Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.2002, Page 31

Læknablaðið - 15.10.2002, Page 31
FRÆÐIGREINAR / LITFÍKLAÆXLI Samspil og áhrif reníns, aldósteróns og katekólamína Mynd 4. um til margra mánaða. Köst þessi eru lífeðlisfræðileg- ar afleiðingar mikillar og skyndilegrar katekólamín- losunar æxlisins og örvunar adrenvirkra viðtaka um allan líkamann. Ýmis áreiti geta komið slíkum köstum af stað en yfirleitt koma þau án nokkurs áreitis (4). Önnur einkenni eru meðal annars fölvi í andliti, brjóst- og kviðverkir, svimi og harðlífi. Auk þessa eru sjaldgæfari einkenni: kvíði, skjálfti, ógleði (með eða án uppkasta), örmögnun, þreyta, andnauð og þreif- anleg fyrirferð í kvið (6, 7). Fylgikvillar litfíklaæxlis eru meðal annars lost, flog, rákvöðvaleysing (rhab- domyolysis), skyndileg nýrnabilun og jafnvel dauði. Hjartakvillar eru einnig algengir; allt frá smávægileg- um breytingum á hjartalínuriti til hjartadreps (myo- cardial infarction). Enn sjaldgæfara er afleitt aldó- sterónheilkenni, réttstöðulágþrýstingur (orthostatic hypotension), taugrænn lungnabjúgur (neurogenic pulmonary oedema), hitaóþol, skert sykurþol, hátt kalsíum í blóði og hækkuð hematókrít (4,6). Ef litið er til sjúkratilfellisins sem lýst er hér að ofan má sjá að konan hafði sem aðalkvartanir höfuð- verki, brjóstverki, svima og mæði eða úthaldsleysi sem væntanlega hefur verið kveikjan að katekól- amínmælingum heilsugæslulæknisins. Einnig er vert að minnast þess að niðurgangur og roði í andliti (flushing) eru ekki algeng einkenni litfíklaæxlis, gagnstætt því sem margir virðast halda (3,4). Eins og að ofan er getið myndi háþrýstingur og kalíumbrestur að öllu jöfnu leiða hugann að ofgnótt saltstera. í þessu tilfelli reyndist renfnframleiðsla hins vegar ekki vera bæld þrátt fyrir hækkað aldó- sterón. Hér var því um 2° aldósterónheilkenni að ræða. Klassísk orsök þessa er þrenging á nýrnaslagæð sem veldur lágþrýstingi í nýra og því aukinni renín- framleiðslu en litfíklaæxli getur þó í undantekningar- tilfellum valdið þessu. Noradrenalín örvar þá renín- losun í nýrum með því að tengjast pi-viðtökum (8). Vakni grunur um litfíklaæxli samkvæmt sjúkra- Tafla II. Renín og aldósterón viö ýmsar aöstæöur. p - Renín p - Aldósterón Dæmi Frumheilkenni aldósteróns 1 t Heilkenni Conns Hnökrastækkuð nýrnahetta Afleitt aldósterónheilkenni T t Þvagræsilyf Þrengsli í nýrnaslagæö Litfíklaæxli Aldósterónlíki 1 1 Lakkrísneysla sögu er rétt að framkvæma þvag- og/eða blóðprufur til að staðfesta greininguna. Eins og ætíð er mikilvægt að bíða með myndgreiningu þar til efnafræðileg greining liggur fyrir þar sem allt að 5% heilbrigðra hafa saklausar fyrirferðir í nýrnahettum (9). Til efna- fræðilegrar greiningar eru nokkrar leiðir: 1. Söfnun þvags í sólarhring með tilliti til katekól- amína (adrenalín, noradrenalín, dópamín): Sértækni og næmi fer að nokkru eftir rannsókna- stofum og vali á vikmörkum en er af flestum nú talið næmasta og sértækasta prófið, með næmi allt að 100% ef sjúklingur er með einkenni. Sértækið er meira en 95% ef tvö eða fleiri sýni eru mæld. 2. Söfnun þvags í sólarhring með tilliti til umbrots- efna katekólamína (VMA, normetadrenalín, met- adrenalín): Söfnun þvags með tilliti til vanillínmöndlusýru (VMA) er nú hvorki talið nógu næmt né sértækt til þess að hægt sé að mæla með því auk þess sem fleiri lyþ efni/matvæli trufla þessa mælingu en 1 hér að ofan (4,5,6). Mat á útskilnaði metanefrína (normet- adrenah'n, metadrenalín) er víða notað og hefur gefist vel með næmi og sértækni lítið verri en 1 (5,6). 3. Mæling katekólamína í sermi: Hefur 95-100% næmi og 95% sértæki (4). Varast þarf að nálarstunga getur valdið losun katekólam- ína þannig að setja þarf upp nál talsvert löngu áður Læknablaðið 2002/88 735

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.