Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.2002, Síða 37

Læknablaðið - 15.10.2002, Síða 37
FRÆÐIGREINAR / HÆTTA A F LIRFUM BLÓÐAGÐA fæðu undir vatnsborði eða fær sér að drekka. Egg iðra- blóðagða rjúfa sér aftur á móti leið út úr æðinni sem umlukti kvendýrið. Berist eggið í gegnum þarmavegg- inn fer það út úr líkamanum með saur fuglsins. Ef drit með eggi í lendir í vatni klekst þar bifhærð lirfa (1,4). Bifhærðar lirfur synda um í vatninu í leit að snigl- inum þar sem kynlausa æxlunin getur átt sér stað. Beri leitin árangur meltir lirfan sér leið inn í fót hans og breytist þar í móðurlirfuhylki (mother sporocyst). í því verður kynslaus æxlun og þar myndast svonefnd dótt- urlirfuhylki (daughter sporocyst) sem færast upp í melt- ingarkirtla snigilsins. Eftir að hafa þroskast þar um hríð taka dótturlirfuhylkin að framleiða kynstrin öll af sund- lirfum (cercaríae), einnig með kynlausri æxlun (1,4). Sundlirfur sem náð hafa fullum þroska yfirgefa snigilinn og taka til við að leita uppi lokahýsilinn. Þroskatíminn er einkum háður hitastigi og tekur þrjár til 10 vikur. Gagnstætt því sent gildir um bifhærðu lirf- una þá eru sundlirfurnar fjærri því að vera hýsilsér- hæfðar. Finni þær hörund, hvort sem það er sundfit fugla, hörund manns eða einhvers annars spendýrs, festa þær sig þar með sogskálinni og taka til við að tæma innihald kirtla, sem meðal annars seyta prótein- sundrandi hvötum út um göng á framenda lirfanna (mynd 2). Lítið gat rofnar á homhúðina og eftir að hafa kastað halanum smýgur framhluti sundlirfunnar þar í gegn á nokkrum mínútum. Hefst þá þroskun svo- nefndrar schistósómúlu (schistosomula) sem þroskast annaðhvort sem kynþroska kven- eða karlormur (1,4). Þroskatími schistósómúla í fuglum tekur oftast tvær til þrjár vikur. Schistósómúlur iðrablóðagða ber- ast á áfangastað eftir blóðrás en schistósómúlur nasa- blóðagða ferðast frá sýkingarstaðnum, oftast fótum, eftir taugum fuglsins. Fyrst ferðast þær eftir úttaug- um í átt að mænunni, síðan eftir henni upp í heila og að lokum fara þær þvert í gegnum heilann á leið sinni til nefholsins. Á þessari leið éta lirfurnar taugavefinn, stækka og þroskast. Hýsillinn verður því óhjákvæmi- lega fyrir taugaskemmdum sem standa í hlutfalli við fjölda lirfanna sem þroskast (1,4). Fullorðnu ormamir eru yfirleitt 5-10 mm að lengd og 0,02-0,10 mm í þvermál. Karlormar eru svipaðir kvenormunum að stærð en kynin em frábmgðin í útliti. Yfirleitt lifa ormamir ekki nema í nokkra daga, í hæsta lagi fáar vikur, áður en þeir drepast. Kvendýrin verpa miklum fjölda eggja á þessum stutta tíma. Ein- ungis hluti þeirra nær að bijótast út úr líkamanum (inn í þarminn eða út í nefhol) en afgangurinn verður eftir inni í líkamanum og veldur margvíslegum sjúk- dómseinkennum sem þó em ólík hjá iðra- og nasa- blóðögðum, meðal annars vegna þess að egg iðra- blóðagðanna berast út um líkamann með blóðrás hýsilsins og lokast af í hinum ýmsu líffærum þar sem dæmigerð hýsilviðbrögð eiga sér stað (1,4). Sundmannakláði Sundlirfur fuglablóðagða ráðast einnig á spendýr. Þannig sýkjast menn iðulega þegar þeir vaða eða synda í vötnum eða tjörnum þar sem sundlirfur hafa þroskast í vatnasniglum (1). Á ensku er sjúkdómur- inn þekktur undir heitinu „swimmer’s itch“ eða cer- carial dermatitis og höfum við kosið að þýða sjúk- dómsheitið beint, sundmannakláða, þótt lítið sé unt að synt sé í vötnum hér á landi. I fyrsta sinn sem menn verða fyrir árás sundlirfa eru ónæmisviðbrögð líkamans yfirleitt lítil. Lýsa ein- kennin sér þannig að fljótlega eftir að lirfan hefur smogið í gegnum hornlag húðarinnar finna menn kitlandi óþægindi sem oftast standa í nokkrar mínút- ur, stundum þó nokkru lengur, og kringlóttur blettur, allt að 10 mm í þvermál, kemur í ljós. Oftast hverfa þessi einkenni eftir nokkrar klukkustundir. Stundum eru einkennin þó mun meiri og upphleypt kláðabóla myndast á smugustaðnum eftir 10 til 15 klukkustund- ir. Á öðrum og þriðja degi myndast oft í miðju kláða- bólunnar vessafylltar blöðrur, allt að 2 mm í þvermál. Springa þær gjarnan þegar við þær er komið. Frá og með fjórða degi taka bólurnar að hjaðna, roði og kláði að minnka og yfirleitt eru þær horfnar eftir 10 daga þótt iðulega skilji þær eftir sig dökka bletti á húðinni í mánuð eða jafnvel lengur. Sumir eru ofurnæmir fyrir árás sundlirfa fugla- blóðagða. Hjá þeim myndast vökvafylltar bólur um- hverfis smugustaðinn innan klukkustundar. Svæðið bólgnar hratt upp og stækkar þannig að ofnæmisvið- brögðin geta náð yfir svæði sem eru allt að 10 cm í þvermál. Mikill kláði fylgir þessum kláðabólum og tekur það þær mun lengri tíma að hjaðna heldur en hjá fólki sem ekki telst vera ofurnæmt (1). Þar sem mikið er af lirfum í vatni geta menn orðið fyrir árás mikils fjölda lirfa á tiltölulega stuttum tíma og of- næmisviðbrögðin orðið svæsin, sérstaklega þó hjá þeim sem ofurnæmir eru fyrir sundlirfum. Sundmannakláði er þekktur í öllum heimsálfum nema á Suðurskautslandinu (1). Útbreiðslan er fyrst og fremst háð útbreiðslu fuglategundanna sem fóstra fullorðnu ormana en auk þess þarf snigiltegundin að lifa í viðkomandi vatnakerfi. Veðurfar ræður miklu um það hversu mikil brögð eru að því að menn fái sundmannakláða, einkum vegna þess að í heitu veðri syndir fólk meira eða baðar sig í vatni heldur en þeg- ar kalt er úti (15). Börn verða oft ver úti en fullorðnir, vegna þess hversu lengi þau leika sér oft í vatni. Schistósómúlur fuglablóðagða geta þroskast í spendýrum Fram á síðustu ár hafa vísindamenn yfirleitt talið að lirfur fuglablóðagða drepist strax eftir að vera komn- ar inn í húð spendýra. Nýlegar dýratilraunir hafa þó sýnt hið gagnstæða og staðfest að schistósómúlur bæði iðra- og nasablóðagða geta lifað tímabundið í ýmsum spendýrum og valdið í þeim sjúkdómum. Hvað iðrablóðögður snertir hafa tilraunir verið gerð- ar meðal annars á músum, stökkmúsum, hömstrum, Læknablaðið 2002/88 741
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.