Læknablaðið - 15.05.2003, Síða 53
FRÆÐIGREINAR / KLÍNÍSKAR LEIÐBEININGAR FRÁ LANDLÆKNISEMBÆTTINU
Starfshópur á vegum
Landlæknisembættisins
hefur unnið að gerð klín-
ískra leiðbeininga um
greiningu og meðferð
bráðra bakverkja. I
vinnuhópnum eru Magn-
ús Ólason (formaður),
Ragnar Jónsson, Gísh Þ
Júlíusson og Sigurður
Helgason. Markmið
leiðbeininganna er að
stuðla að markvissari
greiningu og meðferð
þessa algenga
vandamáls.
Hér er útdráttur úr
heildarleiðbeiningum
sem eru á heimasíðu
Royal College of
General Practitioners í
Bretlandi. Einnig er
miðað við sambærilegar
leiðbeiningar byggðar á
gagnreyndri læknis-
fræði, meðal annars frá
Svíþjóð (SBU). Heim-
ildarleit var endurunnin
2002 og að hluta í
byrjun árs 2003.
g og meðférð bráðra bakverkja Frumgreinlng
Leiðbeiningar (tilmæli) Vísindaleg sönnun/rannsóknir
Gerið frumgreiningu • Ákvarðanir um meðferð, rannsóknir og hugs- anlegt samráð við aðra byggja á þessari frum- greiningu. • Frumgreiningu bráðra mjóbaksverkja á að byggja á sjúkrasögu og skoðun: • einfaldir bakverkir (ósértækir bakverkir) • taugarótarverkur • hugsanlegir alvarlegir baksjúkdómar (æxli, sýking, gigt, einkenni frá mænutagli)
Myndgreining
Leiðbeiningar \ Rannsóknir
Það er ekki ábending fyrir venjulega röntgen- mynd í bráðum mjóbaksverkjum sem hafa staðið skemur en sex vikur þegar ekki er „flaggað rauðu“. *** Geislaskammtur við röntgenrannsókn af mjó- baki er 150 sinnum meiri en við lungnamynd.
Forðast skal óþarfa myndgreiningar og endur- teknar röntgenrannsóknir.
Sálfélagslegir þættir
Leiðbeiningar Rannsóknir
Við mat á sjúkingi þarf að taka tillit til sálrænna, vinnu-, félagslegra og fjárhagslegra þátta, því aðrir þættir en líkamlegir geta haft áhrif á matið og meðferðina. Taka þarf tillit til sálfélagslegra þátta við meðferð og ráðleggingar til sjúklinga, en þessir þættir geta haft áhrif á árangur meðferðar og líkur á lang- vinnum einkennum. *** Sálrænir, félagslegir og efnahagslegir þættir skipta miklu máli í örorku vegna langvinnra mjóbaksverkja. ** Sálfélagslegir þættir eru mikilvægir mun fyrr en áður var talið. *** Sálfélagslegir þættir hafa áhrif á það hvernig sjúklingur svarar meðferð og endurhæfingu. ** í nokkrum klínískum þáttum felst áhætta vegna þróunar langvinnra verkja og örorku. ** Sálfélagsleg staða er mikilvægari áhættuþáttur fyrir langvinn einkenni en líkamlegir þættir.
Stjörnugjöf, * til ***, er notuð til að tengja beint vísindalegar rannsóknarniðurstöður við einstakar ráðleggingar þannig að styrk-
ur þeirra sé ljós. Þetta ásamt því hvað átt er við með ásættanlegri rannsókn er útskýrt á heimasíðu þeirra
www.rcgp.org.uk/rcgp/clinspec/guidelines/backpain/index.asp.
Stjörnugjöf
*** Almennt samhljóða niðurstöður úr meirihluta margra ásættanlegra rannsókna.
** Annaðhvort byggt á einni ásættanlegri rannsókn eða veikri eða ósamhljóða niðurstöðum margra ásættanlegra rannsókna.
* Takmörkuð vísindaleg sönnun sem uppfyllir ekki öll skilmerki um ásættanlega rannsókn.
Læknablaðið 2003/89 425