Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.2003, Page 33

Læknablaðið - 15.05.2003, Page 33
ÞING SKURÐLÆKNA, SVÆFINGA- O G GJÖRGÆSLULÆKNA / ÁGRIP ERINDA E - 04 Dempandi festingar í lendhrygg: Nýir aðgerðar- möguleikar við slitgigt í mjóbaki Halldór Jónsson jr, Bogi Jónsson Bæklunarskurðdeild Landspítala Fossvogi halldor@landspitali.is Inngangur: Á síðustu árum hafa ýmsir meðferðarmöguleikar þróast til aðgerða á slitgigt í mjóbaki. Má þar nefna hryggstólpa, gerviþófa og gerviliði. Þróunin hefur sérstaklega verið í þá átt að komast hjá spengingu og viðhalda hreyfingu í liðbilinu. Við viljum vekja athygli á dempandi festingum eða hryggdempurum sem kallast Dynesys (Dynamic Neutralization System for the Spine). Tækið á að endur- skapa rétta stöðu í aflöguðu liðbili og létta um leið á aðklemmdum taugavef. Það er sett inn aftan í hryggsúluna og leyfir áframhaldandi hreyfingu í liðbilinu þar sem ekki fer fram nein beinígræðsla eins og við hefðbundna spengingu. Efniviður og aðferðir: Gerð var afturvirk rannsókn á annars vegar ástæðu aðgerðar, meinafræði liðbila og fjölda liðbila, og hins vegar tímalengd aðgerðar, blóðgjöf, legutíma og kostnaði tækis miðað við hefðbundna spengingu. Niðurstöður: Á hálfu ári (01.09.02-28.02.03) fóru 10 sjúklingar (fjór- ar konur, sex karlar) í aðgerð, meðalaldur var 59 ár (34-75). Ástæð- an var verkir í baki og/eða fótum vegna miðlægrar hryggþófabung- unar (central disc protrusion) (fjórir) og eftir fyrri aftari spengingu (posterolateral fusion L3/4-S1) (sex). Fimm sjúklingar voru lagaðir á einu liðbili (L2 til Sl), fjórir á tveimur liðbilum (L2-3 og L3-4 eða L3-4 og L4-L5) og einn á þremur liðbilum (L2-3, L3-4, L4-L5). Einn sjúklingur fékk taugarótarertingu sem gekk til baka. Miðað við hefðbundna aftari spengingu var meðalaðgerðartími fyrir Dynesys 45 mínútur á liðbil sem er 15 mínútum lengur en við hefðbundna festingu; legutími var sex dagar sem er einum degi minna en við hefðbundna festingu og blóðgjöf var 0-2 einingar sem er um tveimur einingum minna en við hefðbundna festingu. Kostnaður á liðbil er um 224.000 sem er sambærilegt við hefðbundna festingu; það hækkar hins vegar um 85.000 á hvert aukaliðbil sem bætt er við. Allir sjúklingar upplifðu minni staðbundna verki heldur en þegar beintaka fer einnig fram og allir losnuðu strax við fótaverki án þess að þurfa aukalega laminectomiu (þynnunám) eða foraminotomiu. Ályktanin Demparaaðgerðir í lendhrygg hafa gefið jákvæða byrjun- arreynslu. Það að losna við spengingu, hafa minni blóðgjöf og styttri legutíma eru allt framfaraskref miðað við fyrri möguleika til að auka lífsgæði slitgigtarsjúklinga. Árangur okkar hingað til er sambærileg- ur niðurstöðuviðmiði framleiðanda. Líklegt er að hryggstólpaað- gerðir í lendhrygg muni að mestu leyti víkja fyrir þessum aðgerðum. E - 05 Meðfædd vélindalokun á íslandi 1963-2002 Anna Gunnarsdóttir'”, Guðmundur Bjarnasom, Ásgeir Haraldsson34 'Skurðdeild Háskólasjúkrahússins í Malmö, 2Barnaskurðdeild Barnaspítala Hringsins, 3Barnaspítali Hringsins, Landspítala Hring- braut, Ææknadeild Háskóla íslands annagunn 7@hotmail. com Inngangur: Meðfædd lokun á vélinda er sjaldgæfur galli og er ný- gengi um 1/3000-1/4500 fæddra barna. Meðferð gallans er aðgerð. Árangur aðgerða fer batnandi og er lifun 80-92% síðustu tvo ára- tugi. