Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.2002, Page 57

Læknablaðið - 15.10.2002, Page 57
UMRÆÐA & FRÉTTIR / MÁLEFNI HEILSUGÆSLUNNAR hafi yfirhöfuð einhverja stefnu í málefnum heilsu- gæslunnar. Það hefur ekki gengið þrautalaust að fá svar við þessari spurningu og nú er svo komið að á næstu vik- um munu rúmlega 20 heimilislæknar láta af störfum við heilsugæslustöðvar í Hafnarfirði, á Suðurnesjum, ísafirði og víðar. Þeir bætast við ámóta stóran hóp eða stærri sem hefur yfirgefið hina opinberu heilsu- gæslu á síðustu tveimur árum. I mörgum tilvikum hafa þeir einnig horfið úr sérgrein sinni sem þeir eru búnir að mennta sig til að sinna. Ástæðan er sú að þeim líður ekki vel í heilsugæslunni en hún er eini starfsvettvangurinn sem opinn er heimilislæknum. Heimilislæknar hafa barist fyrir því undanfarin fimm ár að fá að starfa sjálfstætt með gjaldskrár- samningi við Tryggingastofnun ríkisins líkt og aðrir sérfræðingar. Þessu hefur alltaf verið hafnað og nú er liðið nokkuð á annan áratug síðan heimilislæknir hefur opnað stofu í Reykjavík með samningi við TR. Greinilegt er að nú hyggjast heimilislæknar láta reyna á það til þrautar hvort þeirri stíflu verði rutt úr vegi. Ríkið hefur brugðist eigin kerfi En af hverju líður heimilislæknum ekki vel í heilsu- gæslunni? Að því spurði Læknablaðið Gunnstein Stefánsson sem er einn af tíu læknum við heilsugæslu- stöðina Sólvang. Hann sagði að skipulag heilsugæsl- unnar í landinu væri byggt á lögum sem sett voru árið 1973. „Þá teiknuðu yfirvöld upp skipulag sem gerði ráð fyrir tvískiptu heilbrigðiskerfi,“ sagði Gunnsteinn. „Annars vegar skyldi vera heilsugæslan sem sinnti grunnþjónustu, hins vegar þjónusta annarra sér- menntaðra lækna utan sjúkrastofnana. Læknar og þáverandi læknanemar féllust á þetta skipulag og veittu því brautargengi. Þannig gekk þetta í áratugi að ríkið lagði til húsnæði og tæki en læknar sáu um að skipuleggja þjónustuna og þróa starfsemi heilsugæsl- unnar. Með samlíkingu við tölvuheiminn má segja að ríkið hafi lagt til vélbúnaðinn en við hugbúnaðinn. Við þetta kerfi höfum við staðið en það sama verður ekki sagt um ríkisvaldið. Raunar má skipta þessum tíma í tvennt, fyrir og eftir stríðið 1996. Nokkru áður en það hófst var okkur orðið ljóst að ríkið ætlaði ekki að standa við sinn hlut og láta okkur eftir að annast grunnþjónustuna. Reyndar sveikst ríkisvaldið bæði um að sinna uppbyggingu heilsu- gæslunnar með viðunandi hætti og að fylgja eigin skipulagi. Þegar okkur varð þetta ljóst sáum við að ekki væru lengur neinar forsendur fyrir því að við störfuð- um í anda hugmyndanna frá 1973 um samfélagslega uppbyggingu grunnþjónustunnar. Okkar framlags væri einfaldlega ekki óskað lengur. Þá urðum við að söðla um. Við litum þá til þeirrar staðreyndar að við erum menntuð sem sérfræðingar á sama hátt og aðrir sérfræðingar og fyrst ríkið væri fallið frá því að koma á lagskiptu kerfi hlytum við að taka mið af því. Við gátum ekki séð að forsendur væru fyrir því að með- höndla okkur eitthvað sérstaklega. Þess vegna væri réttast að við fengjum sömu kjör og réttindi og aðrir sérfræðingar, þar með talið val um að starfa á heilsu- gæslustöð eða á eigin stofu með gjaldskrársamning við TR eða einhverja blöndu af þessu tvennu. Við settum fram þá kröfu að sérfræðimenntun okkar væri viðurkennd, að öðrum kosti myndi enginn leggja það á sig að mennta sig í þessu fagi og stéttin deyja út. Þetta er því fyrst og fremst réttindabarátta, ekki kjara- barátta, þótt kjörin muni eflaust batna með auknum réttindum." Gunnsteinn Stefánsson heilsugœslulœknir á Sól- vangi er einn þeirra sem láta af störfum 1. desember nœstkomandi. Búnir að fá nóg Þetta er kjarni deilunnar. Eins og allar deilur hefur þessi farið út um víðan völl og snúist um ýmis atriði, smá og stór. Alltaf endar hún þó í því meginatriði sem Gunnsteinn orðar svona: „Við sættum okkur ekki við stöðuna eins og hún er og komum ekki auga á að ráðuneytið hafi neina framtíðarsýn fyrir heilsugæsluna. Framkoma ráðu- neytisins ber þess vitni að þar á bæ skortir menn jarð- samband. Þeir vilja hafa heilsugæsluna eins og hún er Læknablaðið 2002/88 761

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.