Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.2003, Síða 48

Læknablaðið - 15.02.2003, Síða 48
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÆKNADAGAR 2003 frá tillögum til úrbóta sem komið hefðu frá stýrihópi á vegum embættisins. Þar er meðal annars gert ráð fyrir því að landlæknir geti sótt gögn beint og milliliðalaust í persónugreinanlegan gagnagrunn um lyfsölu. Auk þess þurfi að koma á sérstöku eftirliti með öllum ávana- og fíkniefnum og ráða sérstaka starfsmenn að embættinu til þess að sinna slíku eftirliti. Við þetta mætti bæta þeirri spurningu hvort ekki væri rétt að fjölga þeim lyfjum sem væru eftirritunarskyld. En meginmálið í þessu væri þó að heilbrigðis- starfsmenn töluðu meira saman um sjúklinga sína og meðferðina. Hann sagði að umræðan um persónu- vemd og trúnaðarsamband við sjúklinga hefði gert marga starfsmenn óörugga um það hvað þeir mættu segja við samstarfsfólk sitt. Þetta gæti endað með því að læknir á stofugangi spyrði hjúkrunarfræðing hvort það væri búið að sprauta tiltekinn sjúkling en hjúkr- unarfræðingurinn neitaði að gefa það upp og vísaði til trúnaðarskyldunnar. I umræðum sem urðu að loknum framsöguerind- um tóku margir í sama streng. Þórarmn Tyrfingsson yfirlæknir á Vogi sagði þörf á því að koma á fót leið- beiningaþjónustu við lækna sem lentu á villigötum. Þeir þyrftu að geta leitað til einhverra með sín vanda- mál áður en þau eru komin í fjölmiðla eða inn í réttarsali. Hvernig halda áramótaheitin? Fíkniefni komu einnig við sögu á öðru málþingi sem blaðamaður sótti daginn eftir. Þar var það tóbakið sem átti hug manna en yfirskrift málþingsins var: Hvernig halda áramótaheitin? Að styðjafólk til breyt- inga á lífsstíl. Gunnar Sigurðsson hjá Hjartavernd greindi frá niðurstöðum úr rannsóknum samtakanna á hættunni af reykingum hér á landi en þær hafa birst áður. Helstu niðurstöður eru þær að þriðjungur dauðsfalla meðal fólks á aldrinum 35-69 ára tengist reykingum. Af þeim þriðjungi er helmingurinn af völdum hjarta- og æðasjúkdóma. Samt reykir þriðjungur fólks á miðjum aldri. Vissulega hafa reykingar karlmanna minnkað en konurnar hafa heldur sótt í sig veðrið undanfarin ár. Þeir sem hætta gera það yfirleitt vegna þess að þeir hafa áhyggjur af heilsufari sínu eða finnst kostnaðurinn orðinn of mikill. Aðalfyrirlesari þessa málþings var velski sálfræð- ingurinn Stephen Rollnick sem er prófessor í sam- skiptum á sjúkrahúsum og innan heilsugæslunnar við læknadeild háskólans í Cardiff. Hann hefur ritað bækur um samtöl lækna og sjúklinga og hvernig læknar geta stutt sjúklinga í því að breyta um lífsstíl. Rollnick lagði áherslu á að það væri sjúklingsins að ákveða hvað hann gerði og hvernig hann hagaði lífi sínu en læknar gætu vissulega haft áhrif á slíkar ákvarðanir. Þeir þyrftu hins vegar að gera það á rétt- an hátt, ráðgjöf þeirra þyrfti að vera vönduð og fag- leg. Þegar sjúklingur kemur til læknis með margþætt- an vanda sem tengist lífsstíl viðkomandi væru það eðlileg viðbrögð læknis að hneykslast dálítið og halda vandlætingartölu yfir sjúklingnum. Það væri þó ekki heppilegt að mæta sjúklingnum á þann hátt og alls ekki líklegt til árangurs. Ekki dæma heldur hvetja Rollnick sagðist hafa unnið um árabil á meðferðar- stofnun fyrir áfengissjúklinga þar sem menn höfðu það að leiðarljósi að fá sjúklinginn til að horfast í augu við eigin vanda, með góðu eða illu ef svo má segja. Smátt og smátt fór hann að efast um að þetta væri rétta aðferðin. Sjúklingamir voru í afneitun þeg- ar þeir komu inn á stofnunina og afneitun eflist við mótlæti. Þeir væru ekki ósvipaðir börnum sem neit- uðu að fara í bað. Því oftar sem foreldrarnir segja þeim að fara í bað, þeim mun staðfastari verða þau í því að fara alls ekki í bað. Rollnick sagðist hafa komist að því að flestir sem leituðu sér meðferðar við fíkn hefðu raunverulegan áhuga á að ná tökum á vandanum. Það þyrfti ekki að kveikja þann áhuga með því að útlista fyrir þeim hversu slæmt líferni þeirra væri. Læknirinn ætti því að einbeita sér að því að ýta undir áhuga þeirra, laða hann fram og styrkja hann á jákvæðan hátt. Hann ætti að hlusta á sjúklinginn og hvetja hann, ekki með óvirkum hætti heldur leiðandi. Hér greip Rollnick til líkingamáls og sagði að samband sjúklings og læknis ætti að vera líkara dans en glímu. Hann benti á að oft ættu sjúklingar við samþættan vanda að stríða, þeir væru of feitir, þeir reyktu og neyttu áfengis. Þótt rót þessara vandamála væri kannski að hluta til sú sama væri það góð aðferð að hvetja fólk til þess að takast á við eitt vandamál í einu. Aðalatriðið væri þó að hverfa frá þeirri gömlu aðferð að læknirinn segi sjúklingnum hvað hann eigi að gera. Flestum finnist sér stillt upp við vegg þegar þeir mæta slíku viðhorfi. í stað þess að læknirinn þylji upp staðreyndir um slæm áhrif reykinga á heilsu sjúk- lingsins og dragi síðan ályktanir fyrir hann um hvað hann þurfi að gera þá eigi læknirinn að leggja stað- reyndirnar á borðið en fá sjúklinginn til þess að hug- leiða þær og taka sjálfur ákvörðun. Fólk er misjafnlega mikið tilbúið að hætta að reykja. Sumir vilja það endilega en telja vonlítið að þeir geti hætt, aðrir sjá ekki ástæðu til þess að hætta. í slíkum tilvikum þarf læknirinn að laða fram vilja og áhuga sjúklingsins á að breyta lífemi sínu til hins betra. í lokin tók Rollnick fram að samtalsaðferðin sem hann kenndi væri hvorki tímafrek né flókin. Læknar ættu að líta á samtölin sem ijárfestingu til framtíðar því ef þeir sýna sjúklingi sínum virðingu eru meiri líkur á að með tímanum verði hægt að beita hann meiri þrýstingi til að fá hann til að breyta líferni sínu. 140 Læknablaðið 2003/89
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.