Læknablaðið - 15.02.2003, Side 58
UMRÆÐA & FRÉTTIR / VIÐBÓTARSAMNINGUR UM VERNDUN M AN N R ÉTTI N DA ...
Fimmtánda grein (Brottnám frumna úr lifandi gjafa)
I lögum má ákveða, að ákvæði fjórtándu greinar, ann-
arrar málsgreinar, stafliða ii og iii skuli ekki gilda um
frumur, að því leyti sem brottnámið felur aðeins í sér
minniháttar áhættu og minniháttar byrði fyrir gjafann.
Fjórði kafli - Brottnám líffæra og vefja úr
látnu fóiki
Sextánda grein (Staðfesting andláts)
Líffæri eða vefi skal ekki nema brott úr líkama látins
einstaklings, nema andlát hans hafi verið staðfest í
samræmi við lög.
Læknarnir, sem staðfesta dauða einstaklings, skulu
vera aðrir en þeir, sem beina aðild eiga að brottnámi
líffæra eða vefja úr hinum látna einstaklingi eða taka
þátt í áframhaldandi flutningi á þeim eða ábyrgð bera
á meðferð mögulegs líffæris- eða vefjaþega.
Sautjánda grein (Samþykki og leyfi)
Líffæri eða vefi skal ekki nema brott úr líkama látins
einstaklings, nema aflað hafi verið samþykkis eða
leyfis, sem krafizt er í lögum.
Brottnámið skal ekki fara fram, hafi hinn látni
mótmælt því.
Atjánda grein (Virðing fyrir mannslíkamanum)
Meðan á brottnámi stendur skal meðhöndla manns-
líkamann með virðingu og allar réttmætar ráðstafanir
gerðar, til þess að koma útliti líksins tii fyrra horfs.
Nítjánda grein (Stuðlað að því að líffæri og vefir séu
gefin)
Aðilar skulu gera allar viðeigandi ráðstafanir, til þess
að stuðla að því, að líffæri og vefir séu gefin.
Fimmti kafli - ígræðsla líffæris og vefjar sem
numin eru brott í öðrum tilgangi en að gefa
þau til ígræðslu
Tuttugasta grein (ígræðsla líffæris eða vefjar sem num-
in eru brott í öðrum tilgangi en að gefa þau til ígræðslu)
1. Þegar líffæri eða vefur eru numin brott, meðan á
ílilutun stendur, í öðrum tilgangi en þeim, að gefa
þá til ígræðslu, má því aðeins græða þau í, að af-
leiðingarnar og hugsanleg áhætta hafi verið skýrð
fyrir þeim einstaklingi og að aflað hafi verið sam-
þykkis hans eða hennar eða viðeigandi leyfis, ef
um einstakling er að ræða, sem ekki er hæfur til að
veita samþykki.
2. Öll ákvæði Viðbótarsamnings þessa gilda um að-
stæður, sem vísað er til í fyrstu málsgrein, nema
þau sem eru í þriðja og fjórða kafla.
Sjötti kafli - Bann við fjárhagslegum ágóða
Tuttugasta og fyrsta grein (Bann við fjárhagslegum
ágóða)
1. Mannslíkaminn og hlutar hans skulu ekki vera
uppspretta fjárhagslegs ágóða eða sambærilegs
hagræðis.
Fyrrnefnt ákvæði skal ekki koma í veg fyrir greiðsl-
ur, sem ekki eru fjárhagslegur ágóði eða sambærilegt
hagræði, sérstaklega:
- bætur til lifandi gjafa fyrir tekjumissi og hvem
annan réttlætanlegan kostnað, sem hlýzt af
brottnáminu eða læknisfræðilegum athugun-
um tengdum því;
- greiðslu réttlætanlegrar upphæðar fyrir rétt-
mæta læknisfræðilega og skylda tæknilega
þjónustu í tengslum við flutninginn;
- bætur ef ótilhlýðilegt tjón hlýzt af brottnámi
líffæra og vefja úr lifandi mannverum.
2. Bannaðar skulu auglýsingar um að þörf sé fyrir
líffæri eða vefi eða að þau séu tiltæk, með það fyrir
augum að bjóða fram eða leita eftir fjárhagslegum
ágóða eða sambærilegu hagræði.
Tuttugasta og önnur grein (Bann við óheiðarlegri
kaupmennsku með líffæri og vefi)
Óheiðarleg kaupmennska með líffæri og vefi skal
bönnuð.
Sjöundi kafli - Trúnaður
Tuttugasta og þriðja grein (Trúnaður)
1. Öll persónuleg gögn er tengjast mannverunni,
sem líffæri eða vefir hafa verið numin úr, svo og
þau sem tengjast þeganum, skulu metin sem trún-
aðarmál. Slíkum gögnum má aðeins safna, úr
þeim vinna eða miðla, að fylgt sé reglum um trún-
að í starfi og vernd persónuupplýsinga.
2. Ákvæðin í fyrstu málsgrein skal túlka, án þess að
skert séu ákvæðin, sem með viðeigandi aðgæzlu
gera kleifa söfnun, úrvinnslu og miðlun nauðsyn-
legra upplýsinga um mannveruna, sem líffæri eða
vefir hafa verið tekin úr eða um þega líffæris eða
vefjar, að svo miklu leyti sem það er nauðsynlegt í
læknisfræðilegum tilgangi, þar með talið að hægt
sé að rekja líffærin og vefina, svo sem mælt er fyrir
um í þriðju grein Viðbótarsamnings þessa.
Áttundi kafli - Brot gegn ákvæðum
Viðbótarsamningsins
Tuttugasta og fjórða grein (Brot gegn réttindum eða
meginreglum)
Aðilar skulu sjá fyrir viðeigandi réttarvernd, til þess
skjótlega að koma í veg fyrir eða stöðva ólögmæt brot
á réttindunum og meginreglunum, sem sett eru fram
í Viðbótarsamningi þessum.
Tuttugasta og fimmta grein (Bætur fyrir ótilhlýðilegt
tjón)
Sú mannvera, sem orðið hefir fyrir ótilhlýðilegu tjóni
vegna aðgerða við flutning, á rétt á sanngjörnum bót-
um samkvæmt þeim skilyrðum og á þann hátt, sem
lög mæla fyrir um.
150 Læknablaðið 2003/89