Læknablaðið - 15.02.2003, Side 56
UMRÆÐA & FRÉTTIR / VIÐBÓTARSAMNINGUR UM VERNDUN MANNRÉTTINDA.
víð Samníngínn um verndun mannréttínda og líflæknisfræði að því er
varðar flutning á líffærum og vefjum af mannlegum uppruna
Formáli
Aðildarríki Evrópuráðsins, önnur ríki og Evrópu-
sambandið er undirrita þennan Viðbótarsamning við
Samninginn um verndun mannréttinda og mannlegr-
ar reisnar að því er varðar beitingu líffræði og læknis-
fræði, (sem hér eftir verður vitnað til sem „Samnings-
ins um mannréttindi og líflæknisfræði"),
álíta að markmið Evrópuráðsins sé að ná fram
meiri einingu meðal aðildarríkjanna og að ein af
aðferðunum, sem beitt skal til að ná þessu marki,
sé viðhald og efling mannréttinda og frumfrelsis;
linga og að koma í veg fyrir kaupmennsku með
hluta líkamans við öflun, skipti og úthlutun líffæra
og vefja;
hafa í huga fyrra starf Ráðherranefndar og Ráð-
gjafarþings Evrópuráðsins á þessu sviði;
eru staðráðin í að gera þær ráðstafanir, sem nauð-
synlegar eru, til þess að tryggja mannlega reisn og
réttindi og frumfrelsi einstaklinganna að því er
varðar flutning líffæra og vefja;
hafa orðið ásátt um eftirfarandi:
Þýðing
Örn Bjarnason
álíta að markmið Samningsins um mannréttindi og
líflæknisfræði, eins og það er skilgreint í fyrstu grein,
sé að vemda reisn og auðkenni allra mannvera og
að tryggja öllum, án mismununar, virðingu fyrir
óskertu ástandi og öðrum réttindum og frumfrelsi,
að því er varðar beitingu líffræði og læknisfræði;
álíta að framfarir í læknisfræði, sérstaklega á sviði
flutnings líffæra og vefja, stuðli að björgun manns-
lífa eða auki stórlega lífsgæði manna;
álíta að líffæra- og vefjaflutningur sé traustur þátt-
ur þeirrar heilbrigðisþjónustu, sem þegnunum er
boðin;
álíta að þar eð skortur er á líffærum og vefjum,
skuli viðeigandi ráðstafanir gerðar, til þess að
auka líffæra- og vefjagjafir, sérstaklega með því að
fræða almenning um mikilvægi líffæra- og vefja-
flutninga og með því að stuðla að samvinnu á þessu
sviði innan Evrópu.
íhuga enn fremur siðfræðilegu, sálfræðilegu og fé-
lagsmenningarlegu vandamálin, sem eru eðlislæg-
ur hluti líffæra- og vefjaflutninga;
álíta, að misnotkun líffæra- og vefjaflutninga geti
leitt til athafna, sem stofni lífi, velferli eða reisn
manna í hættu;
álíta, að flutningur líffæra og vefja skuli fara fram
við skilyrði, þar sem vernduð eru réttindi og frelsi
gjafa, hugsanlegra gjafa og líffæra- og vefjaþega og
að stofnanir verði að stuðla að því, að slík skilyrði
séu tryggð;
eru sammála um það, að með því að auðvelda
flutning líffæra og vefja í þágu sjúklinga í Evrópu,
sé þörf fyrir að vernda réttindi og frelsi einstak-
Fyrsti kafli - Stefna og gildissvið
Fyrsta grein (Tilgangur)
Aðilar Viðbótarsamnings þessa skulu vernda reisn
og auðkenni allra og tryggja, án mismununar, virð-
ingu fyrir óskertu ástandi hvers og eins og fyrir öðr-
um réttindum og frumfrelsi, að því er varðar flutning
líffæra og vefja af mannlegum uppruna.
Önnur grein (Gildissvið og skilgreiningar)
1. Viðbótarsamningur þessi gildir um flutning líffæra
og vefja milli manna í lækningaskyni.
2 Ákvæði viðbótarsamnings þessa er varða vefi skulu
einnig gilda um frumur, þar með taldar blóðmynd-
andi stofnfrumur.
3. Viðbótarsamningur þessi gildir ekki urn:
a æxlunarlíffæri og æxlunarvef,
b líffæri og vefi fósturvísis eða fósturs,
c blóð og blóðafurðir.
4. Viðbótarsamningi þessum viðkomandi
- nær heitið „flutningur" yfir allt ferli brottnáms
líffæris eða vefjar úr einum einstaklingi og
ígræðslu þessa líffæris eða vefjar í annan ein-
stakling, þar með talin sérhver aðferð við
undirbúning þeirra, varðveizlu eða geymslu
- og háð ákvæðunum í tuttugustu grein, vísar
heitið „brottnám“ til brottnáms í ígræðsluskyni.
Annar kafli - Almenn ákvæði
Þriðja grein (Kerfi fyrir líffæraflutninga)
Aðilar skulu tryggja, að til sé kerfi er veiti sjúklingum
óvilhallan aðgang að þjónustu fyrir líffæraflutninga.
Háð ákvæðum þriðja kafla skal aðeins úthluta líf-
færum og þegar við á, vefjum, til sjúklinga sem eru á
opinberum biðlistum, í samræmi við gagnsæjar, hlut-
148 Læknablaðið 2003/89