Læknablaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 82
LAUSAR STÖÐUR / ÞING
r
EILBRIGÐISSTDFNUNIN IsAFJARÐARBÆ
Stöður sérfræðinga í lyflækningum
og heilsugæslu
Staða sérfræðings í lyflækningum við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á ísafirði er laus til umsóknar. Um er að
ræða 100% stöðu. Leitað er eftir manni með fjöl-
þætta reynslu í almennum lyflækningum og bráða-
lækningum. Staðan er veitt eftir nánara samkomu-
lagi.
Frekari upplýsingar veitir Þorsteinn Jóhannesson
yfirlæknir, thorsteinn.johannesson@fsi.is
Við Heilsugæslustöðina á ísafirði er laus staða
heilsugæslulæknis. Um er að ræða heila stöðu sem
veitt er eftir nánara samkomulagi. Krafist er sér-
fræðimenntunar í heimilislækningum.
Nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Kjartansson
yfirlæknir, hallgrimur. kjartansson@fsi.is
Upplýsingar um menntun og starfsreynslu sendist
Þresti Óskarssyni framkvæmdastjóra fyrir 1. nóvem-
ber næstkomandi, throstur@fsi.is
Heilbrigðisstofnunin ísafjarðarbæ skiptist í sjúkra-
svið og heilsugæslusvið og er vel búin stofnun með
rúmgóðri vinnuaðstöðu. Stofnunin þjónar Vestfjörðum,
einkum norðanverðum. Við veitum alla almenna þjón-
ustu, bæði í heilsugæslu og í skurð- og lyflækningum,
fæðingarhjálp, öldrunarlækningum, slysahjálp og end-
urhæfingu. Starfsemin hefur verið í örum vexti á undan-
förnum árum. Starfsmenn eru rúmlega 150 talsins og
starfsandi er mjög góður.
ísafjörður er höfuðstaður Vestfjarða og þar blómstrar
öflugt lista-, menningar- og félagslíf. íþrótta- og
keppnisaðstaða er mjög góð, bæði innan- og utan-
húss. Þrír golfvellir eru á svæðinu, fjögur íþróttahús og
fimm sundlaugar. Einnig er líkamsræktarstöð í bænum.
Hægt er að stunda útivist meó margvíslegum hætti,
skíðaland frábært, stutt í veiðilönd og áhugaverð
göngusvæði og aðstaða til sjósports er engu lík.
Veðursæld er mikil á ísafirði og lognkyrrð algeng. Flug-
samgöngur til Reykjavíkur eru tvisvar til þrisvar á dag.
Heilbrigðisstofnunin Selfossi
Heilsugæslu-
læknir
Laus er staða sérfræðings í heimilislækningum á
heilsugæslustöðinni á Selfossi.
Umsóknarfrestur er til 25. október.
Nánari upplýsingar veitir yfirlæknir heilsugæslunnar
Egill Rafn Sigurgeirsson í síma 482-1300 eða 868-
9832, egill.rs@hss.selfoss.is eða framkvæmdastjóri
Heilbrigðisstofnunarinnar í síma 482-1300.
Sjötta vísindaþing
Félags íslenskra
heimilislækna
25.-26. október í Borgarnesi
Á þinginu verða bæði frjálsir fyrirlestrar og spjalda-
þing. Kynntar verða rannsóknir og rannsóknaráætl-
anir sem tengjast heilsugæslu. Auk þess verða bæði
innlendir og erlendir gestafyrirlesarar.
Sérstöku blaði þingsins verður dreift til allra lækna á
íslandi.
Skráning á þingið: jonsteinar@reykjalundur.is
Þátttökugjald er kr. 9.000.
Þingið er styrkt af Thorarensen Lyf.
Vísindaþingsnefndin
786 Læknablaðið 2002/88