreytileg flóra hjá- lækninga er. Þar ægir öllu saman, sumt hefur öðlast nokkurn þegnrétt í heimi læknavísindanna, svosem nálalækningar og hnykklækningar, en annað er þar víðsfjarri og getur raunar varla kallast annað en svindl og fjárplógsstarfsemi. Þótt viðhorf lækna til hjálækninga hafi verið að breytast ríkir enn mikil tortryggni sem birtist meðal annars í því að sjö af hverjum tíu sjúklingum þora ekki eða vilja ekki segja lækni sínum frá því að þeir hafi leitað sér aðstoðar hjálækna. Þetta getur í sum- um tilvikum verið beinlínis hættulegt. Jonas nefndi sem dæmi ýmsar lækningajurtir sem geta haft áhrif á storknunareiginleika blóðs. Þeir sem neyta slíkra jurtalyfja og leita samtímis til læknis og fá hjá þeim lyf vegna blóðrásartruflana geta því verið í beinni lífs- hættu vegna milliverkana þeirra og jurtalyfjanna. íþróttir efla alla dáö, eða hvað? Á öðru málþingi sem undirritaður rakst inn á var rætt um íþróttalækningar en þær hafa ekki verið mjög mikið í sviðsljósinu. Þetta svið hefur þó vaxið veru- lega að umfangi með aukinni íþróttaiðkun fólks á öll- um aldri og einnig vegna misnotkunar íþróttamanna á lyfjum sem auka krafta þeirra, úthald eða vöðva- massa. Birgir Guðjónsson hélt þar erindi um baráttu íþróttahreyfingarinnar gegn notkun ólöglegra lyfja en hann hefur verið virkur í forystusveit samtaka íslenskra frjálsíþróttamanna um langt skeið. Af er- indi hans varð ljóst að allra bragða er beitt til þess að ná árangri í íþróttum, hvað sem það kostar, enda er ávinningurinn mikili. íþróttamenn í fremstu röð hagnast vel á íþrótt sinni auk þess sem margir þeirra eiga greiða leið til valda á sviði stjórnmála eða við- skipta þegar ferlinum lýkur. Svo langt er seilst til þess að ná árangri að með ólíkindum hlýtur að teljast. Ófáir íþróttamenn hafa látið lífið af völdum lyfjaneyslu og aðrir hlotið mikla skömm fyrir hjá þjóð sinni eftir að upp um þá hefur komist. Nefndi Birgir ýmis dæmi um slíkt en það frægasta er eflaust af Kanadamanninum Ben John- son sem var sviptur gullverðlaunum í 100 metra hlaupi á Ólympíuleikunum í Seoul árið 1988. Raunar er baráttan gegn misnotkun lyfja og öðrum ólögleg- um aðferðum samfelldur slagur þar sem menn finna sífellt upp ný lyf og aðferðir en íþróttahreyfingin reynir með aðstoð læknavísindanna að finna upp aðferðir til að koma upp um lögbrotin. íþróttamót sjúklinga? Ábyrgð lækna í þessum efnum var mönnum ofarlega í huga enda sagði Birgir að þegar upp kæmist um ólöglega lyfjanotkun beindu menn fyrst sjónum sín- um að þeim sem útveguðu lyfin. Benti hann á að læknir Bens Johnson hefði verið sviptur starfsleyfi 140 Læknablaðið 2002/88
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.