Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.06.2003, Page 7

Læknablaðið - 15.06.2003, Page 7
RITSTJÓRNARGREINAR Læknamistök nei takk - Sjúklingaöryggi já takk Merk tímamót eru í uppsiglingu í flugsögunni en í desember næstkomandi eru 100 ár liðin frá flugi Wright bræðra. www.firstflightcentennial.org Tólfsek- úndna flug þeirra bræðra breytti heiminum og mark- ar upphaf flugreksturs samtímans, reksturs sem fyrst og fremst gengur út á að þjóna almenningi þannig að fólk komist fljótt og örugglega milli staða hvar sem er á jörðinni. Ef vel er að gáð má greinilega sjá hlið- stæður í þróun flugs og læknisfræði á þessum 100 ár- um. I upphafi voru skrefin stigin af fáum og fram- gangurinn oftast markaður sigrum er féllu í skaut ákveðnum einstaklingum, á þeim tíma flugmannanna og læknanna. Það var ekki undarlegt því undirbún- ingurinn, áræðnin og niðurstaðan var algerlega þeirra. Flug á þessum upphafsárum taldist til merkis- atburða og á hverjum nýjum brottfarar- og lendingar- stað þyrptist að fólk og veislur voru haldnar. Sama gilti um læknisaðgerðir og má til gamans má rifja upp að á Héraðshælinu á Blönduósi var hefð fyrir því að flagga í hvert sinn sem botnlangi var tekin og að kveldi aðgerðardags gæddu skurðlæknirinn og að- stoðarmaður hans, sem sá um svæfinguna og gjarnan var laghentur maður úr plássinu, sér á tertu og tendr- uðu andann með tári af brenndu víni. Því miður er ekki flaggað fyrir aðgerðum í dag, nema ef vera skyldi í hálfa stöng. Þegar aðgerðir eða aðgerðaleysi í heilbrigðisþjón- ustu aftra heilbrigði tímabundið eða varanlega er það oftast kallað læknamistök. Þegar óhöpp verða í flugi er það kallað skert flugöryggi. Þá eru kallaðir til sér- stakir rannsóknaraðilar sem kanna alla þætti óhappa- flugsins og mistök flugmanns ekki staðfest nema efn- isleg rök liggi fyrir. Svo ýtarlega er óhappið kannað að meira að segja viðhaldsþjálfun flugmanna sem lenda í óhappi er könnuð, eins og eftirfarandi saga ber með sér. Þann 8. janúar 1989 lagði flug 092 á veg- um British Midland Airways af stað frá London á leið til Belfast. Þrettán mínútum eftir flugtak fundu far- þegar og áhöfn mikinn titring og skömmu síðar fannst brunalykt í farangursrými vélarinnar. Það sem orsak- aði þetta var að hreyfilblað úr þrýstihverfli hægri hreyfils hafði losnað af og skemmt hreyfilinn og ytra byrði vélarhlífarinnar. Flugstjórinn taldi að bilunin hefði orðið í vinstri hreyfli enda hvarf titringurinn er hann slökkti á honum. Oskað var eftir að lenda á ein- um hreyfli á Mið-Englandi, en þegar auka þurfti orku við lendingu brást bilaði hreyfillinn endanlega og vélin steyptist vélarvana til jarðar með þeim afleið- ingum að 47 létust af 128 um borð. Öll áhöfn vélar- innar komst lífs af, flugstjórinn var dæmdur fyrir þau mistök að slökkva á vitlausum hreyfli og var refsingin fangelsi og missir flugstjórnarréttinda. Eftir nánari eftirgrennslan og frekari málafærslur fyrir rétti var flugstjórinn sýknaður tíu árum síðar á þeirn forsend- um að flugrekstraraðilinn og flugvélaframleiðandinn hafi ekki kynnt og þjálfað flugliða sem skyldi þegar ný árgerð flugvélar var tekin til notkunar. www. aviation-safety.net Sannarlega eru dæmi um flugslys sem kostað hafa fjölda manns lífið þar sem um mistök flugmanna var að ræða en einnig eru til staðfest dæmi um slys þar sem mistök í starfi flugumferðarstjóra, flugvirkja eða annars starfsfólks á jörðu niðri leiddu til óhappsins. í tímaritsgrein frá árinu 1984 (1) er talið að í 50% flugslysa sé um mistök flugmanna að ræða, 35% tilfella mistök flugumferðarstjóra en í 15% til- vika sé skýringa flugslysa að leita annars staðar. Það merkilega við þennan síðasta þátt er að til eru stað- fest dæmi um að virðingarstig, litarháttur, trú eða kynferði hafi leitt til flugslysa að því leyti að þessir þættir hafi haft áhrif á samvinnu og samskipti áhafnar og flugleiðsögumanna á jörðu niðri. www.aaib.dft. gov.uk Heilbrigðisþjónusta og flugrekstur eru atvinnu- greinar þar sem margir vinna saman að þeim mark- miðum er einkenna hvorn rekstur um sig. Ólíkt frá- sögninni hér að ofan eru mistök innan heilbrigðis- þjónustunnar kölluð læknamistök en í flugreksti eru óhöppin talin verða vegna skerts flugöryggis og ekki sök flugmannsins nema að vel rannsökuðu máli. f flugrekstrinum er flugöryggi haft að leiðarljósi og horft er fram á við með markvissri skráningu á þeim atvikum er draga úr öryggi rekstursins, atvikum er snúa að öllum þáttum, svo sem viðhaldi véla, þjón- ustu á jörðu niðri, fjarskiptum, veðri og raunar öllum þeim mannlegu þáttum er snerta flugreksturinn. Þar er hugað að viðhaldsmenntun flugliða og mikilvægi eftirlits með þeim þætti og ekki síður samskiptum og samvinnu áhafnarmeðlima og allra þeirra er að hverju einstöku flugi koma. Veruleikinn er annar í heilbrigð- isþjónustunni. Þar er meira litið í baksýnisspegilinn og leitað að sökudólgi sem er þá oftast læknirinn, en minna er gert af þvf að skrá og læra af óhöppunum á kerfisbundinn hátt. Hér má læra af fluginu og setja sjúklingaöryggi í fyrirrúm en láta af því að hugsa sí- fellt um læknamistök vegna þess að í flestum tilfellum er starfsemin svo flókin og samfléttuð vinnu svo margra stétta að ómaklegt er að kenna lækninum ein- um um. Þetta má ekki skilja sem svo að læknar séu að koma sér undan ábyrgð, síður en svo, heldur má meðal annars benda á eftirfarandi: í fyrsta lagi er uppbygging stjórnunar á heilbrigðisstofnunum á veg- um hins opinbera, eins og til dæmis LSH, algerlega tvískipt milli lækningaþáttar og hjúkrunarþáttar. Sjá lesendur Læknablaðsins fyrir sér algera skiptingu Hannes Petersen Höfundur er sérfræðingur í háls-, nef- og eyrnalækningum á Landspítala Fossvogi. Læknablaðið 2003/89 479

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.