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna nýgengi vélinda- lokunar á íslandi og meta árangur aðgerða. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var afturvirk og upplýsingar fengust úr sjúkraskrám þeirra sem greindust með meðfædda vél- indalokun á Barnaspítala Hringsins 1963-2002. Fengnar voru upp- lýsingar meðal annars um meðgöngulengd, fæðingarþyngd, tegund galla og hvort aðrir fæðingargallar væru til staðar. Einnig var lagt mat á árangur aðgerða. Upplýsingar um fjölda lifandi fæddra á tímabilinu fengust frá Hagstofu íslands. Niðurstöður: 37 börn greindust með meðfædda vélindalokun á tíma- bilinu. Meðalfæðingarþyngd var 2626g, þar af 16 börn (43%) með fæðingarþyngd <2500g. 14 börn (38%) voru fyrirburar (<38 vikur). 34 börn (92%) höfðu algengustu tegund vélindalokunar með blindan nærenda á vélinda og fistil milli fjærenda og aðalberkju. 34 börn gengust undir aðgerð með lokun á fistli og sammynningu á vélinda. Tíu börn létust eftir aðgerð, þar af eitt bam eftir hjartaaðgerð ári eft- ir vélindaaðgerð. Algengasta dánarorsök var lungnabólga (70%). Lifun eftir vélindaaðgerð var því 74% á tímabilinu. Aðrir meðfæddir gallar voru algengir þar sem hjartagallar reyndust algengastir (32%). Nýgengi sjúkdómsins fór minnkandi á tímabilinu, frá 1/3737 á fyrstu tíu árunum í 1/10.639 á síðasta áratugnum. Ályktanir: Athyglisvert er hversu nýgengi sjúkdómsins hefur farið lækkandi síðasta áratug og eru þetta lægstu tölur sem okkur er kunnugt um. Árangur aðgerða hefur batnað frá fyrri rannsókn en er þó heldur lakari en í nágrannalöndum okkar. Aðrir fæðingagallar eru algengir hjá þessum sjúklingahópi. E - 06 Æðastíflubrottnám á vinstri framveggsgrein hjarta. Afturskyggn rannsókn á 196 sjúklingum Tómas Guðbjartsson, Alex Karavas, Sari F. Aranki, Tom Mihaljo- vic, Lawrence H. Cohn, John G. Byrne Hjartaskurðdeild Brigham and Women's sjúkrahússins í Boston. Harvard Medical School. tomasgudbjartsson@hotmail.com Inngangur: Framfarir í æðavíkkunum (PCI) hafa gert það að verk- um að sjúklingar sem gangast undir kransæðahjáveituaðgerð (CABG) eru oft með langt genginn þriggja æða kransæðasjúkdóm. Þegar ekki er hægt að opna stíflur í kransæðum með blásningu/röri er í vaxandi mæli gripið til skurðaðgerðar. í slíkum tilvikum getur æðastíflubrottnám (TEA) reynst nauðsynlegt til að koma á flæði í kransæðinni. Kransæðin er opnuð, æðakölkunin fjarlægð en úthjúp- ur (adventia) æðarveggsins skilinn eftir og saumaður við hjáveitu- græðling. Æðastíflubrottnám er tæknilega krefjandi og tíðni fylgi- kvilla, sérstaklega hjartadreps, er aukin. Markmið þessarar aftur- skyggnu rannsóknar var að kanna árangur æðastíflubrottnáms á vinstri framveggsgrein hjarta (LAD) við kransæðahjáveituaðgerðir. Efniviður og aðferðir: Árin 1992-2000 gengust 196 sjúklingar á BWH undir æðastíflubrottnám á vinstri framveggsgrein. í öllum til- vikum var aðgerðin framkvæmd sem hluti af kransæðahjáveituað- gerð með aðstoð hjarta- og lungnavélar. 10% aðgerðanna voru end- uraðgerðir. Meðalaldur var 67 ár (bil 33-97). Rúmur helmingur sjúklinganna (52%) var með óstöðuga hjartaöng og 93% voru í NYHA flokki III eða IV. Sykursýki var greind hjá 89 sjúklingum Læknablaðið 2003/89 405

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.