Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.2003, Page 80

Læknablaðið - 15.05.2003, Page 80
UMRÆÐA & FRÉTTIR / MINNING Minning. Þorgeir Jónsson læknir Fæddur 24. mars 1916 Dáinn 16. mars 2003 Steinar V. Árnason Við Þorgeir Jónson kynntumst fyrir hartnær 30 ár- um á Borgarspítalanum í Fossvogi þar sem við unn- um báðir í þá daga. hann miðaldra læknir á geðdeild- inni en sá sem þetta ritar ungur meinatæknir og spænskukennari í frístundum. Allt í einu stendur hann í dyrunum á fremsta herberginu á rannsókna- deildarganginum E-1 þar sem ég var við vinnu rnína einn haustdag um hádegisbil - og mér fannst hann sæta færis að hitta mig einan - kynnir sig og réttir mér höndina og bætir við: „Ert þú ekki Steinar? Mér er sagt að þú kennir spænsku.“ Þannig varð Þorgeir í einu vetfangi orðinn nemandi minn í Námsflokkum Reykjavíkur og komst vel niður „í tungu Cervantes- ar og García Lorca“ því námið rækti hann vel og lengi. Og meðan ég var erlendis við nám 1978-93 dreif hann sig í nýstofnað spænskunám í háskólan- um, lauk þar því sem í boði var, en lét ekki þar við sitja því hann kom strax til mín aftur 1993 að læra meiri spænsku, í þetta sinn með áherslu á bókmennt- irnar og hóf jafnframt ítölskunám af miklum áhuga. Margir nemenda minna í Námsflokkunum voru þekktir borgarar, þroskað og menntað fólk, sumir nokkuð fullorðnir. En mér virtist áhuginn og ástund- unin næstum aukast með hækkandi aldri og öldung- amir skipuðu sér í fremstu röð. Nokkrir þeirra eru nú fallnir frá eins og Ellý Vilhjálms söngkona, ástfangin af spænskunni, Jón Kristinsson, skólastjóri úr Kópa- vogi, sem lagði stund á ítölsku og glósaði með afar fallegri rithönd, og þarna voru líka tveir miklir lög- menn með ólíka skaphöfn, þeir dr. Gunnlaugur Þórðarson, afar hjartahlýr maður, og öðlingurinn Magnús Oskarsson borgarlögmaður, sem reyndist mér síðar sérstök hjálparhella. Þessir burtgengnu nemendur sýndu raunar allir kennaranum sínum mikla kurteisi, velvild og margvíslegan sóma. Minn- ingin um þá er honum ákaflega kær. Þorgeir var í námshópi sínum fremstur meðal jafningja, ævinlega mjög vel undirbúinn, virkur og eftirtektarsamur, mátulega spurull og neytti færis að skjóta inn hnyttnum athugasemdum. Hann þreyttist aldrei á að þakka fyrir kennsluna og talaði ævinlega um skemmtilegu árin sín níu hjá mér. Níu ár eru líka langur námstími og leggi menn alúð við námsgrein svo lengi hlýtur að nást árangur enda tókst Þorgeiri að læra tvö rómönsk tungumál að því marki að skilja þau ágætlega og gera sig vel skiljanlegan. Kunnátt- una notaði hann samt aðallega til að njóta skáldskap- ar enda var hann bókelskur, ljóðrænn og tónvís og að öllu leyti menningarsinnaður maður. Síðast þakkaði hann mér skemmtilegu námsárin níu þegar hann hringdi til mín í febrúar síðastliðnum. Þá var hann enn hress í bragði og engan veginn af baki dottinn, talaði um hitt og þetta sem hann væri að hugsa og gera og minntist á tónlist, kveðskap, morgunleikfimi og göngutúra, merkingu orða og enn fleira og sagði að þeir kúturinn hefðu það bara ágætt. Þess vegna brá mér einkennilega og óþægilega við þegar rakst á tilkynninguna um útför hans í Morgun- blaðinu því mér hafði ekki heyrst hann svo mjög úr heimi hallur í samtalinu okkar svo skömmu áður. Auðvitað vissi ég vel að heilsa hans hafði beðið hnekki í seinni tíð. En það var samt ekki langt síðan hann var að leika og syngja á sviði, úti að ganga með kútinn og jafnvel að hjóla og skokka og auðvitað fór hann á tónleika eins og hann var vanur. Og jafnvel eftir að hann varð alveg háður súrefniskútnum hélt hann áfram að vera svo ótrúlega starfsamur og sprell- lifandi. Þegar við Brynja dóttir mín kvöddum Þorgeir og Margréti, kæra vinkonu hans, á sólríku síðdegi í ágúst síðastliðnum í útidyrunum heima hjá henni á Hlíðarveginum datt mér ekki í hug að þetta væri síðasta handtakið. En nú er Þorgeir allur og sæmd hans mikil að hafa lifað lífinu svo lifandi fram í rauð- an dauðann. Og það svo gjöfulu og góðu lífi, sjálfum sér og öðrum til gagns og gleði. Fljótlega eftir að Þorgeir gerðist nemandi minn tókst með okkur vinskapur og við fórum að verja löngum kvöldstundum í samræður um lífið og tilveruna og reyndumst furðu samstíga varðandi hugðarefni og skoðanir. Þessar samræður okkar fóru fram í „stofu- kofa“ Þorgeirs í kjallaranum heima honum að Sunnubraut 29. Þar var áberandi hár skápur með gömlum lyfjaglösum - á einum miðanum stóð „Spiri- tus antiparalyticus“ - og sjór og fuglar alveg við gluggann. Og þarna sátum við saman mörg laugar- dagskvöld frá því eftir kvöldmat og talsvert frameftir. Eitt af því sem við töldum okkur eiga sameiginlegt voru fjórir námsvetur í Menntaskólanum á Akureyri. Að vísu með þrjátíu ára millibili. En sá aldursmunur kom bara ekkert að sök og árin okkar í hinum norð- lenska skóla gátum við borið saman og fundið á þeim marga sameiginlega fleti. Það má segja að við höfum rætt um alla heima og geima. Mest töluðum við um bókmenntir en líka mikið um sálarlíf og slógum þessu stundum saman þegar við leituðumst við að skýra orð og gerðir sögu- persóna sálfræðilega. Ég man að einu sinni sem oftar töluðum við um mexíkósku skáldsöguna Pedro Pár- ramo á þeim nótum suður á Mallorca en þangað héldum við eitt sinn til nokkurra vikna sameiginlegr- ar dvalar með góðar bækur og tónlist í farteskinu og þar lá hann löngum á svölunum okkar í Magalluf með gamlan kunningja, Góða dátann Sveik, og rak upp ófáar hlátursrokur undir hattbarðinu við lestur- inn. En á sálfræði- eða geðfræðisviðinu stóð hann 452 Læknablaðið 2003/89

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.