Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2002, Síða 81

Læknablaðið - 15.02.2002, Síða 81
Bjarni Jónasson Sendið efni í anda læknaskops í Broshornið. Læknablaðinu, Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi eða á netfang: bjami.jonasson@ gb.hgst.is Getið þess hver sendir, en það sem birtist verður undir dulnefni. Læknablaðið áskilur sér rétt til að lagfæra texta. UMRÆÐA & FRÉTTIR / BROSHORNIÐ 23 Af litlum körlum og hausverk Litlir karlar undir rúmi „Læknir, þú mátt til með að hjálpa mér. Ég get bók- staflega ekkert sofið af því að það er fullt af litlum körlum sem eru á fleygiferð undir rúminu mínu alla nóttina," sagði konan og var greinilega áhyggjufull. „Það hljómar alls ekki vel. Ég er hræddur um að þú þurfir að leggjast inn á sjúkrahús og vera þar í þó nokkurn tíma til að losna undan þessu sérstaka áreiti,“ sagði læknirinn alvarlegur í bragði. Konan skynjaði skyndilega að hún var komin út á hálan ís og reyndi að draga úr vandanum. „Ég held að það þurfi nú ekkert að leggja mig inn á sjúkrahús því ég var að fá góða hugmynd hvemig ég lækna mig sjálf heima.“ Læknirinn varð furðu lostinn og spurði hvernig hún ætlaði að fara að því. „Ég ætla að saga lappirnar af rúminu,“ svaraði konan. í samkvæmi „Hvoru þarft þú að sinna meira í starfi þínu sem læknir, slysunr eða sjúkdómum?" spurði prúðbúin kona með kokdillisglas í hendinni. „Því er ekki auð- svarað, frú mín góð,“ sagði læknirinn. „Ég er nefni- lega kvenlæknir." Með höfuðverk „Ég er með mígrenikast af svæsnustu gerð,“ sagði sjúklingurinn og bar sig illa. „Og hvað viltu að ég geri í því?“ spurði læknirinn. „Það er þinn höfuðverkur," svaraði sjúklingurinn. Spenntur í rúmið „Þú ert spenntur og stressaður og verður að hætta að fara með vandamálin í rúmið á kvöldin,“ sagði læknirinn við athafnamanninn sem átti bágt með að sitja kyrr. „Ég vildi gjaman geta farið að ráðum þín- um, en konan mundi ganga frá mér ef ég bæði hana um að sofa annars staðar,“ sagði maðurinn áhyggju- fullur. Við dánarbeðið Læknirinn beygði sig yfir líflausan manninn í rúminu. Síðan rétti hann úr sér og sagði grafalvarlegur við eiginkonuna lágum rómi. „Mér þykir það leitt, frú mín góð, en þessu virðist lokið hjá bónda þínum.“ Þá heyrðist umlað í rúminu: „Er ég enn á lífi?“ „Nú er eins gott að þú þegir, Guðmundur. Læknirinn veit fullkomlega hvað hann er að segja.“ Ein óðamála Eldri kona kom til læknis og lét dæluna ganga. Hún talaði óslitið frá því hún heilsaði lækninum og náði meira að segja að koma að nokkrum orðum þegar hún andaði að sér. Eftir drykklanga stund og eintal var lækninum nóg boðið. „Ef ég mætti leggja nokkur orð í belg,“ sagði hann af sinni alkunnu hæversku. Konan greip strax fram í fyrir honum. „Ég var ekki alveg búin og við skulum ekki gleyma því að þú ert bundinn þagnarskyldu." Einkalíf „Mikið lifandis ósköp er ég orðinn þreyttur á þessu stöðuga kvabbi þegar ég á frí og fer út að skemmta mér. Fólk virðir ekki friðhelgi einkalífsins og er sífellt að spyrja alls konar spurninga af læknisfræðilegum toga,“ sagði Sveinn læknir við Þorstein kollega sinn sem var nokkrum árum eldri. „Ég hef fundið ráð við þessu vandamáli og fæ alveg að vera í friði,“ sagði Þorsteinn. „Ef einhver dirfist í samkvæmi að spyrja mig út í sjúkdóma eða krankleika segi ég alltaf: „Komdu bara úr spjörunum og þá skal ég kíkja á þig.““ Læknabrandari „Ég var að missa einn af sjúklingum mínum.“ „Það var leitt að heyra. Úr hverju dó hann?“ „Hann dó ekki. Hann varð frískur." Aldargömul „Hvernig get ég orðið 100 ára?“ spurði kona á miðjum aldri. „Með því að hætta að borða smákökur, sælgæti, tertur og gosdrykki. Svo skaltu sleppa því að borða rautt kjöt, kartöflur og brauð,“ svaraði læknirinn. „Ætti þetta að tryggja það að ég nái því að verða 100 ára?“ spurði konan og það hafði lifnað yfir henni. „Því get ég ekki svarað með vissu,“ svaraði læknir- inn, „en tilfinningin verður alla vega sú sama.“ Læknablaðið 2002/88 169
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.