Læknablaðið - 15.02.2003, Blaðsíða 52
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BARNA- OG UNGLINGAGEÐLÆKNINGAR
Staða barna- og unglíngageðlækninga í Evrópu
Greinargerð Evrópusamtaka barna- og unglingageðlækna
Helga
Hannesdóttir
Dagbjörg
Sigurðardóttir
í barna- og unglingageðlækningum er unnið með
alþjóðlega viðurkenndar læknisfræðilegar aðferðir,
staðla og viðhorf við greiningu, fyrirbyggingu og
meðferð á geðröskunum fólks undir 18 ára aldri.
Einnig að unnið sé að framgangi fræðanna í þágu
aukins geðheilbrigðis.
Heiti og titlar
Innan evrópsku sérgreinasamtakanna UEMS er
heitið barna- og unglingageðlækningar/sálgreining
(Child and Adolescent Psychiatry Psychotherapy;
CAPP) notað til að sýna að sálgreining á ungu fólki,
framkvæmd af barna- og unglingageðlæknum, sé
hluti af starfi sérfræðinga í barna- og unglingageð-
lækningum. Sálgreining er hluti af sérnámi bama og
unglingageðlækna, er faglega unnin og veitt innan
ramma greiningar. Þetta kallar á sérstaka viðurkenn-
ingu, og því er það haft í titli UEMS-kaflans. í
CAPP-samtökunum eru vanalega ekki læknisfræði-
lega menntaðir sálgreinar fyrir fullorðna sjúklinga.
Heitin „barna- og unglingageðlækningar“,
„barnageðlækningar", „barna- og unglingataugageð-
lækningar“, „pedopsychiatry" og fleiri eru útbreidd í
Evrópulöndum. í raun þýða þau öll hið sama, þótt
mismunandi sé eftir löndum hvernig barna- og ung-
lingageðheilsuþjónusta er skipulögð eftir aldurshóp-
um, og hversu mikil skörun er við barnatauga-
læknisfræði. Heitið „CAPP“ er notað í þessu skjali til
styttingar þegar læknisþjónustunni er lýst, þótt heitið
barna- og unglingageðlæknir sé notað til glöggvunar
þegar vísað er til iðkandans.
Störf CAPP
Helga er dr. med. og fulltrúi
íslands í Evrópusamtökum
barna- og unglingageðlækna
fyrir hönd Félags íslenskra
barna- og unglingageðlækna
og Læknafélags íslands.
Dagbjörg er barna- og ung-
lingageðlæknir og formaður í
Félagi íslenskra barna-
og unglingageðlækna.
Barna- og unglingageðlæknar eru með mikla sér-
þekkingu. Ekki kalla öll geðheilsuvandamál ung-
menna á sérhæfða þekkingu geðlækna né lækna yfir-
höfuð. Vægar geðraskanir geta foreldrar eða ósér-
hæfðir einstaklingar oftast ráðið við. Við sum alvar-
legri vandkvæði er hins vegar þörf á faglegri þekk-
ingu annarra en þeirra sem hafa læknisfræðilega
kunnáttu, svo sem sálfræðinga, sálgreina, hjúkrunar-
fræðinga, kennslufræðinga, félagsráðgjafa og svo
framvegis. Sumar alvarlegar geðraskanir geta barna-
eða heimilislæknar séð um. Alvarlegustu og erfið-
ustu geðraskanirnar þurfa þó aðstoð barna- og ung-
iingageðlæknis.
Möguleiki er á frekari sérhæfingu á CAPP-sér-
sviðinu. Barna- og unglingageðlæknar nota staðlaðar
læknisfræðilegar aðferðir (greiningu, lyfjameðferð
og fleira) en eru einnig þjálfaðir í sálfræðilegum að-
ferðum, greiningum og sálfræðimeðferðum sem sum-
ir sérfræðingar nota mikið. Sums staðar er vinna
barna- og unglingageðlækna nátengd vinnu barna-
taugalækna. Til er úrval af aðferðum sem gefa færi á
mjög fjölbreyttri meðferð þannig er unnt að velja um
marga möguleika. Mismunandi vinnuaðferðir kunna
að ráða því hvaða geðröskunum er vísað áfram til
tiltekins barna- og unglingageðlæknis.
Þótt barnið (heiti sem er látið ná til unglinga einn-
ig), sé meginviðfangsefni barna- og unglingageð-
lækna, þarf að taka tillit til þess að næstum öll börn
lifa og þroskast hjá fjölskyldum sínum. Meðferð
CAPP beinist að því að vinna með foreldra jafnt sem
börn vegna þess að foreldrar hafa valdið til að veita
þroska barnanna brautargengi. Viðhorf foreldra eru
mikilvæg með tilliti til hegðunarmótunar og lyfja-
gjafar til að meðferðarheldi sé til staðar. Stundum er
viðeigandi að hafa alla fjölskylduna í meðferð, sér-
staklega þegar tilfinningavandi og hegðun barnsins
stafa af misverkunum í fjölskyldukerfinu.
Framkvæmd greiningar
Geðtruflanir barna eru vel skýrðar og til eru umfangs-
mikil gögn um uppruna þeirra og orsakir. Venjulega
er um að ræða samspil erfða, líffræðilegra þátta og
umhverfisþátta. Geðraskanimar eru oft langvinnar,
þrúgandi fyrir fjölskyldu og umhverfi, og kostnaðar-
samar fyrir þjóðfélagið. Þær kunna að skaða persónu-
þroska einstaklingsins, setja skólagönguna í uppnám
og valda foreldrum og systkinum verulegri óham-
ingju.
Greiningarferlið er margbrotið og í því felst meira
en það að bera kennsl á tiltekið mynstur af sjúk-
dómseinkennum. Það beinist einnig að því að skoða
samspil einstaklinga og fjölskyldna, og að lýsa kerfi
þar sem einkennum er haldið við með ákveðinni
hegðun og hugsun sem lagast illa að aðstæðum.
Stundum eiga fleiri en ein sjúkdómsgreining rétt á
sér.
Við þetta bætist sú staðreynd að barnið er ein-
staklingur að þroskast - en ekki lítil fullorðin mann-
eskja - og taka þarf tillit til aldurs einstaklingsins við
greiningu og meðferð.
Þjálfun
Af ofangreindu sést að greiningarhlutverk CAPP-
sérfræðings kallar á hæfni á mörgum sviðum læknis-
fræði jafnt sem sálfræðiþekkingar og þekkingar í fé-
144 Læknablaðið 2003/89