Læknablaðið - 15.02.2003, Blaðsíða 45
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ / FORMANNARÁÐSTEFNA LÍ
Þriðji og þýðingarmesti hluti yfirlýsingarinnar er að
þróað verði fyrirkomulag sjálfstætt starfandi heim-
ilislækna. Þeir samningar verði byggðir á gildandi
samningum heimilislækna utan heilsugæslustöðva.
Hins vegar verði lögð áhersla á að samið verði um
stærð samlags heimilislækna, bæði sjálfstætt starfandi
og á heilsugæslustöðvum, og þar með skapast forsend-
ur fyrir mati á því hversu marga heimilislækna þarf á
íslandi sem yrði viðurkennt af heilbrigðisráðuneytinu
og ætti að stefna að. Þegar hefur verið skipuð samn-
inganefnd af LÍ og þessir samningar eru í undirbúningi.
Staða heimilislækninga ætti að verða mun öflugri
ef þessar úrbætur fást fram og má líta svo á að for-
sendur séu þá fengnar fyrir að sérfræðingsstarf í þess-
ari grein sé orðið sambærilegt starfi í öðrum greinum.
Þannig á starfið að geta verið áhugavert fyrir sér-
fræðilækninn og einnig unglækninn sem hyggst velja
sér grein. Því miður eru launakjör unglækna í heilsu-
gæslu þó ekki ásættanleg enn, ekki frekar en á sjúkra-
húsum og hefur það verið rætt við ráðamenn. Þetta
atriði og fleiri þarfnast frekari úrbóta.
Ef þessum áfanga lýkur farsællega taka við aðrar
áherslur meðal heimilislækna. Efla þarf fagið sjálft.
Vinna þarf að símenntun, fræðslu og gæðamálum.
Erlendis hefur gífurleg uppbygging orðið í þessum
málaflokkum heimilislækna einmitt í kjölfar farsælla
úrlausna á kjara- og stéttarmálum. Slík efling á fag-
legri vinnu eykur ánægju í starfi og styrkir stöðu fags
ins sem nauðsynlegt er í kjölfar erfiðra átaka og
óánægju. Eins og fram kemur að ofan eru væntingar
okkar heimilislækna til yfirlýsingar ráðherra miklar
og nú verða verk hans að tala. Forsendur úrbóta eru
fyrir hendi, ber ráðherra gæfu til að sjá til þess að þær
verði að veruleika?
Formannaráðstefna
Læknafélags íslands
Boðað er til formannafundar skv. 9. grein laga Læknafélags íslands föstudaginn 11. apríl í húsnæði
læknasamtakanna að Hlíðasmára 8, Kópavogi.
Dagskrá:
10:00-12:30 Skýrsla formanns LÍ um afgreiðslu ályktana aðalfundar 2002, störf stjórnar og stöðu helstu
mála. Skýrslur formanna aðildarfélaga, samninganefnda og helstu starfsnefnda eftir atvikum.
12:30-13:30 Matarhlé
13:30-15:00 Skýrslur helstu starfsnefnda
Umræður
15:00-15:30 Kaffihlé
15:30-17:00 Áframhald umræðna
Önnur mál
Fundarlok verða á heimili formanns að Hæðarseli 28, Reykjavík.
Læknablaðið 2003/89 137