Læknablaðið - 15.05.2003, Side 69
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÆKNAR OG SAGA
„Vilji er allt sem þarf"
Ekki verður sagt að Læknafélag Islands hafi sinnt
mikið sögu lækninga á Islandi eða haft í heiðri minn-
ingu þeirra félaga sem rutt hafa brautina eða skara
fram úr á vissum sviðum. Pannig hefur til dæmis
minningu Sigvalda Kaldalóns, læknis og tónskálds,
ekki verið sýndur neinn sómi af hálfu félagsins svo
mér sé kunnugt, en aðrir hafa reist honum minnis-
varða við Kaldalón og strengharpan sem sjómenn og
bændur við ísafjarðardjúp gáfu og báru til hans svo
hann mætti sinna tónsmíðum í tómstundum á milli
erfiðra læknisferða í einangruninni norður við Dumbs-
haf mun hafa lent í eigu annarra aðila. Persónulegir
munir og listaverk sem prófessor Jón Steffensen gaf
félaginu til styrktar Læknaminjasafninu við Nesstofu
munu hafa dreifst út um hvippinn og hvappinn. Hús
Guðmundar Hannessonar sem hann hannaði sjálfur
og byggði á horni Hverfisgötu og Ingólfsstrætis hefði
félagið getað eignast fyrir nokkrum árum þegar starf-
semi félagsins var flutt úr Domus Medica á núverandi
stað. Læknaminjasafnið við Nesstofu er nú í óhrjá-
legu húsi á Seltjarnarnesi og enginn fastur starfsmað-
ur sinnir því. Hálft starf „minjavarðar“ við Landspít-
alann hefur verið lagt niður í sparnaðarskyni. Enginn
mun því halda nú til haga munum sem úreldast en
tengjast þróun Iækninga á spítalanum og myndir sem
minna á eldri starfsaðferðir og horfna félaga munu
fyrr eða síðar lenda á haugunum. Svo mætti lengi
telja.
Alllengi mun hafa staðið til að gera upp Nesstofu
á Seltjarnarnesi, hið fagra hús sem tengist sögu lækn-
inga á Islandi órjúfandi böndum og stendur á fögrum
stað með útsýni yfir sundin blá. Því verki er enn ekki
lokið og húsið nýtist ekki sem rammi um lækninga-
minjar eða aðra menningarstarfsemi. Nú mun þó
hafa vaknað nokkur skilningur bæjaryfirvalda Sel-
tjarnarness á að hér sé þörf að taka til hendinni, ekki
síst í þágu bæjarfélagsins. Landlæknisembættið er
flutt á Seltjarnarnes, en mun vera í leiguhúsnæði og í
engum tengslum við Nesstofu eða uppruna sinn.
Skrifstofa Læknafélags íslands hefur síðustu ár
verið staðsett á hæð í húsi í Kópavogi sem hýsir ýmsa
aðra óskylda starfsemi og verður ekki sagt að um-
gjörð eða umhverfi beri neinn þann menningarþokka
sem æskilegt væri og dregið gæti að sér félagsmenn til
samfunda, hvað þá að byggingin tengist á nokkurn
hátt störfum eldri félaga og forvígismanna.
Nú mun standa til að endurskipuleggja svæðið
umhverfis Nesstofu á Seltjarnarnesi og er því hver
síðastur fyrir læknasamtökin að fá þar aðstöðu fyrir
starfsemi sína eða minjar. Vegna þessa vaknar sú
spurning hvort nú sé ekki rétti tíminn fyrir samtök
lækna og áhugamenn um sögu lækninga á íslandi að
taka höndum saman og leita eftir samvinnu við bæj-
aryfirvöld á Seltjarnarnesi, Pjóðminjasafnið og ríkis-
valdið, þannig að í nánd við Nesstofu megi rísa bygg-
ing eða byggingar sem hýst gætu allt í senn, Land-
læknisembættið, skrifstofur læknasamtakanna og fé-
lagsaðstöðu auk Læknaminjasafnsins. Tengsl safnsins
við starfsemi læknasamtakanna mundi gefa því nýtt
líf og í félagsaðstöðu læknasamtakanna mætti koma
upp sérstökum herbergjum sem helguð væru minn-
ingu látinna félaga á einhvern hátt með því að varð-
veita þar myndir og hluti þeim tengda. Þarna gæti til
dæmis orðið til Steffensstofa og Kaldalóns með mun-
um úr eigu þessara manna og myndum.
Það er álit mitt að læknar kysu miklu frekar að
sækja fundi og fá sér kaffi í slíkum húsakynnum í því
fagra umhverfi sem Nesstofa býður upp á, en í núver-
andi húsnæði í Kópavogi. Félagsmenn yrðu minntir á
störf og afrek genginna félaga og Læknaminjasafnið
mundi breytast úr geymslu í lifandi safn til ánægju og
menningarauka fyrir félagsmenn og aðra.
Auðólfur
Gunnarsson
Höfundur er skurðlæknir
á Landspítala.
Nesstofa á Seltjarnarnesi. Húsið sem sést í lengst til vinstri á myndinni er Lyfjafræðisafnið
en þar er einnig félagsaðstaða lyfjafrœðinga.
Læknablaðið 2003/89 441