Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.2003, Síða 77

Læknablaðið - 15.05.2003, Síða 77
UMRÆÐA & FRÉTTIR / HEILBRIGÐISMÁL Á KO S N I N G AV ETR I gæsluna þurfi að bæta, einkum á höfuðborgarsvæð- inu. Og enginn efast um réttmæti þess að byggja myndarlega yfir Landspítalann við Hringbraut. A fundinum sem áður er vitnað til gættu fulltrúar nú- verandi stjórnarflokka þess vel að nefna engar tíma- setningar. Fulltrúar stjórnarandstöðunnar voru einn- ig varkárir en þó nefndu Steingrímur J. Sigfússon for- maður Vinstrigrænna og Guðmundur Árni Stefáns- son þingmaður Samfylkingarinnar að raunhæft væri að ákvarðanataka og undirbúningur framkvæmda tæki tvö til fjögur ár, framkvæmdir gætu hafist fyrir lok þessa áratugar og lokið á fimm til 10 árum. Þótt stöku maður hafi gælt við þá hugsun að opna fyrir þann möguleika að sjúklingar geti keypt sig framhjá biðlistum þá er ekkert slíkt að finna í kosn- ingastefnuskrám flokkanna. Þar eru hins vegar alls staðar yfirlýsingar um að biðlistar séu óviðunandi og að þá beri að stytta. Framsóknarflokkurinn vill stefna að því að hámarksbið verði aldrei lengri en sex mán- uðir og Vinstrigrænir nefna sérstaklega biðlista eftir langtímameðferð vímuefnaneytenda og greiningu og meðferð barna og unglinga með geðraskanir. Ágreiningur um leiðir Vilji menn finna hvar flokkana greinir á er rétt að skoða leiðirnar sem þeir vilja fara að markmiðunum. Þó ber að geta þess að á Landspítalafundinum voru allir sammála um réttmæti kostnaðargreiningar og þörfina á því að breyta fjármögnun spítalarekstrar- ins. Þegar fulltrúar flokkanna voru spurðir um hvort þeir væru reiðubúnir að leita nýrra leiða til að fjár- magna byggingu framtíðarspítalans skildu leiðir. Stjórnarflokkarnir vildu ekki útiloka að einkafram- kvæmd eða alútboð gætu flýtt framkvæmdum en stjómarandstaðan var nokkuð sammála um að rétt- ast væri að ríkið fjármagnaði framkvæmdina af fjár- lögum eða með lántöku. Einn fundarmanna gat hins vegar ekki stillt sig um að benda fulltrúum flokkanna á að loforð þeirra um skattalækkanir færu langleiðina í að fjármagna bygg- ingu spítalans í einum rykk. Sama máli gegnir um leiðir til að efla heilsugæsl- una. Þar eru skoðanir flokkanna töluvert skiptar. Sjálfstæðisflokkurinn „leggur sérstaka áherslu á fjöl- breytt rekstrarform og valmöguleika í heilsugæslu“. Hinn stjórnarflokkurinn vill efla heilsugæsluna „sem grundvöll heilbrigðisþjónustu í landinu og ljúka uppbyggingu hennar á höfuðborgarsvæðinu. Rekstr- arformum í heilsugæslunni verði fjölgað til að styrkja þjónustuna og stuðla að hagkvæmni í rekstri.“ Samfylkingin segir að rekstrarform þurfi að velja með tilliti til aðstæðna hverju sinni og bætir svo við: „Forsenda verktöku og rekstrar einkaaðila á þessum sviðum (heilbrigðis- og menntamálum) er ætíð að ekki sé hægt að kaupa sér forgang, þjónusta rýrni ekki, kostnaður sjúklinga aukist ekki og kostnaður ríkisins minnki.“ Frjálslyndir ræða ekki um rekstrar- form í stefnuskrá sinni en Margrét Sverrisdóttir sagði á Landspítalafundinum að einkarekstur leiddi ekki endilega til aukinnar hagkvæmni. Vinstrigrænir vara hins vegar við „einkavæðingu sem hefur í för með sér bæði mismunun og lélega nýtingu fjármuna í heil- brigðiskerfinu". Hver á að hjúkra öldruðum? Eins og áður segir eru flokkarnir sammála um nauð- syn þess að fjölga hjúkrunarheimilum fyrir aldraða. Þjóðin sé að eldast og við því þurfi að bregðast. Hins vegar eru meiningar nokkuð deildar um það hver eigi að bregðast við. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins samþykkti álykt- un þess efnis að ábyrgð á öldrunarþjónustu eigi að vera hjá sveitarfélögunum. Geir H. Haarde fjármála- ráðherra sagði á Landspítalafundinum að sveitarfé- lögin hefðu hag af því í núverandi kerfi að ýta öldruð- um úr heimaþjónustu yfir í önnur og dýrari þjónustu- form. Þetta væri ekki heppilegt og brýnt að setja ein- hverjar reglur um það hver bæri ábyrgð á þjónustu við aldraða og hvar hún væri veitt. Ef niðurstaðan yrði sú að hún væri best komin hjá sveitarfélögunum þyrftu þau að fá fjármuni til að standa undir kostnaði við hana. Einnig væri athugandi að setja reglur um það hver eigi að borga fyrir þá einstaklinga sem ekki eru á réttum stað í kerfinu. Aðrir fulltrúar flokkanna tóku undir þau orð að skoða þyrfti verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga á sviði öldrunarþjónustu en höfðu fyrirvara á því að það gæti gerst mjög hratt. Jónína Bjartmarz frá Framsóknarflokki sagði brýnt að ákvarða hvað ætti að gera hvar og hélt því fram að forsenda slíkrar stefnumótunar væri að kostnaður við heilbrigðisþjónustu væri greindur og fjárframlög til stofnana löguð að því. Formaður Vinstrigrænna tók undir nauðsyn þess að setja skýrar reglur um hvað ætti að gera hvar. Hver ræður? í lokin má nefna að einn fundarmanna varpaði fram þeirri fyrirspurn hvort stjórnmálamenn væru reiðu- búnir að deila ábyrgðinni með heilbrigðisstéttum á þeim ákvörðunum sem þær taka upp á eigin spýtur núna. Jú, þeir voru svo sem ekki andvígir því en sáu þó þann hæng á að heilbrigðisstéttirnar væru margar og oft afar ósammála sem gerði stjórnmálamönnum erfitt fyrir um að ákveða hvað réttast væri að gera. Þetta svar segir kannski mest um það hver ræður ferðinni í heilbrigðismálum þjóðarinnar. Ef þeir sem starfa í heilbrigðisþjónustunni bera gæfu til að standa saman að stefnumótun er engin hætta á því að stjórn- málamenn og flokkar þeirra þvælist verulega fyrir. Sameinaðir stöndum vér, eða hvað? Læknablaðið 2003/89 449
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.